Fréttablaðið - 10.12.2016, Blaðsíða 144
„Við erum að halda jólaballið
okkar í samstarfi við Coca-Cola í
Hörpunni núna næsta föstudag.
Við erum að fá Emil Stabil og Unge
Ferrari. Emil er danskur rappari og
þeir komu báðir fram á Airwaves
– þannig að þegar við vorum að
bóka þetta þá var engin spurning
hvort þetta yrði gott „show“, enda
vorum við búin að sjá þá og vitum
að þetta verður geðveikt,“ segir Sól-
veig María Gunnarsdóttir, ritari
Skólafélagsins.
Emil Stabil og Unge Ferrari eru
báðir rísandi stjörnur í rappheim-
inum. Emil Stabil er frá danska
rappbænum Arhus á meðan Unge
Ferrari kemur frá Noregi og er ákaf-
lega ungur.
„Þeir voru búnir að tala um að
þeir væru til í að halda aftur gigg
hér á landi þannig að þetta lá
beinast við. MR hefur aldrei flutt
inn erlendan tónlistarmann áður,
fyrir utan eitt árið þegar það var
reynt að flytja Hot Chip til lands-
ins en það endaði með að einungis
dj-inn þeirra mætti og var algjört
flopp. Við vitum að þeir Emil Stabil
og Unge Ferrari eru báðir að koma.“
Ballið verður haldið í Silfurbergi
en þangað komast 1.100 manns svo
búast má við stórum tónleikum.
Miðasalan var opnuð í gær fyrir MR-
inga og opnast síðan fyrir alla aðra á
sunnudaginn. DJ Sura og 101 Savage
eða Jóhann Kristófer Stefánsson sjá
um upphitun.
stefanthor@frettabladid.is
Unge Ferrari
Norrænar rappstjörnur
á MR balli
Danski rapparinn Emil Stabil og hinn norski Unge Ferrari spila á
jólaballi MR sem er haldið í Hörpunni. Þetta er í fyrsta sinn sem MR
flytur inn erlenda tónlistarmenn til að spila á balli á vegum skólans.
Emil Stabil
ÞeiR voRu búNiR að
tala uM að ÞeiR
væRu til í að halda aftuR
gigg héR á laNdi ÞaNNig að
Þetta lá beiNast
við.
Sólveig María
Gunnarsdóttir, ritari
Skólafélags MR
Kringlan 4-6, 103 Reykjavík - hibyli.is - hibyli@hibyli.is - Sími: 585 8800
Aðalstræti 9
– 101 Reykjavík
Falleg 2ja herbergja 49,7 fm
íbúð á 4. hæð í lyftuhúsi í hjarta
miðborgarinnar. Íbúðin skiptist í
forstofu, eldhús sem er opið við
rúmgóða stofu, útgengi á svalir sem
snúa að Fógetagarðinum, svefn-
herbergi með fataskáp, parket á
gólfum. Baðherbergi flísalagt í hólf
og gólf, þvottahús/geymsla innan
íbúðar, flísar. Frábær staðsetning.
Verð 31,5 millj.
Hringbraut 94
– 101 Reykjavík
Fallegt og vel skipulagt parhús á
þremur hæðum í Vesturbænum.
Eignin skiptist í forstofu, hol með
stiga upp á efri hæð, rúmgóð
og björt stofa samliggjandi við
borðstofu sem er opin við eldhús,
parket á gólfum. Eldhús með góðri
innréttingu. Á efri hæð er baðher-
bergi, rúmgott svefnherbergi og hjónaherbergi með fataherbergi inn af.
Í kjallara er stofa/sjónvarpsherbergi og svefnherbergi, parketi á gólfum,
þvottahús og geymsla. Hellulögð stétt og timburpallur eru framan við hús,
tyrfður garður er aftan við hús. Verð 57,5 millj.
Rjúpnasalir 12
– 201 Kópavogur
Mjög falleg 3ja herbergja 94 fm
íbúð á 2.hæð í góðu lyftuhúsi í
Salahverfinu í Kópavogi. Íbúðin
skiptist í forstofu með fataskáp,
stofu með útgengi á yfirbyggðar
flísalagðar svalir, tvö svefnherbergi
með fataskápum, eldhús með
góðri innréttingu, baðherbergi með
baðkari og þvottahús innan íbúðar.
Parket á stofu og herbergjum, flísar
á baðherbergi og þvottahúsi.
Verð 36,7 millj.
Vesturgata 7
– 101 Reykjavík
Falleg 2ja herbergja 65,6 fm
íbúð í húsi fyrir 67 ára og eldri.
Í húsinu er þjónustumiðstöð
fyrir eldri borgara og heilsu-
gæsla. Íbúðin skiptist í forstofu
með fataskápum, eldhús með
viðarinnréttungu, svefnherbergi,
stofa opin við sjónvarpshol,
parket á gólfum, útgengt á
hellulagðar vestursvalir. Baðherbergi, flísar á gólfum og veggjum, sturtuklefi
sem gengið er beint inn í, tengi fyrir þvottavél. Frábær staðsetning við mið-
borgina, stutt í alla verslun og þjónustu. Verð 34,0 millj.
Aflagrandi 40 – 107 Reykjavík - 60 ára og eldri
Opið hús laugardaginn 10. desember milli kl. 14:00 og 14:45, íbúð 0206.
Falleg 3ja herbergja 80,1 fm íbúð á 2. hæð í eftirsóttu fjölbýli fyrir 60 ára og eldri í Vesturbæ Reykjavíkur. Íbúðin er á skiptist í aðalrými
með samliggjandi stofu, borðstofu og eldhúsi, útgengt á yfirbyggðar svalir með svalalokun og fallegu útsýni. Tvö góð svefnherbergi með
fataskápum. Eikarparket á gólfum. Rúmgott baðherbergi með tengi fyrir þvottavél. Geymsla (búr) innan íbúðar og önnur sér geymsla
í kjallara. Í sameign er bílageymsla sem íbúar geta fengið leigt bílastæði í og sameiginlegt þvottahús. Félagsmiðstöðin Vesturreitir er í
húsinu þar sem boðið er upp á hádegisverð auk fjölbreyttra námskeiða, hársnyrtingu o.fl. Verð 43,0 millj.
OPIÐ HÚS
Ingibjörg
Þórðardóttir,
löggiltur
fasteignasali.
Þórður S.
Ólafsson,
löggiltur
fasteignasali.
Ólafur Már
Ólafsson,
löggiltur
fasteignasali.
Björg
Ágústsdóttir,
skrifstofa
Asparfell 6
– 111 Reykjavík
Góð 5 herbergja 111,6 fm íbúð
á 2. hæð í lyftuhúsi við Aspar-
fell . Íbúðin skiptist í forstofu
með fataskápum, eldhús með
viðarinnréttingu, samliggjandi
stofur með útgengi á svalir,
gestasalerni. Í svefnálmu eru
þrjú svefnherbergi, öll með
fataskápum, baðherbergi með
baðkari, geymsla með hillum.
Parket, korkur og dúkur á
gólfum. Verð 34,5 millj.
VANTAR ALLAR STÆRÐIR OG GERÐIR EIGNA Á SÖLUSKRÁ, SKOÐUM SAMDÆGURS.
1 0 . d e s e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r d A G U r88 L í f i ð ∙ f r É T T A b L A ð i ð
1
0
-1
2
-2
0
1
6
0
4
:3
4
F
B
1
5
2
s
_
P
1
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
1
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
A
1
-4
F
A
4
1
B
A
1
-4
E
6
8
1
B
A
1
-4
D
2
C
1
B
A
1
-4
B
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
9
A
F
B
1
5
2
s
_
9
_
1
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K