Fréttablaðið - 10.12.2016, Side 124
Jólamyndir
Bragi Halldórsson
229
„Æi,“ sagði Kata önug. „Eigum við núna að fara að kubba?“
Hún dæsti. „Nei,“ svaraði Lísaloppa. „Þetta er þraut.“ „Nú,“
sagði Kata spyrjandi. „Hvernig þá?“ „Jú,“ sagði Lísaloppa.
„við eigum að telja hversu margir kubbar eru í þessari
kubbastæðu og þá líka þá kubba sem ekki sjást.“ „Eigum við
þá að nota röntgengleraugu?“ sagði Kata glottandi. „Við
þurfum þess ekki,“ sagði Lísaloppa. „Við getum reiknað út
hvað það eru margir kubbar sem ekki sjást út frá þeim
kubbum sem við sjáum.“ „Allt í lagi, reikna út og telja,“ sagði
Kata og fór að rýna í kubbastæðuna.
Getur þú hjálpað Kötu og Lísuloppu að telja hversu margir
kubbar eru í þessari kubbastæðu?
svar: 13
PANTAÐU FRÍAN TÍMA
Í SKOÐUN STRAX Í SÍMA
893-0098
HÁRÆÐASLIT Í ANDLITINU ?
ÞAÐ ER TIL LAUSN - VIÐ FJARLÆGJUM
HÁRÆÐASLIT ENDANLEGA Í ANDLITI
Hraunbæ 102 • Reykjavík • S. 893 0098 • snyrtistofanhafblik@gmail.com
Snyrtistofan Hafblik
Fyrir Eftir
Snjókarl
Teikning eftir
Lúkas Loga
Grétarsson.
Snjóhús
Teikning eftir
Erni Þórsson.
1. Hvað er það sem nærri allir
menn hafa neytt, en þó hefur það
aldrei komið á nokkurs manns
borð?
2. Hvaða gjöf er sjaldan gefin með
gleði?
3. Fólk borðar sjaldan nokkra
máltíð án okkar en borðar okkur þó
yfirleitt ekki ein sér.
4. Hvar voru básúnuleikararnir,
þegar þeir blésu múrum Jeríkó-
borgar um koll?
5. Hvaða fætur eru alltaf skólausir?
6. Ég hef enga fætur, en þó fer ég
sífellt fram og aftur. Ég hef engan
munn og þó bít ég með tönnum. Ég
sé ekki og verð alltaf að fá stuðning
annarra. Hver er ég?
SVÖR:
Gátur
1. Móðurmjólkin
2. Uppgjöf
3. Salt og pipar
4. Á bak við básúnurnar
5. Borðfætur
6. Sögin
Grindvíkingurinn Guðrún Lilja
Dagbjartsdóttir, níu ára, hlakkar
mikið til að fá að stíga á svið
í Laugardalshöllinni í kvöld
og syngja með fullt af rosalega
góðum söngvurum. Hún er ekk-
ert kvíðin.
Hvenær byrjaði hún að syngja
opinberlega? Árið 2015 tók ég
þátt í söngvarakeppni 17. júní
og svo söng ég í fyrsta skipti með
pabba mínum á kaffihúsinu
Bryggjunni líka í júní 2015. Ég
hef svo nokkrum sinnum sungið
með pabba mínum opinberlega.
Ertu í kór? Nei, ég er ekki að
læra söng og ekki heldur í kór.
En ég hef farið á þrjú stutt söng-
námskeið, fyrst eitt hjá Bríeti
Sunnu Valdimarsdóttir og svo
tvö hjá Sessý Magnúsdóttur,
frænku minni.
Í hvaða skóla ertu og hvert
er þitt uppáhaldsfag? Ég er í
Grunnskóla Grindavíkur og ég
elska list- og verkgreinar.
Hefur þú leikið á sviði? Nei,
ekki enn en mig langar til þess.
Hefur þú farið á sjó eða dorgað
á bryggjunni? Ég hef farið í ferj-
urnar Baldur og Herjólf, svo hef
ég líka farið í hraðbát og þetta
var allt bara rosalega gaman.
Hefur þú ferðast um Ísland? Já,
ég hef til dæmis farið til Akureyr-
ar, Barðastrandar, Stykkishólms,
Vestmannaeyja og Grímseyjar.
Hvað langar þig að verða? Ég
held að mig langi að verða söng-
kona og hundaræktandi eða
bara einhvers konar listakona.
Hún er jólastjarna
Guðrún Lilja Dagbjartsdóttir sem kemur fram í kvöld á
jólatónleikum Björgvins Halldórssonar sem jólastjarna
ársins 2016 elskar list- og verkgreinar í skólanum.
Guðrún Lilja var að mæta á æfingu í Laugardalshöllinni þegar þessi mynd var tekin. FRéttabLaðið/EyþóR
1 0 . d e s e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r d A G U r68 h e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
1
0
-1
2
-2
0
1
6
0
4
:3
4
F
B
1
5
2
s
_
P
1
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
1
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
A
1
-5
9
8
4
1
B
A
1
-5
8
4
8
1
B
A
1
-5
7
0
C
1
B
A
1
-5
5
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
5
2
s
_
9
_
1
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K