Fréttablaðið - 10.12.2016, Page 142
Sörur
Botn
4 egg (eggjahvítur)
230 g heslihnetur (eða möndlur)
230 g flórsykur
Hitið ofninn í 180°C. Hakkið hesli-
hneturnar eða möndlurnar í mat-
vinnsluvél. Stífþeytið eggjahvíturnar
þar til hægt er að hvolfa skálinni án
þess að hvíturnar renni úr. Blandið
hnetunum og flórsykrinum varlega
saman við eggjahvíturnar með
sleikju. Mótið kökurnar með teskeið
og setjið á pappírklædda ofnplötu.
Bakið í 10 – 12 mínútur.
Krem
4 egg (eggjarauður)
1dl vatn
130 g sykur
250 g smjör, við stofuhita
2– 3 msk. kakó
½ tsk. vanillusykur eða vanillu-ext-
rakt
1msk. sterkt uppáhellt kaffi
Þeytið eggjarauðurnar. Hitið vatn
og sykur þar til það hitnar og verður
að sírópi. Hellið sírópinu saman
við eggjarauðurnar i mjórri bunu
og haldið áfram að þeyta. Skerið
smjörið í teninga og bætið út í.
Næsta skref er að bæta kakó,
vanillu og kaffi út í kremið. Þeytið
í svolitla stund eða þar til kremið
verður silkimjúkt. Það er ágætt að
smakka sig til á þessu stigi. Kælið
kremið áður en þið setjið það á kök-
urnar. Gott er að sprauta kreminu á
kökurnar með sprautupoka eða nota
teskeiðar til þess að smyrja kreminu
á þær. Það er algjört smekksatriði
hversu mikið af kremi fer á kökurnar.
Kælið kökurnar mjög vel, helst í
frysti áður en kökurnar eru hjúpaðar.
Hjúpur
300 g súkkulaði, t.d. suðusúkkulaði
Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði.
Dýfið kremhlutanum á Sörunum
ofan í súkkulaðið.
Gott er að geyma kökurnar í frysti,
takið þær út með smá fyrirvara áður
en þið berið þær fram.
GLAMOUR ER
KOMIÐ ÚT!
Tryggðu þér eintak
í næstu verslun eða
áskrift á Glamour.is.
200 blaðsíður
2 forsíður
Gómsætur jólabakstur
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir, sælkeri og sjónvarpskokkur,
deilir með okkur jólauppskriftum sem sniðugt er að baka eftir um
helgina. Um er að ræða ljúffengar Sörur og piparkökubollakökur.
Eva Laufey Kjaran deilir gómsætum uppskriftum fyrir jólin. FréttabLaðið/VaLLi
Sörur eru mjög vinsælar yfir hátíðirnar.
Mynd/EVa
Piparkökubollakökur með karamellukremi
„Við bökuðum þessar ljúffengu
piparkökubollakökur og þær voru
virkilega góðar og skemmtileg
tilbreyting frá klassísku piparkök-
unum. Þetta er öðruvísi útfærsla
á piparkökum sem allir þekkja og
kemur skemmtilega á óvart, einföld,
fljótleg og góð uppskrift sem ég
mæli með að þið prófið fyrir jólin,“
segir Eva Laufey.
Uppskrift
250 g sykur
140 g smjör við stofuhita
3 egg við stofuhita
250 g Kornax hveiti
1 tsk. lyftiduft
2 dl rjómi
2 tsk. vanillu-extrakt eða vanillu-
sykur (það er líka gott að nota fræin
úr vanillustöng)
1 tsk. kanill
½ tsk. malaður negull
½ tsk. hvítur pipar
½ tsk. engiferkrydd
Bollakökuform
Hitið ofninn í 180°C. Þeytið saman
smjör og sykur í um það bil þrjár
mínútur, bætið einu og einu eggi
saman við. Þeytið vel á milli. Sigtið
saman hveiti og lyftiduft, bætið
hveitiblöndunni, vanillu, rjómanum
og kryddum saman við eggjablönd-
una og þeytið mjög vel í nokkrar
mínútur þar til blandan verður silki-
mjúk. Skiptið deiginu niður í bolla-
kökuform og bakið við 180°C í 15–18
mínútur. Kælið kökurnar mjög vel
áður en þið smyrjið á þær kreminu.
Karamellukrem
200g smjör, við stofuhita
400g flórsykur
4 msk. þykk karamellusósa, t.d. dulce
de leche
½ tsk. kanill
1 tsk. vanillu-extrakt eða vanillu-
sykur
Þeytið smjör og flórsykur saman í
nokkrar mínútur, því lengur sem þið
hrærið kremið því betri áferð verður
á því. Bætið karamellu, kanil og
vanillu út í og þeytið enn betur í 2–3
mínútur. Setjið kremið í sprautupoka
og skreytið kökurnar að vild. Það er
afar gott að rífa niður smá súkkulaði
og skreyta kökurnar með súkkulaði-
bitum eða ferskum berjum.
Sörur eru ómissandi í des-ember og þær eru í sér-staklega miklu uppáhaldi hjá mér og minni fjöl-skyldu. Það tekur lengstan tíma að búa þær til svo ég
byrja yfirleitt á því að baka þessar
kökur fyrir jólin, það er svo gott að
vera búin að því og geta fengið sér
eina og eina í desember. Ég ætla
að deila með ykkur uppskriftinni
sem ég geri alltaf fyrir jólin en upp-
skriftin er frá mömmu minni,“ segir
Eva Laufey.
Piparkökubollakökur með ómótstæði-
legu karamellukremi er skemmtileg til-
breyting frá klassísku piparkökunum.
Mynd/EVa
ÉG ætLa að dEiLa
mEð yKKur uPP-
SKriftinni SEm ÉG GEri
aLLtaf fyrir jóLin En
uPPSKriftin Er frá mömmu
minni.
1 0 . d e s e m B e r 2 0 1 6 L A U G A r d A G U r86 L í f i ð ∙ f r É T T A B L A ð i ð
1
0
-1
2
-2
0
1
6
0
4
:3
4
F
B
1
5
2
s
_
P
1
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
1
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
A
1
-5
4
9
4
1
B
A
1
-5
3
5
8
1
B
A
1
-5
2
1
C
1
B
A
1
-5
0
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
9
B
F
B
1
5
2
s
_
9
_
1
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K