Morgunblaðið - 31.10.2015, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 2015
Laufey Rún Ketilsdóttir
laufey@mbl.is
„Það hafa fáir gert sér grein fyrir
því að Danakonungar reyndu að
minnsta kosti fjórum sinnum að
selja Ísland, það voru gerðar þrjár
skýrslur í Bretlandi um að hertaka
Ísland og það var gerð ein skýrsla
í Bandaríkjunum um að kaupa Ís-
land og í móðuharðindunum var
talað um að rýma landið,“ segir
Hannes Hólmsteinn Gissurarson,
prófessor, um efnistök fyrirlestrar
sem hann hélt á Þjóðarspeglinum,
kynningu á rannsóknum á fé-
lagsvísindasviði Háskóla Íslands í
gærdag. Málstofan var vel sótt.
Í umræðum var því velt upp
hvort það hefði verið Íslandi gott
eða slæmt að heyra undir Dana-
konung. Taldi Hannes líklegra að
íslensk tunga hefði tapast hefðum
við heyrt undir Breta en Dani.
Vera landsins undir veiku stór-
veldi hefði í raun verndað tungu-
málið.
Kom ekki eigninni í verð
Danakonungur reyndi í þrígang
að selja Ísland frá sér til Hinriks
VIII, á árunum 1518, 1524 og síð-
ast 1535. Á þeim tíma var landið
falt fyrir um fimmtíu þúsund flór-
ínur sem jafngildir um 6,5 millj-
ónum bandaríkjadala, eða um 830
milljónum íslenskra króna.
Því næst reyndi Kristján IV að
selja Hansakaupmönnum landið
árið 1645. Reyndi hann að selja
það fyrir fimmhundruð þúsund
thalers sem á raunvirði eru um 6,4
milljónir bandaríkjadala eða 820
milljónir íslenskra króna. „Dana-
konungur var alltaf í fjárhags-
vandræðum og þetta var eign sem
hann var að reyna að koma í verð.
Hann kom landinu þó aldrei í verð,
ekki einu sinni fyrir þessa smá-
upphæð,“ segir Hannes en landið
hafi verið afar lítils virði því skatt-
tekjurnar hafi verið ónógar og
fiskveiðar ekki leyfðar.
Þegar Bandaríkjamenn veltu
fyrir sér kaupum á Íslandi höfðu
þeir nýlega fest kaup á Alaska af
Rússum. Verðið sem um var rætt
við það tækifæri var svipað og áð-
ur. „Það varð aldrei að alvöru að
Bandaríkjamenn keyptu Ísland og
það var hlegið niður á Bandaríkja-
þinginu.“
Hvar værum við í dag?
Í fyrirlestrinum fór Hannes
einnig yfir það hvað framtíðin
hefði borið í skauti sér, ef af kaup-
unum hefði orðið. „Hvort við hefð-
um orðið ríki í Bandaríkjunum
eins og Alaska eða sjálfstjórnar-
svæði innan Bandaríkjanna eins
Jómfrúeyjarnar. Eða hvort við
hefðum orðið sjálfstjórnarsvæði í
Bretaveldi eins og Guernsey eða
hvort við hefðum orðið útkjálki
eins og Hjaltland.“
Ísland ítrekað falboðið en of lítils virði
Danakonungur reyndi að selja
Ísland fyrir um 830 milljónir króna
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Ísland Danir reyndu að selja landið, Bretar að hertaka það og Banda-
ríkjamenn að kaupa það. Hannes Hólmsteinn flutti um það fyrirlestur.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Vegna athugasemda frá lögfræð-
ingum RÚV voru upplýsingar felld-
ar úr nýrri skýrslu um rekstur og
starfsemi félagsins frá árinu 2007,
sama dag og hún var kynnt á blaða-
mannafundi.
Eyþór Laxdal
Arnalds var for-
maður nefnd-
arinnar.
Haft er eftir
Magnúsi Geir
Þórðarsyni út-
varpsstjóra í
Morgunblaðinu í
dag að það sé
ekki rétt sem
fram kemur í skýrslunni að stjórn
RÚV geri kröfu um alls 5,9 millj-
arða viðbótarframlag. Það var sagt
skiptast í 2,5 milljarða aukatekjur
vegna óbreytts útvarpsgjalds, yfir-
töku ríkisins á 3,2 milljarða skulda-
bréfi við LSR og 182 milljóna króna
viðbótarframlag á þessu ári.
Fengu gögnin frá RÚV
Spurður um þetta segir Eyþór að
fulltrúar RÚV hafi haft skýrsluna
til yfirferðar vikum saman.
„Við byggðum okkar vinnu að
miklu leyti á gögnum frá RÚV. Við
áttum samstarf við RÚV um gagna-
öflun. Þegar skýrslan var tilbúin
gáfum við þeim kost á að koma á
framfæri athugasemdum og áttum
fjölmarga fundi með þeim síðustu
fimm vikurnar, þar sem farið var
yfir ýmis efnisatriði skýrslunnar.
Það bárust fjölmargar athuga-
semdir frá fulltrúum RÚV en þeir
gerðu ekki athugasemdir við að
þetta væri þeirra krafa um fjár-
magn. Það er ljóst að það er stefnt
að því hjá stjórn RÚV að fá stór-
aukið ríkisframlag. Við hefðum
viljað birta meira en okkur var tjáð
að RÚV vildi ekki kynna ákveðin
atriði til Kauphallar. Það er RÚV
að gera það en ekki okkar. Þannig
að við felldum á brott atriði að ósk
RÚV,“ segir Eyþór.
Útgáfa skýrslunnar hefur valdið
miklum titringi hjá RÚV en stjórn
félagsins hefur áður vísað til til-
kynningarskyldu til Kauphallar
vegna skuldabréfs við LSR.
Sem áður segir er rætt við út-
varpsstjóra í blaðinu í dag. »16
RÚV lét
stöðva
birtingu
Ný skýrsla veldur
titringi hjá RÚV
Eyþór
Arnalds
Guðbjartur Hannesson, þingmaður og fyrrver-
andi ráðherra, var jarðsunginn í gær við hátíð-
lega athöfn í Akraneskirkju. Mikið fjölmenni var
við útförina en Guðbjartur átti að baki farsælan
feril sem stjórnmálamaður og skólastjóri auk
þess að vera virkur í starfi skátahreyfingarinnar
til margra ára. Guðbjartur lætur eftir sig eigin-
konu, Sigrúnu Ásmundsdóttur, og tvær dætur,
þær Birnu og Hönnu Maríu. Eðvarð Ingólfsson,
sóknarprestur í Akraneskirkju, jarðsöng en lík-
menn voru (f.v.) þau Ingunn Jónasdóttir, Árni
Páll Árnason, Sigurður Arnar Sigurðsson, Anna
Sigrún Baldursdóttir, Hrönn Ríkharðsdóttir, Ás-
mundur Ásmundsson, Hörður Helgason og
Magnús Ásmundsson.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Guðbjartur Hannesson jarðsunginn á Akranesi
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
Tólf starfsmönnum var sagt upp hjá
365 miðlum í gær, níu karlmönnum og
þremur konum. Sigríður Elva Vil-
hjálmsdóttir og Ásgeir Erlendsson
eru meðal þeirra en þau hafa birst
reglulega á skjám landsmanna. Ás-
geir í Íslandi í dag og Sigríður með
innslög og þætti. Þá er hún ein af fjór-
um einstaklingum sem taka þátt í
þættinum Örir Íslendingar sem sýnd-
ur er á Stöð 2 þar sem fullorðnir ein-
staklingar lýsa baráttu sinni við
ADHD og ofvirkni.
Aðrir voru á dagskrársviði, meðal
annars Gísli Berg Guðlaugsson fram-
leiðslustjóri en hann hefur verið einn
af aðalmönnunum á bak við tjöldin í
stóru þáttaröðum Stöðvar 2, nú síðast
í Ísland got talent. Eva Georgsdóttir
tekur við hans starfi. Sævar Freyr
Þráinsson, forstjóri fyrirtækisins,
sagði í samtali við mbl.is í gær um
ástæður uppsagnanna að um skipu-
lagsbreytingar sé að ræða á sviðinu
með breyttri sýn sem Jón Gnarr komi
til með að stýra. Undir dagskrársvið
heyrir sjónvarp og útvarp hjá 365
miðlum, auk þess sem íþróttadeild er
þar undir. Engar uppsagnir voru á
íþróttadeildinni. Samhliða þessum
uppsögnum hefur Hrefna Lind Heim-
isdóttir verið ráðin ritstjóri dagskrár-
sviðs og mun hún stýra deildinni
ásamt Jóni Gnarr. Þau hafa unnið ná-
ið saman, nú síðast að bókinni Útlag-
inn. Hrefna mun einnig stýra nýrri
handritsdeild sem verður sett á lagg-
irnar hjá fyrirtækinu.
Óráðið með aðrar breytingar
Jóhanna Margrét Gísladóttir var
ráðin dagskrárstjóri en hún var fram-
kvæmdastjóri sjónvarpssviðs. Sævar
sagðist ekki geta svarað spurningum
um hvort frekari breytingar eða upp-
sagnir væru framundan, ekkert hefði
verið ákveðið um það að svo stöddu.
Hjá fyrirtækinu vinna um 400 manns.
12 sagt upp hjá 365
Breytingar í Skaftahlíð Einn af aðalmönnum á bak við
tjöldin látinn fara Frekari breytingar ekki útilokaðar
Morgunblaðið/Eggert
365 Annað árið í röð segir 365 upp
fólki á þessum mánaðamótum.
Elín Björg Jóns-
dóttir hlaut í gær
endurkjör sem
formaður BSRB
á 44. þingi
bandalagsins. Þá
var Árni Stefán
Jónsson, formað-
ur SFR, endur-
kjörinn 1. vara-
formaður BSRB
og Garðar Hilm-
arsson, formaður Starfsmanna-
félags Reykjavíkurborgar, endur-
kjörinn 2. varaformaður.
Talsverðar breytingar eru á stjórn-
inni en áður höfðu allir formenn að-
ildarfélaga sæti í stjórn. Nú munu
hins vegar níu menn sitja í stjórn en
nýtt formannaráð hefur einnig ver-
ið sett á laggirnar. Þau sem hlutu
kjör til stjórnar eru: Arna Jakobína
Björnsdóttir, Halla Reynisdóttir,
Helga Hafsteinsdóttir, Karl Rúnar
Þórsson, Kristín Guðmundsdóttir
og Snorri Magnússon.
Forysta BSRB hlýtur
endurkjör á 44.
þingi sambandsins
Elín Björg
Jónsdóttir