Morgunblaðið - 20.10.2015, Qupperneq 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 2015
Sjáðu meira á mbl.is/askriftarleikur
Hvaða lit mundir þú velja?
Hafðu augun opin þann 22. október
þegar heppinn áskrifandi hlýtur að gjöf
glæsilegan Suzuki Vitara GLX
að verðmæti 5.440.000 kr.
í lit að eigin vali.
VIÐ DRÖGUM
eftir 2 daga
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Ég er búinn að fá nóg. Þetta er búið
hjá okkur. Ég sé ekki að það verði
tekið á þessum vanda enda er það
orðið of seint,“ segir Birkir Arnar
Tómasson, bóndi á Móeiðarhvoli 2 í
Rangárþingi eystra. Hann hefur, eins
og margir kornbændur, verið að
berjast gegn ágangi álfta og gæsa í
mörg ár, en segir að ástandið sé
þannig nú að það taki því ekki að
standa í kornræktinni.
Kornakrar voru seinir til vegna
kulda í vor og eftir að kornið var
tilbúið til þreskingar í haust hafa ver-
ið stanslausar rigningar. Álft og gæs
nota þessar vikur til að gæða sér á
korninu sem bændur hafa lagt í mik-
inn kostnað við að rækta.
Sem dæmi má nefna að á Móeiðar-
hvoli voru í gærmorgun vel á annað
þúsund álftir á 25 hektara akri og
þær voru úti um allt stykkið. „Þær
eru farnar að lenda á óþresktum ökr-
um. Skurðir og girðingar um akrana
skipta þær engu máli,“ segir Birkir.
Þegar verið er að flæma fuglana í
burtu ná þeir ekki lofti undir væng-
ina og berja kornið svo það hrynur
niður.
Girðing er í kringum allan akurinn
en Birkir varð að rjúfa hana á tveim-
ur stöðum til að hleypa álftinni út.
„Þegar maður þarf að opna fyrir
þeim hliðin, til að þær geti labbað út,
þá sýnir sig að þessar varnir duga lít-
ið.“
Þarf leyfi til að skjóta
Margir bændur eru í sömu aðstöðu
og Birkir. „Baráttan stendur sem
hæst þessa dagana. Það er fullt starf
fyrir einn mann að reyna að verja
þessa akra,“ segir Jóhann Nikulás-
son, bóndi í Stóru-Hildisey 2 í Aust-
ur-Landeyjum. Hann ræktar korn á
nokkrum stöðum í sveitinni og því er
vörnin erfið.
Mest mæðir á konu Jóhanns, Sig-
rúnu Hildi Ragnarsdóttur, í vörninni.
Farið er af stað í fyrstu ferð þegar
orðið er bjart á morgnana og álft-
irnar reknar úr ökrunum og síðan á
tveggja til þriggja tíma fresti allan
daginn fram á kvöld. Baráttan hefur
staðið á þriðju viku í haust og er búið
að aka hátt í þúsund kílómetra vegna
hennar.
Jóhann segir að álftinni fjölgi stöð-
ugt. Það segi sig sjálft þegar hvert
par komi með 4-5 unga og ekkert er
reynt að fækka í stofninum. „Það er
engin lausn önnur en að veita bænd-
um leyfi til að skjóta álftir í ein-
hverjum mæli á þessum tíma árs,“
segir Jóhann.
Birkir segist hafa prófað allar
varnir og fælur sem honum hafi verið
bent á og hann hafi látið sér detta í
hug. Ekkert dugi. Álftin komi strax
aftur. Meira að segja dugi ekki þó að
skotið sé á gæsir á ökrunum. Það fæli
gæsina vel en álftin komi til baka.
„Hún er ekkert hrædd við byssur.
Virðist fullkunnugt um að hún er al-
friðuð,“ segir Jóhann.
Verður lítið sáð í vor
Birkir segist orðinn þreyttur á um-
ræðunni um ágang álfta. Búið sé að
ræða um þetta í mörg ár og halda
ráðstefnur en álftinni fjölgi bara á
meðan. Hann áætlar að fuglinn sé bú-
inn að éta upp kornið af 7-8 hekturum
af þeim sextíu sem hann ræktar. „Ég
reyni kannski að slá það til að ná í
hálminn en það verður aldrei mikill
hálmur, akurinn er svo traðkaður.“
Birkir dró mjög saman kornrækt-
ina í vor, vegna þess hversu illa gekk
að verjast fuglinum í fyrrahaust.
„Það verður lítið sáð í vor, ef það
verður þá eitthvað,“ segir hann.
Jóhann segir að álftin sé búin með
3 hektara af 40 sem hann ræktar.
Bæði korn og hálm. Hann telur að
margir muni draga úr kornrækt af
þessum ástæðum. „Maður veltir því
fyrir sér hvort þetta borgi sig. Eitt er
að fljúgast á við tíðarfarið, þegar
þetta bætist svo við. Þetta er þriðja
haustið sem það styttir helst ekki upp
einn einasta dag frá því kornið er
tilbúið til þreskingasr. Ég óttast svo-
lítið að kornrækt leggist af, að
stórum hluta, með þessu áfram-
haldi,“ segir Jóhann.
Halda í vonina
Jóhann og Birkir halda enn í von-
ina um þokkalega uppskeru í haust,
af þeim hluta akranna sem tekist hef-
ur að verja. Spáð er norðanátt og
væntanlega þurrki þegar líður á vik-
una og vonast þeir til að geta byrjað
að þreskja í næstu viku.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Kornakur Hundruð álfta og gæsa voru á þessum akri sem búið var að þreskja í Rangárþingi ytra. Bændur eru að gefast upp á baráttunni við fuglinn og búast við að draga saman í ræktuninni.
Bændur eru að tapa baráttunni um akrana
Álftin herjar mjög á kornakra bænda á Suðurlandi Engar varnir virðast duga Einn maður
í fullu starfi á hverjum bæ að vakta akrana Stórir ræktendur ræða um að hætta kornrækt