Fréttablaðið - 10.12.2016, Qupperneq 112
A lexis Sánchez er búinn að vera einn af betri leikmönnum ensku deildarinnar það sem af er tíma-bili, um það verður
ekki deilt. Hraði hans og og leikni
hafa lengi heillað knattspyrnuunn-
endur og nú hefur markaskorun
bæst við listann. Inni á vellinum er
hann mikill spaði, gerir alls konar
kúnstir með boltann og niðurlægir
oftar en ekki andstæðinga sína með
hreyfingum sínum og brellum,
saman ber fimmta mark Arsenal
gegn West Ham. En utan vallar er
hann hæglátur og rólegur. Frá því
hann gekk í raðir Arsenal hefur lítið
farið fyrir honum á öðrum síðum
blaða en íþróttasíðum og það er
erfitt að finna viðtal við kappann.
Það er vegna þess að dagleg rútína
er ekkert sérstaklega flókin. Hann
fer á æfingu, borðar vel og fer síðan
heim þar sem hann dvelur þangað
til hann mætir á ný á æfingasvæðið.
Hann mætir sjaldan á opinbera við-
burði og er ekkert úti á næturlífinu.
Sánchez er alinn upp við sára fát-
tækt og hefur bróðir hans sagt í við-
tölum að fjölskyldan hafi varla átt í
sig og á. Sánchez ólst upp í námu-
bænum Tocopilla, sem heimamenn
kalla horn helvítis en hún er gríðar-
lega skítug, fjöllin eru hrjóstrug og
vegirnir eru holóttir. Fátæktin,
drullan og mengunin er mikil. Þegar
Sánchez kemur heim til Tocopilla
fer hann út á meðal almennings,
situr með vinum sínum á veitinga-
stöðum og talar við hvern sem er.
Hann spilar jafnvel fótbolta með
vinum sínum og er þá bara ber-
fættur.
Hann fór snemma að sýna alls
konar brögð með fótbolta þegar
hann var yngri til að reyna að vinna
sér inn nokkra aura. Faðir hans
yfirgaf Martinu, móður hans, þegar
hann var rétt ókominn í heiminn.
Martina ól upp fjögur börn og náði
varla endum saman.
Sánchez var lítið heima, hann
var yfirleitt á götum Tocopilla að
spila fótbolta berfættur. „Hann veit
hvaðan hann kemur og gleymir því
aldrei. Hann vill komast á toppinn
og ég held að bakgrunnur hans
hjálpi honum mikið,“ sagði Hum-
berto, bróðir hans, í viðtali við El
Pais árið 2013.
Trúlega væri Sánchez námuverka-
maður í Tocopilla líkt og flestir karl-
menn í bænum ef hann hefði ekki
haft töframáttinn í fótunum. Þeir
fá 314 dollara á mánuði, en það eru
nokkurra mínútna laun hans hjá
Arsenal.
Sánchez á 18 mánuði eftir af
samningi sínum við Arsenal og er
sagður vilja 260 þúsund pund á viku
sem er 50% launahækkun. Mesut
Özil er sagður í svipuðum kjaravið-
ræðum. Chelsea er víst sagt tilbúið
til að bjóða Chile-manninum gull
og græna skóga sem fór ekkert sér-
lega vel í stuðningsmenn Arsenal.
Þeir ætla víst að búa til risastóra
fána og skilti til að sannfæra hann
um að vera áfram og hengja upp í
Undrabarnið
frá
hornihelvítis
næsta leik. Eiga allar tilkynningar
hans að vera með hundunum hans,
Atom og Humber, sem eru svo vin-
sælir að þeir eru með eigin Insta-
gram-síður.
Hann fékk snemma viðurnefnið
íkorninn vegna hraða hans. Vinir
hans breyttu því í El Nino Mara-
villa, eða undrabarnið, eftir að hann
skoraði átta mörk í einum barna-
leik í Chile. Lið hans, Club Arauco,
var að tapa 1:0 þegar Sánchez var
settur inn á. Hann komst ekki í byrj-
unarliðið af því að hann var tveimur
árum yngri en allir hinir.
Skömmu síðar gekk hann í raðir
Cobreloa, þaðan fór hann til River
Plate í Argentínu áður en Udinese
keypti hann til Ítalíu. Þar sló hann
í gegn og Barcelona keypti kauða til
að leiða framlínu liðsins með Leo
Messi.
Hann verður 28 ára núna í des-
ember og hefur verið, ásamt Özil,
langbesti maður Arsenal. Ef hann
heldur áfram að raða inn mörkum
og leika sér að andstæðingum
sínum eru allar líkur á að hann verði
kjörinn leikmaður ársins. Sérstak-
lega ef Arsenal heldur áfram á sömu
braut því þá enda þeir sem meist-
arar. Það hafa nefnilega komið í ljós
brotalamir hjá keppinautunum að
undanförnu. Á meðan er Arsenal á
fullri ferð, alveg eins og Sánchez vill
það.
Tími hans í Evrópu hefur verið
nánast ein góð skemmtisaga. Vissu-
lega hafa komið erfiðleikar hér og
þar eins og síðasta árið hans hjá
Barcelona þar sem hann var tölu-
vert á bekknum og var notaður
sem varaskeifa. Frelsið á vellinum
var horfið og þá var kominn tími
til að fara. Hann endaði hjá Arse-
nal þar sem Wenger nýtir hæfileika
Sánchez til hins ítrasta enda virðist
hann átta sig á að Sánchez breytist í
litla strákinn sem sparkaði fótbolta
á drullugum götum borgarinnar
Tocopilla þegar hann stígur inn á
völlinn. Og þannig er hann bestur.
Leikvangurinn
Benedikt Bóas
Hinriksson
benediktboas@frettabladid.is
18 mánuðir er langur
tími í fótbolta. bæði
Sánchez og Özil eiga
18 mánuði eftir af
Samningum Sínum og
verða hér vonandi
mun lengur.
Arsene Wenger,
knattspyrnustjóri Arsenal
Ferill Sánchez
Ár lið Mörk
'05–’06 Cobreloa 9
’06–’11 Udinese 20
‘06–’07 Colo-Colo (lán) 5
’07–’08 River Plate (lán) 4
‘11–’14 Barcelona 39
’14– Arsenal 55
Landslið Chile
leikir
106 36
mörk
Tölfræði á tímabilinu
Leikir 18
Mörk 13
Stoðsendingar 7
Skot 55
alexis Sánchez, leikmaður Arsenal,
hefur verið stórkostlegur það sem af er
tímabili. Saga hans er stórmerkileg en
hann ólst upp við sára fátækt í Chile.
nafn: Alex
is Sánchez
félag: Ars
enal
treyjunú
mer: 7
aldur: 27
ára
19.12.1988
hæð: 169 c
m
Þyngd: 62
kg
land: Chil
e
1 0 . d e s e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r d A G U r56 h e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
1
0
-1
2
-2
0
1
6
0
4
:3
4
F
B
1
5
2
s
_
P
1
1
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
A
1
-6
3
6
4
1
B
A
1
-6
2
2
8
1
B
A
1
-6
0
E
C
1
B
A
1
-5
F
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
5
2
s
_
9
_
1
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K