Morgunblaðið - 20.10.2015, Side 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 2015
Kominn tími á kómíska óp-eru,“ var haft eftir nýjumóperustjóra í sumar eftirnokkrar dramatískar í
röð. Og menn gengu hreint til verks;
langt er síðan (ef þá nokkurn tíma)
ópera buffa-formið hefur gefið frá
sér annað eins stuð hérlendis og síð-
astliðið laugardagskvöld. Rakarinn í
Sevilla var frumfluttur á upphafs-
árum Þjóðleikhússins en hálf öld
leið að fyrstu uppfærslu Íslensku
óperunnar árið 1984. Aftur rataði
verkið á svið upp úr aldamótum í
Gamla bíói og í Óperustúdíóinu fyrir
austan en nú fær ný kynslóð söngv-
ara að spreyta sig. Rakarinn, ásamt
litlu eldra Brúðkaupi Fígarós Moz-
arts, er ein dáðasta gamanópera
allra tíma en þar vega ótvíræð hág-
æði upp öll ólæti sem þykja almennt
heldur ófínni óperuþráður en sá
dramatíski.
Heimildir herma að Rossini hafi
fyrst mátað Rakara-forleikinn
þremur árum fyrr sem opera seria í
Aureliano in Palmira en fært yfir í
opera buffa-form er segir sitthvað
um snögg handbrögð tónskálda á
þarsíðustu öld og aðlögunargetu, en
auðvitað er verkið dramatískt á sinn
eigin hátt innst inni, þrátt fyrir baks
og ærslagang. Með þessari nýjustu
uppfærslu á Rakaranum tókst
buffa-viðskeytið á flug í meðförum
leikstjóra en liggur því miður undir
grun um að hafa rænt völdum af
hljómsveitarstjóranum.
Leikar hefjast árdegis í Sevíju-
borg. Frasinn „aldrei að treysta
arkítekt“ (ekki heldur fyrir leik-
mynd) kom fyrst upp í hugann;
klossaðir og torkennilegir munir
framarlega á sviði í trópískum past-
ellitum minntu á portbyggð kyn-
legra kofa á Miami. En það skiptir í
raun ekki öllu í leikhúsi hvar leik-
urinn hefur sinn gang; ástarbrími
og girnd hefur sitt lag alls staðar og
í öllum litum. Tilfellið er að leik-
myndin speglaði á lúmskan hátt
geðslag þess sem hefur sitthvað að
fela og annað á samviskunni. Og það
var heitt; pottkaktusar stóðu fremst
á grunnu sviðinu og fljótlega komst
portbyggðin á hreyfingu undir
stjórn þess sem manipúlerar og býr
til farvegi með kænskubrögðum.
Þrep og stigar vísuðu persónum
veginn í ýmsar áttir, ellegar opnuðu
á hjáleiðir um völundarhús tilfinn-
inga; tröppuhandrið tóku þannig á
sig form enn fleiri þrepa er lágu á
óræðari lendur líkt og kvik undir-
meðvitundin.
Athygli vakti að engin tilraun var
gerð til að hylja bakhluta tónleika-
salarins svörtu klæði; kórstæði ofan
sviðs blöstu við sem og dimmrauður
veggpanill Eldborgar líkt og á sin-
fóníutónleikum. Við það duttu leik-
munir á sviði úr fókus á stundum.
Óperunni íslensku er vissulega
nokkur vorkunn og þyrfti ef til vill
eina stjörnu í forgjöf sökum að-
stöðuleysis, og frómt frá sagt er
hver uppfærsla byggð upp af vissum
vanefnum. Lýsing var til að mynda
mjög einhæf, en nokkrar fyrri upp-
færslur hafa engu að síður náð að
skapa dýpt og blekkingar með
ágætum árangri. Annað heppnaðist
mun betur. Það má flokka undir
meðmæli ef listilega vel útfærð at-
riði, í þessu tilfelli búningar, hverfa
svo til óséð inn í heildarmyndina.
María Th. Ólafsdóttir búningahönn-
uður vísaði til ólíks tíðaranda; allt
frá rókokkó yfir í kvikmyndaútlit
fimmta áratugarins, sem gaf verk-
inu visst tímaleysi, því gjörning-
urinn á sviði er breyskur, ef ekki
klassískur; ást, girnd, kúgun og
græðgi.
En söngurinn réð lögum sínum og
lofum. Largo al factotum, búffóarían
víðfræga, stóð ekki í Oddi Arnþóri
Jónssyni barítón sem Fígaró, þótt
orkan og tæknin sem arían útheimt-
ir sé ærin. Í persónusköpun hefði
mátt kafa dýpra, maður saknaði
óvart dillandi fjörkálfs og tækifær-
issinna í bland við undirferli og
slægð þessa kostulega altmúlíg-
rakara. Fígaró birtist hins vegar
sportlega klæddur, með útgeislun
og öryggi í yfirdrifnum mæli. Undir
blálokin örlaði á þreytu sem er í
raun smotterí í stærra samhengi
hlutanna; að fylla Eldborgina með
hliðarómrýmin í hálfa gátt en halda
uppi sýningunni er í raun afrek af
ekki reyndari söngvara: Oddur var í
raun stjarna kvöldsins!
En annar söngvari fór langt með
að stela senunni. Bjarni Thor í hlut-
verki lækna-búrans sýndi meistara-
takta í söng og leik, í senn aumk-
unarverður og drepfyndinn upp
allan tilfinningaskalann. Í karakter
sem byggist á húsbóndavaldi, en í
bland við afbrýðisemi, nagandi efa
og vantraust, minnti hann á íslensk-
an sveitastórgrósser sem heldur öll-
um þráðum í hendi sér, þar með tal-
ið lífi og limum annarra. Í aríunni A
un dottor della mia sorte fór Bjarni
á kostum í nettu taugalosti, teygaði
kaffi milli sönghendinga á leift-
urhraða og gaf skipanir.
Söngur er aðal sýningarinnar og
um leið aðalástæða fyrir því að allir
listunnendur ættu að fylkja liði á
uppfærsluna. Því miður skar Gissur
Páll sig úr hópnum getulega séð.
Undir lok fyrstu senu fyrsta þáttar
hallaði til að mynda á söngvarann,
sem var langt í frá sannfærandi í
endurteknum hröðum skrúðskölum
Rossinis í dúett með Fígaró. Gissur
bætti vissulega nokkuð fyrir söng-
inn með frábærum leik, til að mynda
sem drukkinn hermaður í húsa-
kynnum læknisins, en ljóst er að
söngröddin er í afleitu formi; hún
náði við illan leik upp fyrir hið stóra
e-f-passagio tenóra.
Guðrún Jóhanna lék Rosinu af
krafti og söng eins af glæsibrag, til
að mynda upphafsaríu annarrar
senu, Una voce poco fa, óþreyjufull í
ástarbríma í kjölfar ástarsöngs
greifans. Valgerður Guðnadóttir
túlkaði Bertu með hægð þess sem
sýnir kvalræði þeirra yngri skilning.
Viðar Gunnarsson gerði Don Basilio
viðhlítandi skil, í senn belgingslegur
og lævís í rógsaríunni. Ágúst Ólafs-
son í smærra hlutverki Fiorellos gaf
tóninn með nokkrum ofleik og
ærslagangi við upphaf fyrsta þáttar;
sýningin vatt upp á sig með „chapl-
ínskum“ ærslabrag, ef ekki trúðs-
skap, sem var í senn styrkur og
veikleiki uppfærslunnar – leiknum
var nánast hleypt upp í farsa án
þess að hljómsveitin fylgdi með af
fullum dampi. Svo gripið sé til lík-
inga þá runnu hljóð og mynd ekki
trúverðuglega saman, hljómsveit-
arstjórn var í þynnra lagi og bragð-
dauf; það vantaði sárlega snerpu og
glettni í anda Rossinis. Ef til vill var
þörf á hljómsveitarstjóra með
skarpt Rakara-innsæi utan úr
heimi, sem gjörþekkir verkið og
næði að tengja við sviðsærslin.
Söngles voru snöfurlega studd af
Guðrúnu Óskarsdóttur á sembal líkt
og í uppfærslunni haustið 2002. Ef
til vill hefði gamaldags fortepiano í
stað sembals gefið enn alþýðlegri
brag og léttari í anda við hina
„chaplínsku“ áferð. Karlakórinn
söng heldur sparlega en allur með
hressara lagi þá hann birtist, ríku-
lega mannaður stórtenórum.
Óþarfi er að tíunda smærri hlut-
verk, nema þessum magnaða
skemmtifarsa altmúlíg-rakarans
barst kómískur liðsauki með nær-
veru tveggja þögulla þjónustumeyja
í leik Huldar Óskarsdóttur og
Sigurlaugar Knudsen. Þær yfirgáfu
vart sviðið og höfðu uppi trúðsleik
sem speglaði hverja uppákomu,
ýktu og þvældu með látbragði og
hreyfingum, líkt og ítrekun við söng
og leikframvindu. Þar sá leikstjór-
inn ef til vill auðvelda leið til að fylla
upp í fátæklega leikmyndina og
gæða hinar fábrotnu aðstæður
auknu lífi. Ærslagangurinn í þessari
uppfærslu á Rakaranum skapar
ferska, óhefta og um leið alþýðlega
útgáfu af verkinu, nánast óper-
ettulega, og var því vel tekið meðal
frumsýningargesta. Bent skal á að
nokkrir söngvarar skipta með sér
hlutverkum, en heilt yfir er full
ástæða til að mæla með sýningunni.
Ástir og órar í hnífskerpu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Alþýðleg „Ærslagangurinn í þessari uppfærslu á Rakaranum skapar ferska, óhefta og um leið alþýðlega útgáfu af verkinu, nánast óperettulega,“ skrifar
rýnir. Almaviva greifi (Gissur Páll Gissurarson) og þjónn hans Fiorello (Ágúst Ólafsson) syngja ásamt kórnum undir glugga Rosinu.
Íslenska óperan í Eldborg
Rakarinn í Sevilla bbbnn
Rossini: Rakarinn í Sevilla. Texti: C.
Sterbini. Gissur Páll Gissurarson (Alma-
viva greifi), Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir
(Rosina), Oddur Jónsson (Figaro),
Bjarni Thor Kristinsson (Dr. Bartolo),
Viðar Gunnarsson (Don Basilio), Val-
gerður Guðnadóttir (Berta), Ágúst
Ólafsson (Fiorello), Leikstjóri: Ágústa
Skúladóttir.
Karlakór og hljómsveit Íslensku óp-
erunnar undir stjórn Guðmundar Óla
Gunnarssonar. Frumsýning laugardag-
inn 17. október kl. 20.
INGVAR BATES
TÓNLIST
Rakarinn „Fígaró birtist […] sportlega klæddur, með útgeislun og öryggi í yfirdrifnum mæli.“
Stuttmyndin Þú og ég eftir Ásu Helgu Hjörleifsdóttur
var valin besta íslenska myndin á alþjóðlegu stutt-
myndahátíðinni Northern Wave sem haldin var í Grund-
arfirði um helgina. Dim the lights með Creep ásamt Sia
#EmbraceYourself eftir Kitty Von-Somtime var valið
besta tónlistarmyndbandið og króatíska stuttmyndin The
Chicken eftir Unu Gunjak var valin besta alþjóðlega
stuttmyndin.
Fiskiréttakeppnin mikla var haldin á laugardagskvöld-
inu og sigraði í henni Aðalsteinn Þorvaldsson en hann
hefur áður farið með sigur af hólmi í fiskiréttakeppninni.
Þú og ég besta íslenska stuttmyndin
Ása Helga
Hjörleifsdóttir
Gagnaugabein