Morgunblaðið - 20.10.2015, Síða 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 2015
Forstjóri Landsnets skrifaði í gær
undir samkomulag um raforku-
flutninga fyrir kísilver Thorsil ehf. í
Helguvík. Er gert ráð fyrir að rekst-
ur kísilversins hefjist í ársbyrjun
2018 og skal framkvæmdum Lands-
nets lokið í desember 2017, en áætl-
aður kostnaður við tengingu versins
við meginflutningskerfi Landsnets
er, samkvæmt tilkynningu, um 2,5
milljarðar króna.
„Samkvæmt samkomulaginu skal
Landsnet tryggja orkuflutninga til
kísilvers Thorsil með tengingu við
raforkuflutningskerfið á Reykjanesi.
Það verður gert með lagningu 132
kílóvolta (kV) jarðstrengs milli Fitja
og Stakks, tengivirkis Landsnets
sem nú er verið að byggja í Helguvík,
og stækkun tengivirkisins,“ segir
m.a. í tilkynningu, en stefnt er að því
að fyrstu framkvæmdir hefjist næsta
haust.
Eykur afhendingaröryggi
Þá er í tilkynningunni vitnað í Guð-
mund Inga Ásmundsson, forstjóra
Landsnets, sem segir framkvæmdina
koma til með að auka afhendingarör-
yggi til viðskiptavina fyrirtækisins í
Helguvík. „Því að tveir 132 kV jarð-
strengir verða á milli Stakks, afhend-
ingarstaðar okkar þar, og tengivirk-
isins á Fitjum að framkvæmdum
loknum. Jafnframt styttist í að fram-
kvæmdir hefjist við Suðurnesjalínu 2,
milli Hafnarfjarðar og Rauðamels,
sem styrkir flutningskerfið á Reykja-
nesi til muna og gjörbreytir afhend-
ingaröryggi raforku fyrir bæði íbúa
og fyrirtæki á svæðinu.“
Áætluð aflþörf kísilversins er 87
megavött og verða um 54 þúsund
tonn af kísilmálmi framleidd þar ár
hvert í tveimur ofnum.
Landsnet og Thorsil semja
Undirritun Guðmundur Ingi Ásmundsson, forstjóri Landsnets, og Hákon
Björnsson, framkvæmdastjóri Thorsil, skrifa undir samninginn.
Kostnaður við tengingu kísilvers um 2,5 milljarðar króna
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks í stjórn-
kerfis- og lýðræðisráði, Hildur
Sverrisdóttir og Marta Guðjónsdótt-
ir, lögðu það til á fundi ráðsins í gær
að leggja það niður. Tillagan var felld
en Hildur segir að þrátt fyrir góðan
hug að halda úti nefndum og ráðum
þá verði að meta árangur þeirra mið-
að við kostnaðinn þar sem ekki er
hægt að halda úti stærra borgarkerfi
en borgarsjóður getur staðið undir.
„Það þarf ekki að halda úti sér-
stöku ráði sem borgarstarfsmenn
geta alveg sinnt. Ráðið hefur starfað
í rúmlega ár og raunverulegur ár-
angur er ekki nægur til að réttlæta
kostnað við nefndarstörfin, sem er
stærsti kostnaðarliðurinn og hleypur
á milljónum króna, sem borgarsjóð-
ur á ekki til.“ Meirihlutinn lagði fram
tillögu um að færa ráðið úr flokki I í
flokk II sem ætti að draga úr nefnd-
arkostnaði. „Er það mat meirihlut-
ans að hætt sé við að sú mikilvæga og
sögulega sérhæfing sem felst í því
þynnist út.“ Við þetta svar lagði
Sjálfstæðisflokkurinn fram bókun
þar sem kemur fram að flokkurinn
fagni þeirri viðleitni að spara en að
ráðið sé óþarft og eigi að leggja nið-
ur.
Engin svör
Hildur spurði á fundi ráðsins fyrir
tveimur vikum um tölvupóstsending-
ar borgarstjóra og bar þær spurn-
ingar upp í sex liðum. Engin svör
bárust í gær og furðar Hildur sig á
seinaganginum. „Við ætlum ekki að
sætta okkur við að láta þessa fyrir-
spurn daga uppi. Þess vegna spurð-
um við hvað ylli töf á svörum og ósk-
uðum eftir þeim sem fyrst.“
benedikt@mbl.is
Óþarfa útgjöld borgarinnar
Dagur B.
Eggertsson
Hildur
Sverrisdóttir
Vilja leggja niður eitt ráð borgarinnar til að spara
Erling Ólafsson, skordýrafræðingur
við Náttúrufræðistofnun Íslands,
flytur erindi um smádýr í öskufalli
frá Eyjafjallajökli 2010 á Hrafna-
þingi miðvikudaginn 21. október kl.
15.15-16. Hrafnaþing er haldið í
húsakynnum Náttúrufræðistofn-
unar í Garðabæ og er öllum opið.
Þann 14. apríl 2010 hófst eldgos í
Eyjafjallajökli sem varð upphaf að
miklu og afdrifaríku öskufalli. Svo
vildi til að þrjár gildrustöðvar höfðu
verið í gangi í nágrenni
Eyjafjallajökuls; á Tumastöðum í
Fljótshlíð, Rauðafelli og Skógum.
Þess vegna lá fyrir haldbær þekking
á fiðrildafánunni við eðlilegar að-
stæður og var því mögulegt að meta
hver áhrif öskufalls voru í raun og
veru bæði á einstakar tegundir og
hópinn í heild sinni. Auk fiðrilda hef-
ur gögnum um vorflugur verið hald-
ið til haga.
Erindi um smádýr
í öskufallinu 2010
Kvarnir/Brimrás/Pallar ehf | Álfhella 9 | 221 Hafnarfjörður
sími 564 6070 fax 564 6071 | kvarnir@kvarnir.is | www.kvarnir.is | www.pallar.is
70 kr.
stk.
Vala