Morgunblaðið - 20.10.2015, Side 36
ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 293. DAGUR ÁRSINS 2015
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 488 ÁSKRIFT 5295 HELGARÁSKRIFT 3307 PDF Á MBL.IS 4696 I-PAD ÁSKRIFT 4696
1. Lést um borð í flugvél
2. Langt frá því að vera einkaskjöl
3. 19 ára knapi ríkastur Óslóarbúa
4. Sjö heitustu forsetaframbjóðendurnir
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Uppsprettan verður haldin í
fimmta sinn í Tjarnarbíói í kvöld. Á
henni fá leikarar og leikstjórar ný ís-
lensk stuttverk til að vinna með sól-
arhring fyrir sýningu og hafa aðeins
þann tíma til að kynna sér handritið
og átta sig á möguleikum þess.
Þremur tímum fyrir sýningu hittast
listamennirnir í fyrsta sinn og hefja
æfingar sem eru opnar almenningi
frá kl. 19.30 til 21. Gestir geta fylgst
með æfingum í húsinu, velt fyrir sér
vinnuaðferðum og ákvarðanatökum í
sambandi við verkin, jafnvel lesið
verkin sjálfir og velt þeim fyrir sér,
eins og segir í tilkynningu. Verkin
verða sýnd að æfingu lokinni, kl. 21,
og eftir sýningu býðst gestum að
viðra sínar hugmyndir og vangaveltur
og spyrja aðstandendur sýninganna
að því sem þá þyrstir að vita. List-
rænir stjórnendur Uppsprettunnar
eru Jenný Lára Arnórsdóttir og Ingi
Hrafn Hilmarsson.
Fimmta Uppsprettan
haldin í Tjarnarbíói
Kvartett gítar-
leikarans Sigurðar
Rögnvaldssonar
leikur í kvöld kl.
20.30 á djass-
kvöldi KEX hostels.
Sigurður fagnar út-
gáfu nýrrar plötu
með eigin tónlist
sem byggist á
ævintýraskógi fullum af skrýtnum og
hættulegum verum og er tónlistinni
lýst sem framsæknum djassi með
áhrifum frá rokktónlist. Auk Sigurðar
skipa kvartettinn Steinar Sigurðarson
á saxófón, Valdimar Kolbeinn Sigur-
jónsson á kontrabassa og Magnús
Trygvason Eliassen á trommur.
Ævintýraskógur með
skrýtnum verum
Á miðvikudag Minnkandi norðanátt og kólnandi veður. Norðan 5-
13 m/s þegar líður á morguninn. Rigning á láglendi nyrðra og
slydda til fjalla en bjartviðri sunnan jökla. Hiti 1 til 7 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðaustan og austan 10-18 m/s með rign-
ingu suðvestantil, en norðaustlægari norðvestantil. Sums staðar
talsverð rigning sunnan- og vestanlands seinnipartinn.
VEÐUR
„Hún passar mjög vel inn í
liðið, er opin og hress. Það er
örugglega ekkert auðvelt að
koma hingað frá Portúgal og
kunna ekkert í tungumálinu,
en hún lætur það ekki á sig
fá. Hún er mjög hress og tek-
ur virkan þátt í öllu,“ segir
leikmaður kvennaliðs Hauka
í handknattleik um nýjasta
liðsmanninn, Mariu Silva frá
Portúgal, sem er leikmaður
6. umferðar hjá Morgun-
blaðinu. »3
Hún passar mjög
vel inn í liðið
„Við erum auðvitað allir í fullri
vinnu, með fjölskyldu og
svona, og komum misjafn-
lega stemmdir á æf-
ingar, en hann
nær að keyra
mann upp þann-
ig að maður
verður gjör-
samlega brjál-
aður. Það er
gríðarlega dýr-
mætt. Þetta smit-
ar svakalega út
frá sér, menn taka
undir þetta og
æfingarnar
verða miklu
betri en ella,“
segir Helgi Freyr
Margeirsson úr
Tindastóli um
leikmann 1. um-
ferðar í körfu-
boltanum, Darrel
Lewis. »3
Darrel Lewis gerir æf-
ingar Tindastóls betri
KR-ingar lentu í miklum vandræð-
um með Þór frá Þorlákshöfn í
Dominos-deild karla í körfubolta í
gærkvöld, sérstaklega með hinn
hávaxna Ragnar Nathanaelsson,
en knúðu fram sigur að lokum,
90:80. Haukar fóru illa að ráði
sínu í Keflavík þar sem þeir töp-
uðu fyrir heimamönnum í tvífram-
lengdum leik, 109:104. »2-4
KR lenti í miklu
basli með Ragnar
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Bollakökur blandaðar saltlakkrís og
tyrkneskum pipar fengu góðar við-
tökur og seldust grimmt í kökusjopp-
unni Sautján sortum á Grandagarði í
Reykjavík sem opnuð var um
helgina. „Við leggjum okkur eftir því
að kökurnar hafi bragð og útlit
heimabaksturs og hér vinnum við allt
frá grunni. Vörumerkjakökur kunna
að vera góðar, en við finnum vel að
fólk leitar eftir því bragði og tilfinn-
ingu sem fylgir jafnan kökum sem
bakaðar eru í eldhúsinu heima,“ seg-
ir eigandinn, Auður Ögn Árnadóttir.
Hún er eigandi kökusjoppunnar
sem dregur nafn sitt af frægum lýs-
ingum í Kristnihaldi undir Jökli,
skáldsögu Halldórs Laxness.
Hver arða kláraðist
Sautján sortir eru viðbót og enn
ein skrautfjöðrin í þá flóru matar-
búða sem nú eru komnar á hafnar-
svæðið. Þar eru fyrir ísbúð, veitinga-
staðir, verslun með heimaunnar
afurðir og fleira slíkt. Og nú eru það
kökurnar sem bakaðar eru eftir upp-
skriftum Auðar og Írisar Bjarkar
Óskardóttur.
„Við höfum á okkar blöðum um
130 uppskriftir og þeim fjölgar og
þetta þróast áfram. Það er auðvitað
mjög breytilegt frá degi til dags eftir
hvaða uppskriftum við bökum. En
þær eru sjaldnast fleiri en sautján,
nafninu samkvæmt,“ segir Auður
Ögn sem fyrir á og rekur Salt eldhús
– þangað sem fólk getur mætt og
fengið leiðsögn í matargerð; bæði í
bakstri og hefðbundinni matargerð.
Stefna Faxaflóahafna hefur verið
sú að gæða Grandasvæðið lífi með
nýrri starfsemi. Samkvæmt því var
auglýst eftir fleiri leigjendum í ver-
búðirnar sl. vor og sendi Auður þá
inn umsókn sem var samþykkt.
„Viðtökurnar síðasta laugardag
voru frábærar. Við opnuðum um há-
degi og klukkan fimm var ekki arða
eftir. Þá lokuðum við í klukkutíma og
bökuðum nýjan skammt. Fólk er
sannarlega spennt fyrir ýmsum nýj-
ungum, en vill líka það kunnuglega.
Heimabökuð marengstera með
súkkulaði, rjóma og jarðarberjum er
nokkuð sem stendur alltaf fyrir
sínu.“
Eftirlætið er aldrei víst
Hjá Sautján sortum er samsetn-
ingin á bakstri dagsins aldrei hin
sama. Fólk getur aldrei gengið að
sínu eftirlæti vísu, en það er þó alltaf
eitthvað spennandi í boði. Þá er einn-
ig á borðum bakstur án eggja, mjólk-
ur og annarra slíkra ofnæmisvalda.
Sömuleiðis býðst að senda inn upp-
skriftir til dæmis í gegnum Facebook
og reynt er að bregðast við slíku eftir
föngum, segir Auður Ögn. Þá eru
drykkirnir á Sautján sortum sérvald-
ir, það er annaðhvort kaffi eða köld
mjólk sem getur til dæmis verið með
súkkulaði-, jarðarberja- eða vanillu-
bragði.
„Matarmenning landans hefur
breyst mikið núna síðustu ár. Fólk
leitar meira en áður til hins heima-
gerða og upprunalega. Margir þeirra
matarstaða sem hafa verið opnaðir á
síðustu árum starfa í þessum anda og
fjölgun ferðamanna sem til landsins
koma skapar markaðinn,“ segir
sautján sorta konan að síðustu.
Sautján sorta konur á Granda
Heimabakstur
slær í gegn og
kökurnar góðar
Morgunblaðið/Eggert
Bakstur Auður Ögn Árnadóttir veitingakona til vinstri og Íris Björk Óskarsdóttir bakari með kökuúrval dagsins.
Gómsætt Bollakökur eru bestar og
berin bæta, hressa og kæta.