Morgunblaðið - 20.10.2015, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 2015
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
„Ég hélt það yrði auðveldara að
skrifa bók númer tvö en sú var ekki
raunin. Bókin endaði með því að
vera 100 blaðsíðum lengri og sögu-
þráðurinn er töluvert flóknari en í
fyrri bókinni,“ segir Guðni Líndal
Benediktsson sem gaf nýverið út
sína aðra barnabók, Ótrúleg ævin-
týri afa – Leyndardómur erfingjans.
Bókin er framhald af Ótrúleg æv-
intýri afa – Leitin að Blóðey sem
segir frá ævintýrum afa sem segir
afkomanda sínum frá hremming-
unum. Fyrri bókin, Leitin að Blóð-
ey, kom út í fyrra og hreppti Ís-
lensku barnabókaverðlaunin en hún
var frumraun Guðna á ritvellinum.
Hann segist hafa fundið fyrir nokkr-
um þrýsting eftir velgengni fyrstu
bókarinnar, þá helst frá sjálfum sér.
„Maður er alltaf að keppa við sjálfan
sig, að reyna að toppa það sem mað-
ur gerði síðast. Ég held það hafi tek-
ist en ég er að minnsta kosti ánægð-
ur með útkomuna,“ segir hann um
nýjustu bókina.
Hugmyndin fengið að krauma
Hugmyndin að bókarflokknum
kviknaði fyrir fimm árum og hefur
hún því fengið að krauma áður en
hún kom út. „Mér fannst skrýtið að
heyra höfunda segja frá því að þeir
hafi leyft einhverju að malla í ákveð-
ið langan tíma en þegar ég fór að
skrifa sjálfur þá skilur maður þetta
betur,“ segir Guðni.
Aðalsöguhetja bókarinnar er, eins
og fyrr segir, afinn sem segir Krist-
jáni barnabarni sínu sögu þegar sá
síðarnefndi bíður á sjúkrahúsi. At-
burðirnir eiga sér stað níu mánuðum
eftir að fyrstu bókinni, Leitin að
Blóðey, lauk. Afinn spinnur fyrir
barnabarnið nýja sögu sem er beint
framhald af hinni og atburðarásin
tengist atburðum í fyrri bókinni.
Í stuttu máli þá nælir afinn sér í
pest sem plagar hann í nýju bókinni.
Veikindin neyða hann til að leita sér
lækningar á leynilegan spítala og á
því ferðalagi lendir hann í hremm-
ingum þar sem ýmsum óvættum
bregður fyrir eins og t.d. fjörulalla,
Lagarfljótsormi og hestaskrímsli
svo fátt sé nefnt. Þessar óvættir og
yfirnáttúrulegar verur eiga uppruna
sinn að rekja í íslenskan sagnaarf og
einnig erlendan.
Ævintýri og tölvuleikir
„Ég sæki innblástur úr öllum átt-
um. Allt frá íslenskum þjóðsögum,
klassískum sögum af Harry Potter,
Hringadróttinssögu, þekktra teikni-
mynda persóna, tölvuleikja og í raun
allt sem vekur hughrif og tilfinn-
ingaleg viðbrögð árhorfandans,“
segir Guðni spurður um áhrifavalda.
Hann segir því bókina vera sam-
ansafn úr alls kyns miðlum sem end-
ar í einum graut.
Leyndardómur erfingjans er að-
eins drungalegri en fyrri sagan. Í
þetta skipti er engum treystandi og
ráðgátan er ekki augljós. Söguhetj-
an þarf að forða sér frá ýmsum
ókunnum hættum. Hin illu öfl eru
erfiðari viðureignar að því leyti að
ekki er vitað hvert á að líta til að
sigrast á þeim.
Með því að vísa í þekkt þjóðsagn-
arfyrirbæri eins og Lagarfljótsorm-
inn þá vill Guðni hvetja börnin til að
kynna sér sögur um þessi fyrirbæri
sem er að finna í hinum ýmsu þjóð-
sögum.
Fróðleg ferðalög um landið
Ísland er sögusviðið og koma fyrir
hinir ýmsu staðir á landinu. „Ég
bind vonir við að þegar allar þrjár
bækurnar verða komnar út þá geta
ferðalög barna með foreldrum sín-
um um landið orðið áhugaverðari.
Þá geta þau séð hina ýmsu staði,
staðina sem afi var á og barðist við
sjóræningja, lenti í ryskingum við
Lagarfljótsorminn og til dæmis
hestaskrímslið,“ segir Guðni.
Hann ólst sjálfur upp í sveit í
Borgarfirðinum, á tamningarstöð
þar sem faðir hans, Benedikt Lín-
dal, stundar tamningar. Guðni segir
hestaskrímslið ekki hafa sprottið
upp af ótta við hesta, nema síður sé.
„Kannski verða einhverjir hræddir
við hesta eftir þetta,“ segir hann og
hlær. Sögupersónan afinn á sér
fyrirmynd í föður Guðna. „For-
eldrar mínir voru duglegir að segja
okkur systkinum sögur. Þær hafa
blundaði í manni þangað til maður
segir sjálfur sögur.“ Það er ljóst að
lifandi frásagnargleði og frjálsræðið
í sveitinni hefur haft mótandi áhrifa
á sköpunargáfu þeirra systkina en
bróðir hans Ævar er einnig rithöf-
undur og leikari.
„Miðað við að við bræðurnir erum
báðir rithöfundar þá hefur eitthvað
virkað í uppeldinu,“ segir hann kím-
inn.
Skrifar bók samhliða
meistaranámi í handritsgerð
Guðni lumar á enn fleiri sögum og
ævintýrum en stefnan er að setja
saman þriðju bókina með sömu
söguhetjunum sem saman mynda
þríleik.
„Ég hafði alltaf í huga að afi
myndi luma á fleiri ævintýrum.
Upphaflega var stefnan að sjá
hvernig fyrstu bókinni yrði tekið.
Ég átti aldrei von á því að hún
myndi vinna verðlaun en það var
gott start,“ segir Guðni. Ef allt
gengur að óskum er stefnt að því að
þriðja bókin og sú síðasta í þrí-
leiknum komi út á næsta ári. „Mér
fannst rökrétt að halda áfram og
hamra járnið á meðan það er heitt.
Krakkar vaxa svo fljótt úr grasi og
það er auðvelt að missa af þeim ef
maður bíður of lengi með næstu
bók,“ segir Guðni sem vill greinilega
halda í lesendahópinn sinn. Það
verður því nóg að gera hjá Guðna á
næsta ári en hann stundar meist-
aranám í handritsgerð við háskól-
ann Screen Academy Scotland í Ed-
inborg en náminu lýkur næsta
haust.
Í náminu felast mikil skrif eins og
nafnið gefur til kynna og töluverður
lestur og þetta fer því nokkuð vel
saman. Í tilefni útgáfu bókarinnar
verður útgáfuhóf á sunnudaginn kl.
14 í Eymundsson í Kringlunni.
Morgunblaðið/Eggert
Rithöfundur Guðni Líndal Benediktsson er í meistaranámi í handritsgerð og sendir nú frá sér aðra barnabók sína.
Ekki auðveldara að
skrifa bók númer tvö
Ótrúleg ævintýri afa – Leyndardómur erfingjans
eftir Guðna Líndal Benediktsson er önnur bók í þríleik
Billy Elliot –★★★★★ , S.J. Fbl.
Billy Elliot (Stóra sviðið)
Fös 23/10 kl. 19:00 Fös 13/11 kl. 19:00 Sun 22/11 kl. 19:00
Fös 6/11 kl. 19:00 Fös 20/11 kl. 19:00 Fös 27/11 kl. 19:00
Fim 12/11 kl. 19:00 Lau 21/11 kl. 19:00 Lau 28/11 kl. 19:00
Fjölskyldusýning í hæsta gæðaflokki - ósóttar pantanir seldar daglega
Dúkkuheimili (Stóra sviðið)
Sun 25/10 kl. 20:00 aukas. Sun 1/11 kl. 20:00 Sun 8/11 kl. 20:30
Allra síðustu sýningar!
At (Nýja sviðið)
Fim 22/10 kl. 20:00 14.k Fös 23/10 kl. 20:00 15.k
Allra síðustu sýningar!
Kenneth Máni (Litla sviðið)
Fös 23/10 kl. 20:00 6.k. Fös 6/11 kl. 20:00 8.k. Fös 20/11 kl. 20:00 10.k
Fös 30/10 kl. 20:00 7.k. Fös 13/11 kl. 20:00 9.k
Kenneth Máni stelur senunni
Lína langsokkur (Stóra sviðið)
Sun 25/10 kl. 13:00 7.k. Sun 1/11 kl. 13:00 8.k. Sun 8/11 kl. 13:00 9.k
Sterkasta stelpa í heimi kemur aftur
Öldin okkar (Nýja sviðið)
Fös 30/10 kl. 20:00 1.k. Fim 5/11 kl. 20:00 4.k. Sun 8/11 kl. 20:00 7.k.
Lau 31/10 kl. 20:00 2 k. Fös 6/11 kl. 20:00 5.k. Fim 12/11 kl. 20:00 8.k.
Sun 1/11 kl. 20:00 3.k. Lau 7/11 kl. 20:00 6.k. Fös 13/11 kl. 20:00 9.k
Hundur í óskilum snúa aftur
Sókrates (Litla sviðið)
Mið 21/10 kl. 20:00 8.k. Þri 3/11 kl. 20:00 11.k Lau 21/11 kl. 20:00 14.k
Fim 22/10 kl. 20:00 9.k Fim 5/11 kl. 20:00 12.k Sun 22/11 kl. 20:00 15.k
Lau 31/10 kl. 20:00 10.k Lau 14/11 kl. 20:00 13.k Mið 25/11 kl. 20:00
Trúðarnir hafa tekið yfir dauðadeildina
Vegbúar (Litla sviðið)
Þri 20/10 kl. 20:00 4.k. Fim 29/10 kl. 20:00 8.k. Sun 8/11 kl. 20:00 12.k
Lau 24/10 kl. 20:00 5.k. Sun 1/11 kl. 20:00 9.k Sun 15/11 kl. 20:00 13.k
Sun 25/10 kl. 20:00 6.k. Mið 4/11 kl. 20:00 10.k Mið 18/11 kl. 20:00
Mið 28/10 kl. 20:00 7.k. Lau 7/11 kl. 20:00 11.k Fim 19/11 kl. 20:00
Nýtt verk þar sem KK sýnir á sér óvænta hlið
Mávurinn (Stóra sviðið)
Mið 21/10 kl. 20:00 2 k. Fim 29/10 kl. 20:00 5.k. Lau 7/11 kl. 20:00 8.k.
Fim 22/10 kl. 20:00 3.k. Lau 31/10 kl. 20:00 6.k. Lau 14/11 kl. 20:00 9.k
Lau 24/10 kl. 20:00 4.k. Mið 4/11 kl. 20:00 7.k.
Krassandi uppfærsla á kraftmiklu meistaraverki
Hystory (Litla sviðið)
Þri 27/10 kl. 20:00 aukas. Mið 11/11 kl. 20:00 aukas.
Allra síðustu sýningar!
65 20151950
5511200 | Hverfisgata 19 | leikhusid.is | midasala@leikhusid.is
Í hjarta Hróa hattar (Stóra sviðið)
Fim 22/10 kl. 19:30 15.sýn Mið 11/11 kl. 19:30 Aukas. Fim 26/11 kl. 19:30 Aukas.
Fös 23/10 kl. 19:30 16.sýn Fim 12/11 kl. 19:30 23.sýn Lau 28/11 kl. 19:30 29.sýn
Mið 28/10 kl. 19:30 17.sýn Fös 13/11 kl. 19:30 24.sýn Sun 29/11 kl. 19:30 30.sýn
Fös 30/10 kl. 19:30 18.sýn Lau 14/11 kl. 15:00 Aukas. Lau 5/12 kl. 19:30 31.sýn
Fim 5/11 kl. 19:30 20.sýn Lau 14/11 kl. 19:30 26.sýn Sun 6/12 kl. 19:30 32.sýn
Fös 6/11 kl. 19:30 Aukas. Lau 21/11 kl. 19:30 27.sýn Fös 11/12 kl. 19:30 35.sýn
Sun 8/11 kl. 19:30 22.sýn Sun 22/11 kl. 19:30 28.sýn Lau 12/12 kl. 19:30 36.sýn
Eldfjörug fjölskyldusýning, uppfull af leikhústöfrum í anda Vesturports!
Móðurharðindin (Kassinn)
Fös 23/10 kl. 19:30 21.sýn Fim 5/11 kl. 19:30 24.sýn Sun 15/11 kl. 19:30 27.sýn
Sun 25/10 kl. 19:30 22.sýn Sun 8/11 kl. 19:30 25.sýn
Sun 1/11 kl. 19:30 23.sýn Lau 14/11 kl. 19:30 26.sýn
Gamanleikur um samskipti móður og barna og harkaleg átök kynslóðanna.
Yfir til þín - Spaugstofan 2015 (Stóra sviðið)
Lau 24/10 kl. 19:30 Frums. Lau 31/10 kl. 20:00 3.sýn Fim 19/11 kl. 19:30 6.sýn
Lau 24/10 kl. 22:30 2.sýn Lau 7/11 kl. 22:30 5.sýn Lau 21/11 kl. 22:30 7.sýn
Sprellfjörug gleðisýning fyrir alla fjölskylduna!
Heimkoman (Stóra sviðið)
Sun 25/10 kl. 19:30 5.sýn Mið 4/11 kl. 19:30 3.sýn Fös 20/11 kl. 19:30 10.sýn
Fim 29/10 kl. 19:30 6.sýn Lau 7/11 kl. 19:30 8.sýn Fös 27/11 kl. 19:30 11.sýn
Sun 1/11 kl. 19:30 7.sýn Sun 15/11 kl. 19:30 9.sýn Fös 4/12 kl. 19:30 12.sýn
Meistaraverk Nóbelsskáldsins Pinters.
Kuggur og leikhúsvélin (Kúlan)
Lau 24/10 kl. 13:30 Lau 24/10 kl. 15:00
Kuggur og félagar eru komnir aftur í Kúluna.
(90)210 Garðabær (Kassinn)
Fös 30/10 kl. 19:30 Frums. Lau 7/11 kl. 19:30 4.sýn Sun 22/11 kl. 19:30 7.sýn
Lau 31/10 kl. 19:30 2.sýn Fim 12/11 kl. 19:30 5.sýn
Fös 6/11 kl. 19:30 3.sýn Fös 13/11 kl. 19:30 6.sýn
Klókur ertu, Einar Áskell (Brúðuloftið)
Sun 25/10 kl. 16:00 Sun 8/11 kl. 14:00 Sun 15/11 kl. 16:00
Sun 1/11 kl. 14:00 Sun 8/11 kl. 16:00
Sun 1/11 kl. 16:00 Sun 15/11 kl. 14:00
Hinn uppátækjasami Einar Áskell í fallegri og skemmtilegri brúðusýningu
DAVID FARR
HARÐINDIN
Mánabein