Morgunblaðið - 20.10.2015, Blaðsíða 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 2015
Ásta Camilla Gylfadóttir, landslagsarkitekt og garðyrkjufræð-ingur, er fertug í dag. Hún starfar hjá VSÓ ráðgjöf og vinnurað ýmsum hönnunarverkefnum hérlendis og í Noregi.
Spurð um áhugamál segir Ásta ferðalög vera ofarlega á blaði. „Mér
finnst gaman að vera úti í íslenskri náttúru og njóta alls þess góða
sem hún gefur. Mér finnst gaman að tala við skemmtilegt og áhuga-
vert fólk. Leikhúsið heillar alltaf, ég og systir mín, Helga Maureen,
ákváðum að vera menningarlegar í vetur og fjárfestum í árskortum í
Borgarleikhúsinu og Þjóðleikhúsinu. Við erum þegar búnar að sjá
Hróa Hött, Sókrates og Dúkkuheimilið, veturinn lofar mjög góðu. Svo
hef ég gaman af því að lesa, þá helst bækur sem vísa í veruleikann,
fræðibækur og ævisögur, en einnig heillar góður krimmi. Ekki má
gleyma prjónaástríðunni sem er á háu stigi hjá mér.“
Ásta hefur tekið saman fræðirit um sögu Lystigarðsins á Akureyri.
„Í krísunni sem skapaðist í mínum geira eftir hrunárið stóð ég á tíma-
mótum. Sumarið 2010 vantaði mig vinnu og þá nýtti ég mér garð-
yrkjufræðinámið og fór að vinna í Lystigarði Akureyrar sem er
dásamleg perla sem kúrir í Brekkunni. Ég uppgötvaði það sumar að
ekki var búið að skrifa sögu garðsins, en hún er mjög merkileg en það
voru konur sem lögðu grunn að honum. Meðhöfundur að bókinni er
Björgvin Steindórsson, forstöðumaður Lystigarðsins, og gáfum við
hana út árið 2012 í tilefni af 100 ára afmæli garðsins. Það var mjög
gefandi að vinna að bókinni en ég hef mikinn áhuga á sagnfræði, hef
t.d. kennt garðlistasögu í Garðyrkjuskólanum.“
Foreldrar Ástu Camillu eru Ása Hanna Hjartardóttir og Gylfi Guð-
mundsson. Hún mun fagna tímamótunum í góðum hópi vina og vanda-
manna.
Ljósmynd/Alistair Mcintyre
Í Paradís Ásta Camilla í Lystigarði Akureyrar, en hún ritaði sögu
garðsins ásamt Björgvini Steindórssyni, forstöðumanni Lystigarðsins.
Bókaunnandi með
græna fingur
Ásta Camilla Gylfadóttir er fertug í dag
B
auja fæddist í Reykjavík
20.10. 1955 og ólst þar
upp. Auk þess dvaldi
hún í sveit á sumrin í
Vík í Skagafirði frá sex
ára aldri og til 12 ára aldurs, í Suður-
sveit í eitt sumar og loks á Hoffelli í
Hornafirði: „Þar var hún Ragna,
fóstra mín, sem ég var í sambandi við
meðan hún lifði.
En það var líka yndislegt að alast
upp í Laugarásnum í Reykjavík.
Pabbi fékk þar lóð fyrir einhvern
misskilning því hann var ekki í rétt-
um flokki, en Laugarneshæðin var þá
óbyggð – dæmigert Reykjavíkurholt
með stórgrýti og klöppum og víðsýni
til allra átta. Umhverfi mitt í æsku
hefur án efa átt stóran þátt í mótun
minni en ég er mikið náttúrubarn
með þörf fyrir góða yfirsýn, nýt þess
að takast á við nýja hluti og ferðast til
ólíkra staða.“
Bauja var í Laugalækjarskóla,
lauk stúdentsprófi frá MR 1976, út-
skrifaðist úr Leiklistarskóla Íslands
1981, lauk prófum til kennnslurétt-
inda frá KHÍ 2003 og diplómaprófi á
meistarastigi í jákvæðri sálfræði frá
Endurmenntun HÍ 2015.
Bauja hefur verið leikari frá því
hún útskrifaðist úr Leiklistarskól-
anum, hefur leikið fjölda hlutverka
hjá Leikfélagi Akureyrar, Leikfélagi
Reykjavíkur og Þjóðleikhúsinu og
ýmsum öðrum húsum og leikhópum.
Hún lék m.a. í kvikmyndunum Skytt-
urnar, 1985; Ingaló, 1992; Benjamín
Dúfa, 1995, og Draumadísir, 1995.
Auk þess hefur hún leikið fjölda hlut-
verka í útvarpi og sjónvarpi, m.a. í
sjónvarpsþáttunum Ástríði. Þá hefur
hún verið leikstjóri og aðstoðarleik-
stjóri fjölda leikrita.
Meðal hlutverka Bauju má nefna
Jómfrú Ragnheiði við LA og Þjóð-
leikhúsið; Uglu í Atómstöðinni hjá
LA; Beisk tár Petru von Kant á Kjar-
valsstöðum sem fékk menningar-
verðlaun DV, Lilla klifurmús í Dýr-
unum í Hálsaskógi hjá LA; Margréti
í Dagbók Önnu Frank hjá LR, og
brúðurina í Villihunangi í Þjóðleik-
húsinu.
Bauja kenndi við Grunnskóla Hell-
issands 1976-77 og við Engjaskóla
2000-2001.
Bauja sem vísar leiðina að styrk
og vellíðan fyrir líkama og sál
Bauja þróaði og hóf síðan að kynna
og kenna sitt eigið sjálfstyrkingar-
kerfi, Baujuna, um aldamótin. Kerfið
byggist samhliða á meðvitaðri öndun
og tilfinningameðferð. Hún hefur nú
kennt kerfið og haldið fyrirlestra og
Guðbjörg Thoroddsen, leikari, kennari og ráðgjafi – 60 ára
Í Afríku Bauja með dætrum sínum, Kristínu og Ásdísi Þulu. Hér eru þær mæðgurnar í Sambúru með Masaium.
Baujan í lífsins ólgusjó
Afmælisbarnið Bauja og Askur.
Hrísey Elektra Sól Hermannsdóttir
fæddist 26. febrúar 2015 kl. 13.58.
Hún vó 3.328 g og var 51 cm löng. For-
eldrar hennar eru Díana Björg Svein-
björnsdóttir og Hermann Jón Erlings-
son.
Nýr borgari
Sandra Dís Ólafsdóttir hélt tombólu
og seldi armbönd sem hún hafði búið
til. Hún safnaði 4.393 kr. og gaf Rauða
krossinum.
Hlutavelta
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Skipholt 50c • 105 Reykjavík • 582 6000 • www.computer.is
Síðan 1986
Sendum hvert
á land sem er
ICYBOX skjástandar
Tölvur og fylgihlutir
• Styður allt að 24ra tommu skjái
• Þarf ekki að skrúfa við borðið
• Framleitt úr hágæða áli,
mjög sterkbyggt
• Hægt að snúa skjám
upprétt eða á hliðVerð 21.990 kr.
Verð 34.990 kr.