Fréttablaðið - 10.12.2016, Side 118
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Oddbjörg Þórarinsdóttir
Mýrum 6, Patreksfirði,
lést á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða,
Patreksfirði, fimmtudaginn 8. desember.
Útförin fer fram frá Patreksfjarðarkirkju
laugardaginn 17. desember kl. 14.00.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim
sem vilja minnast hennar er bent á slysavarnadeildina
Unni á Patreksfirði.
Kristín Torfadóttir
Jón Torfason Kolbrún Sigmundsdóttir
Þórarinn Torfason
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og fyrrverandi
eiginkona,
Ingunn Hjördís Björnsdóttir
Flétturima 8,
áður Stórateigi 2, Mosfellsbæ,
lést á Landspítalanum í Fossvogi
aðfaranótt 7. desember. Útförin fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 13. desember kl. 11.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Ljósið.
Margrét Erlingsdóttir
Daníel Erlingsson Ingibjörg Edda Haraldsdóttir
Egill Erlingsson Ragnheiður K. Guðmundsd.
Atli Erlingsson Anna Kristín Jóhannsdóttir
Erlingur Kristjánsson
barnabörn og barnabarnabarn.
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Kristján Fr. Guðmundsson
lést 3. desember á hjúkrunarheimili
Hrafnistu í Kópavogi.
Útförin verður frá Fríkirkjunni í Reykjavík
þriðjudaginn 13. desember kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hans er vinsamlega bent á
Parkinson samtökin.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Helga Kristjánsdóttir Halldór Guðbjarnason
Guðmundur Fr. Kristjánsson Jenný K. Steinþórsdóttir
Guðný Björg Kristjánsdóttir Markús Jóhannsson
Smári Kristjánsson Soffía Júlía Svavarsdóttir
Ástkær bróðir minn, mágur,
frændi og vinur,
Þórir Kristinn Kárason
lést 30. nóvember.
Jarðarförin fer fram mánudaginn
12. desember kl. 13.00
í Seltjarnarneskirkju.
Þórhallur Kárason Oi Sirijanthrakan
Alex Kári Þórhallsson
Sigrún Pétursdóttir
og frændsystkini.
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Auðbrekku 1, Kópavogi
Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir
síðan 1996
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Símar allan sólarhringinn:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda og
ræðum skipulag útfarar ef óskað er
Ástkær eiginmaður minn og faðir,
Pálmi Ágústsson
lést í Gautaborg 20. nóvember.
Minningarathöfn fór fram frá Sant
Sigfrid kapellu þann 6. desember.
Guðlaug Jónsdóttir
Trausti Pálmason Það er nú ekki hægt annað en gleðjast yfir því að fá að eiga svona mörg afmæli og alveg sjálfsagt að fagna því,“ segir Sigurður Skúlason leikari spurður hvernig það sé að
verða sjötugur í dag. Hann heldur upp
á tímamótin með útgáfu hljómdisks þar
sem hann flytur ljóð, sonnettur, eintöl,
smásögu og fáeina söngva sem hann
kveðst raula með sínu nefi. „Ég er ekki
söngvari svo það út af fyrir sig er bara
fífldirfska, en lífið er ófyrirsjáanlegt og
fullt af alls konar hliðarsporum og hjá-
leiðum og það er nú það skemmtilega
við þetta allt saman og engin ástæða
til að draga inn árar þó aldurinn færist
yfir.“
Diskurinn heitir Svo húmar að með
ást og á umslaginu er mynd af manni
sitjandi á bekk við sjóinn að horfa á
sólarlagið. Sigurður segir myndina og
titilinn haldast í hendur við aldursskeið-
ið og það sem er að gerast. Hann hefur
séð um útgáfuna að öllu leyti sjálfur og
kveðst hafa varið í það talsverðum tíma
undanfarna mánuði. „Annars starfa ég
um þessar mundir sem afgreiðslumaður
í versluninni Bútabæ, sem Guðrún, kær-
astan mín, rekur. Þar er maður að beita
kvarða og mæla fataefni, selja garn og
lopa og fleira, sem segir bara að alltaf
má breyta til og prófa nýja hluti. Ég var
í Verslunarskólanum fyrir meira en 50
árum og kannski er maður fyrst núna að
beita einhverri af þeirri þekkingu sem
maður meðtók þá.“
Var hann sem sagt ekki strax ákveð-
inn í að verða leikari? „Jú, jú, það var
einbeittur vilji og ákvörðun sem tók
mig strax barn að aldri. Ég fór í List-
dansskóla Þjóðleikhússins níu ára
gamall með þá von í brjósti að komast
á svið og það gekk strax eftir. Verslunar-
skólinn togaði í mig aðallega vegna þess
að ég bjó í Þingholtunum, í næstu götu
við skólann. Og á horninu á Grundar-
stíg og Skálholtsstíg var líka vinalegur
kaupmaður sem hét Gunnar og mér
fannst eitthvað heillandi við hugmynd-
ina um kaupmanninn á horninu sem
seldi nauðsynjavörur og átti í góðum
samskiptum við fólkið í hverfinu. En
leiklistin hafði yfirhöndina. Samhliða
Versló var ég hjá Ævari Kvaran leikara
einn undirbúningsvetur og síðan þrjú ár
í Leiklistarskóla Þjóðleikhússins.“
Inntur eftir eftirlætishlutverkum
svarar Sigurður: „Það er ekki auðvelt
að svara svona spurningu. Sum hlut-
verk hafa meiri vigt og áhrif en önnur,
oftar er þetta þó spurning um verkið
sjálft og leikstjórann og hópinn og and-
ann í vinnunni. Þegar það allt smellur
saman á jákvæðan, vekjandi hátt gerist
það sem skiptir máli. En það sem ristir
dýpst hvað mig snertir í leikhúsinu eru
kynnin við William Shakespeare, við
hugsun hans og anda. Hann er eins og
djúpur brunnur sem stundum virðist
alveg botnlaus. Þar talar maður af meiri
innsæisskilningi en ég hef rekist á ann-
ars staðar. Og ég þreytist seint á að vitna
í ýmis tilsvör hans úr leikritunum. Ein
af mörgum uppáhaldstilvitnunum eru
þessi orð Pána í Hinriki IV: „Er það ekki
kynlegt, að girndin skuli lifa getuna svo
mörg ár!““ gun@frettabladid.is
Er það ekki kynlegt …?
Sigurður Skúlason leikari er sjötugur í dag og í tilefni þess gefur hann út hljómdisk með
flutningi sínum á ljóðum, sonnettum, eintölum, smásögu og líka fáeinum söngvum.
„Það er engin ástæða til að draga inn árar þó aldurinn færist yfir“ segir Sigurður.
fréttablaðið/Stefán
Þar er maður að beita kvarða og
mæla fataefni, selja garn og lopa
og fleira sem segir bara að alltaf
má breyta til og prófa nýja hluti.
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Salvör Hannesdóttir
Arnkötlustöðum,
lést þann 25. nóvember á
Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Selfossi.
Útför fór fram frá Árbæjarkirkju í Holtum
þann 3. desember í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug.
Sérstakar þakkir til allra sem glöddu móður okkar með
heimsóknum og góðum kveðjum í veikindum hennar.
Hannes Birgir Hannesson
Steinunn Heiðbjört Hannesdóttir
Hafsteinn Jóhann Hannesson
Hugrún Fjóla Hannesdóttir
tengdabörn og barnabörn.
1 0 . d e s e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r d A G U r62 t í m A m ó t ∙ F r É t t A b L A ð i ð
tímamót
1
0
-1
2
-2
0
1
6
0
4
:3
4
F
B
1
5
2
s
_
P
1
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
1
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
A
1
-3
6
F
4
1
B
A
1
-3
5
B
8
1
B
A
1
-3
4
7
C
1
B
A
1
-3
3
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
1
5
2
s
_
9
_
1
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K