Morgunblaðið - 20.10.2015, Side 22
22 UMRÆÐAN Minningar
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 2015
✝ Helgi FlóventRagnarsson
fæddist á Húsavík
2. ágúst 1951.
Hann lést á Mar-
ina Salud spít-
alanum í Denia á
Spáni 6. október
2015.
Foreldrar hans
voru Ragnar Jóns-
son, f. 21.6. 1917,
d. 5.10. 1996, og
Ragnheiður Helgadóttir, f.
31.5. 1917, d. 22.6. 1974.
Systkini Helga eru þau
Anna Jóna, Jóhanna, Guðný
bolta og handbolta, á Íslandi, í
Noregi og Færeyjum.
Helgi lék handbolta og fót-
bolta með FH til fjölda ára
auk þess að þjálfa hjá félag-
inu og vann til fjölda titla,
auk þess að leika með ung-
lingalandsliðinu í knatt-
spyrnu.
Hann þjálfaði í Noregi á ár-
unum 1984 til 1986 og gerði
Stavanger og Fredensborg
Ski 85-86 að norskum meist-
urum og bikarmeisturum.
Helstu vinnuveitendur hans
voru Halldór Guðmundsson
húsasmíðameistari, Börkur og
Össur hf.
Hann vann hjá Össuri hf.
þar til heilsan gaf sig.
Síðustu árin starfaði Helgi
við húsvörslu í Kaplakrika.
Útför Helga verður gerð
frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði
í dag, 20. október 2015, kl 13.
og Jón Ragn-
arsbörn og Ester
Randversdóttir.
Helgi eignaðist
þrjá syni: Sigur-
stein Arndal, f.
1980, með Sædísi
S. Arndal og þá
Magnús, f. 1990,
og Helga, f. 1992,
með Halldóru
Magnúsdóttur.
Hann lauk
sveinsprófi í húsasmíði 1975
frá Iðnskólanum í Hafnarfirði.
Lengstum vann hann við
smíðar og þjálfun, bæði í fót-
Ekki bjóst ég við því þegar ég
fór út úr Krikanum eftir venju-
lega mánudagsæfingu að ég ætti
eftir að eiga þetta samtal við
Helga bróður og að sólarhring
seinna stæði ég við hlið þér á
sjúkrahúsi á Spáni og fylgdist
með þér berjast í þínum síðasta
leik.
Sú barátta tók viku og er nú
lokið. Það var friður yfir þér og
ég þykist vita að þú hafir verið
tilbúinn að vakna á nýjum stað
verkjalaus.
Ég sé þig fyrir mér á nýjum
stað með vinum þínum úr FH
sem yfirgefið hafa Krikann og þið
hafið tekið upp fyrri iðju sem var
stútfull af gleði og léttleika.
Það er sá léttleiki sem þú hefur
alltaf verið þekktur fyrir úti um
allt og ótrúlegt magnið af sögum
sem spunnist hafa í kringum þig.
Þú varst sjaldan kjaftstopp og
áttir alltaf svar við flestum hlut-
um og ef þú áttir það ekki bjóstu
það bara til. Stundum hefðir þú
átt að þegja en það var ekki þinn
stíll.
Þú varst harðduglegur og þú
vildir vinna, sama hvort það var í
hinu daglega lífi eða á vellinum.
Þú gerðir mistök og tókst ekki
alltaf skynsamlegustu ákvarðan-
irnar en varst líka ófeiminn við að
viðurkenna þau og miðla til okkur
bræðranna og lagðir mikið upp
úr því að við gerðum ekki sömu
mistökin.
Við bræðurnir vorum þakklát-
ir fyrir að hafa náð að vera við
hlið þér þegar þú kvaddir. Við
náðum ekki að hafa samskipti við
þig en við trúum því að þú hafir
heyrt til okkar. Við strákarnir
þínir munum standa þéttar sam-
an, efla böndin, og við erum með-
vitaðir um hvað það myndi gleðja
þig.
Fjölskyldan okkar mun varð-
veita fallegar minningar um þig.
Krökkunum líkaði svo vel við þig
enda var hressleikinn alltaf
skrúfaður í botn þegar þú hittir
þau, svo að það var ekki annað
hægt en að hrífast með. Þau
verða líka alltaf jafn montin þeg-
ar þau heyra FH-lög annaðhvort
eftir þig eða þín er getið í lög-
unum.
Auðvitað hefðu stundirnar átt
að vera fleiri en svo var því miður
ekki og því munum við varðveita
allar minningarnar.
Hafðu það gott á nýjum stað
og njóttu þess að vera verkjalaus.
Þinn Sigursteinn (Steini).
Stundin líður, tíminn tekur
toll af öllu hér.
Sviplegt brottfall söknuð vekur
sorg í hjarta mér.
Þó veitir yl í veröld kaldri,
vermir ætíð mig
að hafa þó á unga aldri
eignast vin sem þig.
(Hákon Aðalsteinsson.)
Elsku Helgi minn, það er svo
sárt og erfitt að útskýra fyrir
börnunum að þú sért farinn frá
okkur.
En ég veit að þú ert kominn á
góðan stað og ég trúi því að þér
líði vel. Takk fyrir allt og allt.
Minning þín mun alltaf fylgja
mér.
Þín,
Ebba Særún.
Þar sem englarnir syngja sefur þú,
sefur í djúpinu væra.
Við hin, sem lifum, lifum í trú
að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni.
(Bubbi Morthens)
Elsku afi minn, ég sakna þín.
Takk fyrir að leika alltaf við mig
og það var svo gaman í Mikka-
refs-leiknum okkar.
Afi, þegar ég verð stór og verð
Íslandmeistari með FH, þá verð-
ur það fyrir þig. Ég elska þig.
Þinn afastrákur,
Brynjar Narfi Arndal.
Elsku afi Helgi. Ég vildi ekki
trúa því þegar mamma sagði okk-
ur fréttirnar. Mér finnst lífið ekki
sanngjarnt að hafa tekið þig frá
okkur.
Þú gafst okkur krökkunum svo
mikla gleði. Ég minnist þín á fal-
legan hátt. Þú varst góður mað-
ur.
Alltaf hress og kátur þegar við
hittumst og grínið í þér var alltaf
til staðar. Ég hugsaði alltaf til þín
og þú kenndir mér mikið.
Síðastliðið ár var ég alltaf að
hitta þig uppi í Krika. Það var
yndislegt og við spjölluðum um
allt milli himins og jarðar, mest
þó um fótbolta.
Ég hugsa til þín, elsku afi, og
veit þú hefur það betra með enga
verki í líkamanum. Ég græt þeg-
ar ég hugsa til þín en ég reyni að
vera sterk fyrir þig.
Þúsund knús til þín og minn-
ing þín lifir í hjarta mínu.
Þín
Andrea Marý.
Elsku afi Helgi.
Ég grét mjög mikið þegar
mamma sagði mér þú værir far-
inn til himna.
Ég vildi ekki trúa því en
mamma reyndi að róa mig og
sagði mér að þér liði betur núna.
Þú varst ótrúlega góður við
mig og alltaf þegar ég kíkti á þig,
stundum ein, á leiðinni úr skól-
anum, þá gafstu mér alltaf eitt-
hvað gott að borða, stundum
meira að segja nammi.
Við spjölluðum um fótbolta,
fótboltamótin okkar Andreu og
hvernig gengi með uppáhaldslið-
ið okkar FH.
Ég er ótrúlega stolt að hafa
þekkt þig og hlakkaði alltaf til að
hitta þig uppi í Krika. Ég hugsaði
svo oft til þín.
Takk fyrir allt og allt og
skemmtu þér vel uppi hjá engl-
unum, elsku afi Helgi.
Hér er brot úr einu af uppá-
halds FH-lögunum mínum:
„F-ið fyrir fótboltann og
H-ið gerir mig stoltan,
FH fyrir Helga Ragg
og FH fyrir Hödda Magg.“
Þín fótboltastelpa,
Elísa Lana.
Nú er komið að kveðjustund,
elsku Helgi bróðir.
Þú ert kominn í Sumarlandið
þar sem foreldrar okkar taka á
móti þér og ert laus við allar
þrautir.
Þú varst góður húmoristi og
frábær að segja brandara. Oft
búinn að stríða mér þegar ég var
yngri og plata mig, en alltaf fyr-
irgaf ég þér. Ég þakka fyrir árin
sem við áttum saman. Þú verður
alltaf í mínu hjarta.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Ég sendi samúðarkveðjur til
sona þinna og allra ættingja og
vina.
Þín systir,
Jóhanna Ragnarsdóttir.
Félagi okkar og vinur Helgi
Ragnarsson er fallinn frá. Stutt
er síðan hann kvaddi okkur hér í
Krikanum áður en hann hélt til
Spánar í hálfs mánaðar golfferð
með félögum sínum. Helgi náði
að fagna 7. Íslandsmeistaratitli
FH í fótboltanum rétt áður en
hann var lagður inn á spítala á
Spáni með bráðasjúkdóm sem
felldi hann 6. október síðastlið-
inn.
Helgi varð mikill FH-ingur
ungur að árum og lék með yngri
flokkum félagsins, bæði í hand-
og fótbolta. Þá lék hann einnig
með meistaraflokkum félagsins í
þessum greinum, vann til
margra titla og lék með ung-
lingalandsliðinu í fótbolta. Helgi
var ávallt hrókur alls fagnaðar,
mikill húmoristi og FH-hjartað
var stórt.
Að keppnisferlinum loknum
sneri Helgi sér að þjálfun, fyrst
hér í Krikanum en síðar vítt og
breitt um landið og á erlendri
grundu. Helgi var vel liðinn sem
þjálfari, náði ágætis árangri og
eignaðist fjölda vina sem leik-
maður og þjálfari.
Helgi starfaði sem tré- og
stoðtækjasmiður mestan hluta
starfsævinnar en eftir erfið veik-
indi, um þriggja ára skeið, hóf
hann störf hér í Kaplakrika í árs-
byrjun 2014. Þrekið var ekki mik-
ið til að byrja með en fljótlega var
gamli Helgi kominn á kreik, góð-
ar sögur sagðar, stríðnin á sínum
stað, menn og konur skömmuð
þegar við átti. Honum leið alltaf
vel í Krikanum og það besta,
Helgi var mjög vel liðinn bæði af
starfsfólki og viðskiptavinum í
Kaplakrika.
Við FH-ingar þökkum Helga
Helgi Flóvent
Ragnarsson
Í nóvember
2008 markaði
ESB sér norð-
urskautsstefnu.
Þar kemur fram
að ESB vill eiga
landfræðilega
aðkomu að
Norður-Íshafinu
til að tryggja sér
ítök þar. Þótt
þrjú af átta
norðurskautsríkjum séu í
ESB, Danmörk, Svíþjóð og
Finnland, eiga tvö þau síð-
arnefndu ekki landfræðilega
aðkomu að Norður-Íshafinu
og það þriðja fremur ótrygga
þar sem Grænland sagði skil-
ið við ESB á sínum tíma. Svo
hagar til að 200 mílna efna-
hagslögsagan íslenska, sem
er 758 þús. ferkílómetrar að
stærð (meira en 7 sinnum
stærri en landið sjálft) nær
langt inn í Norður-Íshafið. Í
henni er líka að finna marg-
umtalað Drekasvæði, hugs-
anlega olíuauðugt. Af þessum
sökum hefur þrásinnis komið
fram af hálfu ESB að íslensk
ESB-aðild muni styrkja þátt-
töku ESB í ýmsum norð-
urskautsmálum. Í ársbyrjun
2009 settu bandarísk stjórn-
völd – í nýrri tilskipun um
þjóðaröryggi – fram norð-
urskautsstefnu, mun her-
skárri. Þar segir m.a. að
Bandaríkin eigi grundvall-
aröryggishagsmuni á norð-
skautssvæðinu... Þeir hags-
munir snerta mál eins og
eldflaugavarnir og tímanlega
viðvörun, upppyggingu hern-
aðarlegrar loft- og sjó-
umferðar á hafsvæðum, hern-
aðarlega fælingu, viðveru og
öryggi á hafi og tryggingu
frelsis til siglinga og flugs. Í
kjölfar þessara stefnuyfirlýs-
inga ESB og USA hafa á und-
anförnum árum farið fram
umfangsmiklar heræfingar
Bandaríkja- og Kanada-
manna á hafinu norður af
Alaska og Kan-
ada á norðvest-
urleiðinni svo-
nefndu. Og
Nató, hernaðar-
armur hinna
vestrænu
heimsvelda, hef-
ur staðið fyrir
viðlíka her-
æfingum Nató-
þjóða að við-
bættum Svíum í
Norður-Svíþjóð
og flotaæfingum
við norður- og austurströnd
Noregs. Höfuðstöðvar norska
hersins hafa verið fluttar frá
Stafangri til Bodö, þ.e. norður
fyrir heimskautsbaug, og
Danir hafa lýst yfir að Thule-
herstöðin gamla á Grænlandi
verði styrkt og komið þar fyr-
ir stjórnstöð og viðbragðs-
sveitum í samráði við Nató.
Loftrýmiseftirlit á vegun
Nató, sem fer reglulega fram
við Keflavík og Akureyri, þar
sem æfðir eru bæði her-
gagnaflutningar og aðflug, er
hluti af Nató-militarismanum
á norðurslóðum. Sama máli
gegnir um árvissar her-
æfingar hér á landi sem kall-
ast Norðurvíkingur. Vest-
rænn fjármálakapítalismi,
ásælist íslenskar auðlindir í
sjó og á landi. Miklu fremur
girnist hann þó olíu og málma
norðurslóða, yfirráð yfir nýj-
um siglingaleiðum og hern-
aðaraðstöðu. Og þar kemur
Nató í góðar þarfir. Áköf
landvinningastefna banda-
lagsins blasir við, það hefur
stóraukið tölu meðlimaríkja
sinna og fært út kvíarnar óra-
langt út fyrir svæði aðild-
arríkjanna. Balkanskagi, Afg-
anistan, Írak, Lýbía, Sýrland.
Það hefur tekið sér vald til að-
gerða og íhlutana og alls stað-
ar er slóð þess blóði drifin. Og
nú beinast sjónir þess af vax-
andi þunga að norðurslóðum.
Herfræðileg markmið eru yf-
irráð yfir auðlindum þeirra og
innikróun Rússlands, Kína og
annarra ríkja sem geta skert
hin vestrænu yfirráð á heims-
vísu. Hver voru nú viðbrögð
Rússa við öllu þessu bram-
bolti? Auðvitað heræfingar á
norðurslóðum, annað var ekki
raunhæft. Og þá fóru margir
á límingunum því ,,Rússarnir
eru að koma“. Fyrir utan
launaða sérfræðinga í mál-
efnum Rússlands, sem átt
hafa greiðan aðgang að fjöl-
miðlum, m.a. þeim íslensku,
rottuðu utanríkisráðherrar
Norðurlanda sig saman og
birtu stórorðar yfirlýsingar
um skuggalegar fyrirætlanir
Rússa. T.d. laug sá finnski því
að rússnesk innrás væri yf-
irvofandi á Álandseyjar. Lyg-
in er aldrei góð, en illkynj-
uðust, þegar menn ljúga að
sjálfum sér. Rússarnir hafa
einu sinni komið til Noregs.
Það var í stríðslokin þegar
þeir frelsuðu Norður-Noreg
undan herjum þýsku nasist-
anna. Fóru þaðan strax að
stríði loknu. Höguðu sér
öðruvísi en bandaríski herinn
sem hernam Ísland. En Norð-
menn komu líka einu sinni til
Rússlands. Fasistastjórnin
norska undir forsæti Vidkuns
Quislings sendi fjölmenna lið-
sveit norskra hermanna til
aðstoðar þýska hernum á
austurvígsöðvunum í síðari
heimsstyrjöldinni. Stoltur
her, sagði foringinn. Það var
minni reisn yfir leifum hans
sem komu til baka.
Hvað er að gerast
á norðurslóðum?
Eftir Ólaf Þ.
Jónsson »Herfræðileg
markmið eru yf-
irráð yfir auðlind-
um þeirra og
innikróun Rúss-
lands, Kína og ann-
arra ríkja sem geta
skert hin vestrænu
yfirráð á heimsvísu.
Ólafur Þ. Jónsson
Höfundur er skipasmiður.
Umferðarmenning Íslendinga
er að breytast. Æ fleiri kjósa
að fara ferða sinna á reiðhjóli
og er það hið besta mál fyrir
þá sem tök hafa á því.
En það þurfa allir að vanda
sig í umferðinni því akstur er
dauðans alvara.
Í umræðu síðustu misseri
um þessi mál hefur borið á því
að reiðhjólafólk sendi öku-
mönnum bifreiða kaldar
kveðjur og segi að þeir taki
ekki nægilegt tillit til þeirra
sem hjóla.
Sem ökumann langar mig
að spyrja á móti hvort sú til-
litssemi eigi ekki að gilda í
báðar áttir? Mér finnst stund-
um eins og sumt reiðhjólafólk
haldi að það sé eitt í heiminum
þegar það æðir áfram, horf-
andi ofan í götuna, ýmist á ak-
vegi eða göngustíg. Óvís-
indaleg könnun leiddi í ljós að
helst þyrfti að sýna sérstaka
aðgát þar sem fara spandex-
klæddir hjólreiðamamenn.
Á stuttum tíma hefur mér
tvisvar krossbrugðið, í annað
skiptið þegar hjólreiðamaður
snarbeygði af göngustíg og yf-
ir götu og í hitt skiptið skaust
spandexklæddur ein-
staklingur út á milli hljóðmana
og æddi á myljandi siglingu yf-
ir gangbraut án þess að slá
nokkuð af. Gangbrautin sú var
með kassalaga hraðahindrun
fyrir bíla og sem betur fer var
ég rétt á gönguhraða við þessa
hindrun þegar hann brunaði
yfir, en samt munaði mjóu að
bíllinn rækist í afturdekk
hjólsins. Sá á reiðhjólinu náði
að senda mér fingurinn áður
en hann hvarf á bakvið næstu
hljóðmön. Í Noregi, svo dæmi
sé tekið, eru víxlaðar girðingar
settar fyrir framan gang-
brautir til þess að koma í veg
fyrir að þetta sé hægt og hjól-
reiðafólkið þarf að stíga af baki
og leiða hjólið yfir gangbraut-
ina. Slíkt mætti vera á fleiri
stöðum hér á landi.
Gott væri ef allir gætu sýnt
aðgát og tillitssemi, hvort sem
þeir aka á tveimur dekkjum
eða fleirum.
Ökumaður.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
„Hver ekur eins og ljón …?“
Hjólreiðar Allir þurfa að aka af varúð og tillitssemi.
Nærkjúkur