Morgunblaðið - 20.10.2015, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 2015
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Alcoa Fjarðaál mun á næstunni ráða
tugi starfsmanna, flesta í framleiðslu,
en einnig til þess að sinna iðnaðar-
störfum. Dagmar Ýr Stefánsdóttir,
upplýsingafulltrúi fyrirtækisins, seg-
ir að ástæðan fyrir ráðningunum sé
vaktabreytingar í takt við nýja kjara-
samninga. Verður nú unnið á átta
klukkustunda vöktum í stað tólf áður.
„Við erum að fjölga vaktahópunum. Í
stað þess að keyra á fjórum vöktum
munum við keyra á fimm,“ segir Dag-
mar.
Á álverssvæðinu starfa um 900
starfsmenn þegar verktakar eru tald-
ir með. Hjá Alcoa starfa hins vegar
um 470 manns. Að sögn hennar er
ekki gert ráð fyrir aukalegum kostn-
aði vegna ráðninganna þegar til
lengri tíma er litið.
„Við vonumst eftir því að með þess-
ari breytingu geti starfsfólk annars
vegar orðið meiri þátttakendur í sam-
félaginu þar sem það er ekki að vinna
eins langa vinnudaga. Eins vonumst
við eftir því að kynjahlutföllin jafnist
hjá okkur. Stefna fyrirtækisins er að
vera með jöfn kynjahlutföll, en það er
svolítið á brattann að sækja þar sem
konur sækja síður í þessi störf. Við
höfum greint það þannig að ein
ástæða þess sé sú hve langar vakt-
irnar voru,“ segir Dagmar.
Hún segir að átta tíma fyrir-
komulagið hafi verið tekið upp í
skautsmiðju fyrirtækisins. Reynslan
sýni að kynjahlutföll séu jafnari þar
en í öðrum þáttum í starfsemi fyrir-
tækisins.
Átta tímar laði konur að
Alcoa bætir við sig tugum starfs-
manna Styttri vaktir henta konum
Morgunblaðið/ÞÖK
Tugir ráðnir Alcoa hyggst ráða tugi
starfsmanna á breyttum vöktum.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Olíumálverk Gunnlaugs Blöndal af Reykjavíkurhöfn
var slegið á 2,1 milljón á listmunauppboði hjá Gallerí
Fold í gærkvöldi. Var það dýrasta mynd uppboðsins.
Fjölbreytt úrval mynda var boðið upp. Myndin sem
starfsmaður sýnir hér er ein af þeim ódýrari, uppstill-
ing með eplum eftir Atla Má.
Reykjavíkurhöfn slegin á 2,1 milljón
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Samninganefndir ríkisins, SFR,
sjúkraliða og lögreglumanna sátu yf-
ir samningum í Karphúsinu fram eft-
ir kvöldi í gær. Tókst að leysa vanda-
mál sem upp komu í gær. Verkfall
SFR-félaga og sjúkraliða heldur
áfram í dag.
Ágætur gangur var í viðræðunum
um helgina. Árni Stefán Jónsson,
formaður SFR, sagði í gærkvöldi að
samningamenn stéttarfélaganna
hefðu í því ljósi komið bjartsýnir á
fund með fulltrúum ríkisins eftir há-
degið í gær. Þá hefði komið bakslag í
viðræðurnar. „Það tók allan daginn
að leysa hnútinn sem myndaðist og
hann leystist undir kvöld,“ sagði
Árni. Boðað er til nýs fundar í dag,
klukkan 14, og vonaðist Árni til að
viðræðurnar færu í þann góða farveg
sem þær voru í um helgina. Hann tók
fram að enn sæi ekki fyrir endann.
Í dag verður kröfuganga SFR,
sjúkraliða og lögreglumanna. Lagt
verður af stað frá Hlemmi kl. 9 og
gengið að stjórnarráðinu.
Í dag er síðari dagur tveggja
sólarhringa verkfalls SFR og
sjúkraliða. Jafnframt stendur yfir
ótímabundið verkfall SFR hjá Land-
spítala og nokkrum stofnunum.
Verkföllin hafa töluverð áhrif á þjón-
ustu stofnana ríkisins við almenning,
misjafnlega mikil þó.
Þannig þyngdist róðurinn veru-
lega á Landspítalanum í gær. Fjöldi
sjúklinga sem innritaðir höfðu verið
á bráðamóttöku beið þess að komast
á viðeigandi deildir. Ástandið var tal-
ið alvarlegt og erfitt að veita viðun-
andi þjónustu við þessar aðstæður.
Nokkuð um verkfallsbrot
Nokkuð hefur verið um verkfalls-
brot í verkfalli SFR, að því er fram
kom á mbl.is í gær. Í því sambandi
var rætt um brot kennara við Há-
skóla Íslands og á deildum sem til-
heyra geðsviði Landspítala.
Þórarinn Eyfjörð, framkvæmda-
stjóri SFR, sagði að kennsla í heima-
húsi og á skrifstofu kennara væri
verkfallsbrot. Vésteinn Valgarðsson,
aðaltrúnaðarmaður SFR á Landspít-
alanum, sagði nokkuð um að starfs-
fólk sem ekki er í SFR eða sjúkra-
liðafélaginu, til dæmis hjúkrunar-
fræðingar, sé kallað á vakt eða látið
ganga í störf félagsmanna.
Vonast til að viðræður
komist í farveg á ný
Verkföll SFR og sjúkraliða halda áfram í dag
Morgunblaðið/Eggert
Fundað Samningamenn koma til
fundar í Karphúsinu í gær.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Afrit var tekið af tölvupóstum fv.
ráðuneytisstjóra í viðskiptaráðu-
neytinu, skv. reglum þar að lútandi.
Þetta kemur fram í svari iðnaðar-
og viðskiptaráðuneytisins við fyrir-
spurn Morgunblaðsins.
Tilefnið var tölvupóstur Sigríðar
Logadóttur, aðallögfræðings Seðla-
banka Íslands (SÍ), til sérstaks sak-
sóknara í janúar 2014, þar sem fram
kom að öllum tölvupóstum Jónínu S.
Lárusdóttur, fv. ráðuneytisstjóra í
viðskiptaráðuneytinu, hefði „verið
eytt“. „Því miður virðist niðurstaðan
sú að engin formleg staðfesting ráð-
herra finnst,“ skrifaði Sigríður í
pósti sem Morgunblaðið hefur undir
höndum, en vegna skorts á staðfest-
ingu þáv. ráðherra veittu gjaldeyris-
reglur SÍ ekki gilda refsiheimild.
Fylgja þriggja mánaða reglu
Svar iðnaðar- og viðskiptaráðu-
neytisins bendir til að sú skýring
Seðlabankans við fyrirspurn ákæru-
valdsins, að tölvupóstunum hafi ver-
ið eytt, segi ekki alla söguna.
Þannig segir í svarinu að við
starfslok starfsmanns í Stjórnar-
ráðinu sendi viðkomandi ráðuneyti
Rekstrarfélagi Stjórnarráðsins upp-
lýsingar þar um. „Eftir 3 mánuði er
tölvupósti þessa
starfsmanns eytt
af starfsmönnum
Rekstrarfélags-
ins. Þessi vinnu-
regla, sem er skil-
greind í Starfs-
mannahandbók
Stjórnarráðsins,
var viðhöfð í til-
felli Jónínu S.
Lárusdóttur rétt eins og í tilvikum
annarra starfsmanna sem hætta
störfum hjá Stjórnarráðinu.
Rekstrarfélagið fékk beiðni frá
tengilið þess hjá efnahags- og við-
skiptaráðuneytinu að eyða skyldi
tölvupósthólfum 11 fyrrverandi
starfsmanna ráðuneytisins, þar á
meðal tölvupósthólfi Jónínu … Rétt
er að taka fram að Rekstrarfélag
Stjórnarráðsins fékk enga beiðni frá
Jónínu … þess efnis að tölvupósti
hennar skyldi eytt. Allar beiðnir um
slíka eyðingu berast Rekstrarfélag-
inu frá skilgreindum tengiliðum inn-
an hvers ráðuneytis … Afrit er tekið
af öllum tölvupósthólfum skv. afrit-
unaráætlun Rekstrarfélags Stjórn-
arráðsins. Afritunaráætlunin er hluti
af Starfsmannahandbók Stjórnar-
ráðsins.“
Framkvæmd Seðlabankans á
reglunum er nú til athugunar hjá
stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd.
Afrit tekin af
tölvupóstunum
Skýring Seðlabankans var ónákvæm
Afrit gætu gagnast í athugun nefndar
Jónína Lárusdóttir
Kólna mun jafnt og þétt í veðri alla
þessa viku og gera má ráð fyrir raka
og hálku á fjallvegum víða um land í
dag. Þetta segir Einar Sveinbjörns-
son veðurfræðingur. Eftir hlýindi og
suðlægar áttir að undanförnu eru
breytingar framundan og norðlægar
vindáttir munu koma að landinu.
Hitastig í byggðum og á láglendinu
verður rétt ofan við frostmark
lengst af.
Uppi til fjalla og á þeim vegum
sem hæst liggja verður hins vegar
frost og vetrarfærð. Þetta mun hald-
ast alla vikuna, segir Einar. Hann
bætir við að norðanáttin muni hald-
ast áfram um næstu helgi. Ekki sé
hægt að segja ná-
kvæmar fyrir um
veðrið þá dagana
þegar margir
ganga til rjúpna.
Rjúpnahelgarnar
í ár eru fjórar, frá
23. október til 15.
nóvember.
„Þegar veiði-
dagar eru fáir og veðurspá slæm er
hættan sú að veiðimenn fari upp til
fjalla í tvísýnu veðri og þá getur allt
gerst. Við köllum því eftir að rjúpna-
dögunum verði fjölgað,“ segir Dúi
Landmark, formaður Skotvís.
sbs@mbl.is
Vond veðurspá kall-
ar á fleiri veiðidaga