Morgunblaðið - 31.10.2015, Side 51

Morgunblaðið - 31.10.2015, Side 51
fæddri Bartl, og eignuðust þau einka- soninn, Einar, í árslok 1958. Eftir komuna til Íslands, 1963, settust þau að í Neskaupstað og bjuggu þar til ársloka 2005, en fluttu þá um sjötugt til Reykjavíkur. Allan þennan tíma gegndi Kristín læknisstörfum við Fjórðungssjúkra- húsið í Neskaupstað. Hjörleifur kenndi við Gagnfræðaskólann í Nes- kaupstað til 1973 en starfaði jafn- framt og ætíð síðan að fjölmörgum verkefnum. Árið 1978 var hann kjör- inn á Alþingi þar sem hann átti sæti til aldamóta, alls í 21 ár. Hann kom upp Náttúrugripasafninu í Neskaup- stað, rannsakaði útbreiðslu og hæðar- mörk plantna í Austfjarðafjallgarði og norðan Vatnajökuls. Um 1970 hafði hann frumkvæði að Safna- stofnun Austurlands, Náttúru- verndarsamtökum Austurlands (NAUST), sat í Náttúruverndarráði 1972-78 og veitti byggingarnefnd Menntaskóla á Egilsstöðum forystu þar til sá skóli tók til starfa 1979. „Áhugi á náttúrufræði og land- fræði hefur verið ættarfylgja allt frá því að langalangafi okkar, Guttormur Pálsson, komst í ritið Flora Danica (útg. 1761) í Skálholti hjá Hannesi Finnssyni upp úr 1790. Ég heiti reyndar í höfuðið á Hjör- leifi presti Þórðarsyni (d. 1786), móð- urafa Guttorms. Tengdasonur Gutt- orms og langafi okkar, Sigurður Gunnarsson, síðast prestur á Hall- ormsstað, þekkti flestum betur til há- lendis Íslands fyrir daga Þorvalds Thoroddsen. Guttormur faðir okkar var skógarvörður á Hallormsstað á fimmta tug ára að við tók Sigurður Blöndal frændi okkar. Einar, sonur okkar Kristínar, er dr. í sjávarlíffræði og Hjörleifur, sonur hans, er í mast- ersnámi í frumulíffræði í Kaup- mannahöfn. Svona hefur þessi þráður haldist óslitið í meira en tvær aldir,“ segir Hjörleifur. Hjörleifur var ráðherra iðnaðar- og orkumála í tveimur ríkisstjórnum 1978-83. Hann er m.a. þekktur fyrir störf sín að umhverfismálum innan og utan þings og hafði frumkvæði að friðlýsingu margra landsvæða, svo sem Lónsöræfa og Vatnajökuls- þjóðgarðs. Eftir hann hafa frá árinu 1974 komið út 12 bækur, þar af sjö ár- bækur Ferðafélags Íslands, með myndum, oftast eftir hann sjálfan. Hann sinnir ritstörfum og fleiri áhugamálum dag hvern. Systkini og foreldrar Alsystkini Hjörleifs: Margrét, f. 28.9. 1932, d. 11.2. 2001, kennari í Reykjavík; Loftur, f. 5.4. 1938, pró- fessor emeritus við KHÍ, og Elísabet, f. 26.5. 1943, fyrrrv. félagsráðgjafi í Reykjavík. Hálfsystkini, samfeðra: Bergljót, f. 5.4. 1912, d. 12.4. 2003, húsfreyja í Reykjavík; Páll, f. 25.5. 1913, d. 17.11. 2002, skógfræðingur á Hallormsstað; Sigurður, f. 27.7. 1917, d. 27.9. 1968, bóndi á Hallormsstað, og Þórhallur, f. 17.2. 1925, d. 8.5. 2009, kennari. Foreldrar Hjörleifs voru Gutt- ormur Pálsson, f. 12.7. 1884, d. 5.6. 1964, skógarvörður á Hallormsstað, og s.k.h., Guðrún Margrét Pálsdóttir, f. 24.9. 1904, d. 19.11. 1968, húsfreyja. Úr frændgarði Hjörleifs og Gunnars Guttormssona Hjörleifur og Gunnar Guttormssynir Gyðríður Þórhalladóttir húsfr. á Syðri-Steinsmýri, bróðurdóttir Halldóru, langömmu Guðmundar, föður Alberts alþm. og ráðherra Elías Gissurarson b. á Syðri-Steinsmýri í Meðallandi Margrét Elíasdóttir húsfr. í Þykkvabæ Páll Sigurðsson b. í Þykkvabæ í Landbroti Guðrún M. Pálsdóttir húsfr. á Hallormsstað Guðríður Bjarnadóttir húsfr. í Nýjabæ Sigurður Sigurðsson b. í Nýjabæ í Meðallandi Sigrún Pálsdóttir forstöðuk. Húsmæðra- skólans á Hallormsstað Gunnar Gunnarsson yngri Gyðríður Pálsdóttir húsfr. í Seglbúðum Sigurður Blöndal skóg- ræktarstj. Gunnar Gunnarsson hreppstj. á Ljótsstöðum S. Björn Blöndal form. Borgar- ráðs Gunnar Gunnarsson rithöfundur Vilhjálmur Hjálmarss. alþm. og ráðherra á Brekku Vilhjálmur Einarsson skólameistari og Ólympíuverðlaunahafi Hjálmar Vilhjálms- son fiskifr. Valgeir Guðjónsson tónlistarm. Sigurður Gunnarsson prófastur og alþm. á Hallormsstað Bergljót Guttormsdóttir húsfr. á Hallormsstað Elísabet Sigurðardóttir húsfr. á Hallormsstað Páll Vigfússon b. og ritstj. á Hallorms- stað í Skógum Guttormur Pálsson skógarvörður á Hallormsstað Vigfús Guttormsson pr. í Ási í Fellum, systursonur Ingunnar, langömmu Þorsteins Gíslasonar ritstj. og skálds Björg Stefánsdóttir húsfr. í Ási Stefanía Sigurðard. húsfr. á Brekku í Mjóafirði Björg Sigurðard. húsfr. á Hánefs- stöðum Árni Vilhjálmss. b. á Hánefs- stöðum Sigríður Vilhjálmsd. húsfr. á Hafranesi við Reyðarfjörð Tómas Árnason ráðherra og seðlabankastj. Margrét Árnad. athafnak. í Rvík Sigurður Stefáns- son b. á Hánefs- stöðum Jón Helgason alþm. og ráðherra í Seglbúðum Stefán Gunnars- son b. í Stakkahlíð ÍSLENDINGAR 51 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 2015 Laugardagur 85 ára Fjóla Runólfsdóttir Guðrún Eiríksdóttir Valgerður Jónsdóttir 80 ára Friðrika Kristjana Bjarnadóttir Hrafnhildur Tryggvadóttir María Óskarsdóttir Rannvá Kjeld 75 ára Bríet Böðvarsdóttir Edda Gísladóttir Erla Jónasdóttir Guðný Sigurjónsdóttir Jóhanna Gísladóttir Olaf Forberg Ólöf Októsdóttir Pétur Einarsson 70 ára Birgir Steingrímsson Finnur Sigfús Jónsson Guðmundur Jónsson Sveinn L. Jóhannesson Vilhjálmur Snædal 60 ára Einar Pétursson Eyvindur Þórarinsson Guðmundur Árni Stefánsson Guðrún Jónasdóttir Kristján S. Stefánsson Oddný Sigurborg Gunnarsdóttir Sverrir Benjamínsson Örn Ísfeld Ólason Örn Pálsson 50 ára Ásgerður Hulda Karlsdóttir Guðmundur Sigurðsson Halla Óladóttir Hildur Óladóttir Hulda Þorbjarnardóttir Jadwiga Teresa Smolinska Lubomír Krchnavý Suphan Lamai Þröstur Harðarson 40 ára Berglind Snæland Daði Bergþórsson Einar Jón Geirsson Ellen María Sveinbjörnsdóttir Elma Rún Ingvarsdóttir Eyrún Edda Hjörleifsdóttir Guðríður Haraldsdóttir Halldór Vagn Hreinsson Ireneusz Wysocki Irina Adamonis Steinar Gíslason 30 ára Artur Jaroslaw Oberda Elín Vigdís Guðmundsdóttir Hasan Al Haj Miroslaw August Safin Ragnheiður Ólína Kjartansdóttir Ricardo Anthony Morris Sverrir Þór Gunnarsson Tomasz Wiktor Jalowiecki Sunnudagur 95 ára Helga Jónsdóttir 85 ára Kjartan Lárus Pétursson Þórunn Sigurðardóttir 80 ára Ásta Guðmunda Ásgeirsdóttir Baldur Sigurðsson Friðrik J. Jónsson Gréta Jósefsdóttir Guðjón Ólafsson Jónas Jónsson 75 ára Hildigunnur Gestsdóttir Hrafnhildur S. Björnsdóttir Sigurður Kristinn Herbertsson 70 ára Auður Skúladóttir Birkir Skúlason Guðbjörg Kristín Jónsdóttir Guðrún Magnúsdóttir Guðrún Þorgerður Larsen María Jenny Jónasdóttir Steinunn Yngvadóttir Unnar Þór Böðvarsson 60 ára Árný Rósa Aðalsteinsdóttir Benjamín Ágúst Ísaksson Ioan Prisacaru Joachim Lehmann Jóhanna Sigríður Harðardóttir Þuríður Dóra Ingvarsdóttir 50 ára Aðalheiður D. Guðmundsdóttir Bryndís Bjarnadóttir Darunee Kornee Guðmundur H. Guðjónsson Gunnar Ólafur Kristleifsson Gunnlaugur Ásgeirsson Halldór Grétar Gestsson Hanna Hlíf Bjarnadóttir Hrafn Jökulsson Jóhann Nikulásson Jóna Björk Jónsdóttir Kristinn Grétar Andrésson Magnús Gunnarsson María Ragnarsdóttir Orri Þór Ormarsson Páll Már Pálsson Soffía Magnea Gísladóttir Torfi Sigurjón Einarsson Örn Tryggvi Johnsen 40 ára Aðalheiður Sigurðardóttir Anton Ingibjartur Antonsson Barbara Lind Gígja Belinda Marie Garcia Hafsteinn Hjálmarsson Ívar Ragnarsson Sigríður Ramsey Kristjánsdóttir 30 ára Einar Franz Ragnars Guðmundur Hallur Hallsson Jenna Marika Hynynen Jóhanna Lára Brynjólfsdóttir Jónas Tómasson Kolbeinn Árni Gíslason Marcin Hubert Kozlowski Matthildur Magnúsdóttir Pálmi Hrafn Tryggvason Stefán Georg Ármannsson Uelar Jaersk Til hamingju með daginn Kalina H. Kapralova hefur varið doktorsritgerð sína í líffræði við Há- skóla Íslands. Heiti ritgerðarinnar er Formmyndun og tjáning miRNA tengd breytilegu útliti höfuðs bleikjuafbrigða (Salvelinus alpinus – Study of morphogenesis and miRNA expression associated with craniofacial diversity in Arctic charr, Salvelinus alpinus, morphs). Frá lokum síðustu ísaldar hafa þróast fjögur afbrigði bleikju (Salvel- inus alpinus, Linn. 1758) innan Þing- vallavatns. Markmið þessarar rann- sóknar var að kanna erfðafræðilegar og þroskunarfræðilegar orsakir þessa fjöl- breytileika og öðlast þannig innsýn í þróun og varðveislu bleikjuafbrigðanna í Þingvallavatni. Stofnerfðafræðilegri leit að genum tengdum ónæmiskerfinu sem sýna mismun milli afbrigða er lýst í fyrsta kafla ritgerðarinnar. Annar kafli lýsir þroskun brjósks og beina í höfði fóstra og seiða stuttu eftir klak. Sá munur sem fram kemur milli afbrigða í þroskunarfræðilegum brautum útlits og stærðar þessara stoðeininga bendir til þess að orsakanna sé að leita í breyt- ingum á tímasetningu atburða í þrosk- un. Í þriðja kafla segir frá litlum en marktækum mun í útliti höf- uðbeina á fyrstu stigum eftir klak seiða þriggja af- brigða bleikju. Þá sýna blend- ingar tveggja ólíkra afbrigða svipgerð sem fellur að verulegu leyti fyrir utan útlitsmengi beggja foreldra-afbrigðanna. Það bend- ir til þess að aðskilnað afbrigðanna í vatninu megi rekja til minni hæfni blendinga. Fjórði kafli fjallar um þrosk- unarfræðileg tengsl valinna stoðein- inga í höfði, þ.e. hversu sjálfstæðar eða samþættar þær eru, og hvernig þess- um tengslum er háttað hjá kynblend- ingum ólíkra afbrigða Í fimmta kafla er miRNA sameindum bleikjunnar og tján- ingu þeirra í þroskun lýst í mismunandi afbrigðum. Athyglin beindist að miRNA-genum sem sýndu mismunandi tjáningarmynstur í afbrigðunum en slík gen kunna að leika mikilvægt hlutverk í formþroskun höfuðbeina og verið undirstaða útlitsmunar milli afbrigða. Kalina H. Kapralova Kalina H. Kapralova fæddist í Sofíu í Búlgaríu 1980. Hún lauk BS-námi við Paris Descartes University og Lille 1 University 2004 og meistaragráðu frá HÍ 2008 undir leiðsögn Sigurðar S. Snorrasonar og Moiru Ferguson, University of Guelph, Kanada. Kalina starfar nú sem nýdoktor við Líf- og umhverfisvísindastofnun HÍ. Hún er meðlimur hóps vísindamanna sem rannsaka breytileika og afbrigðamynd- un meðal fiska og beinast rannsóknir hennar sérstaklega að þroskun mismun- andi afbrigða bleikju. Kalina er gift Fredrik Holm, jarðfræðingi og ljósmyndara. Doktor Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón HJÓLA- OG SPORTVÖRUVERSLUNIN · FAXAFENI 7 · SÍMI 5 200 200 · GAP.IS EKKISLEIKJA MALBIKIÐ Í FROSTINU! -NAGLADEKKIN UNDIRHJÓLIÐ FÁST ÍGÁP

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.