Morgunblaðið - 31.10.2015, Side 56
56 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 2015
Tilurð Errós nefnist myndlistarsýn-
ing sem opnuð verður í Listasafni
Reykjavíkur, Hafnarhúsi, í dag kl.
16. Á henni eru tekin fyrir mótunar-
ár Errós, frá 1955 til 1964. Á sama
tíma verður opnuð sýning á verkum
Úlfs Karlssonar, Við erum ekki
hrædd, í D-sal safnsins og segir í til-
kynningu að í þessum tveimur sýn-
ingum mætist verk tveggja lista-
manna sem báðir hafi fundið
hugmyndum sínum meginfarveg í
málverki þó að nær 60 ár skilji að
elstu og yngstu verkin.
Dagur B. Eggertsson borgar-
stjóri opnar sýningarnar að lista-
mönnunum viðstöddum og verður
þá veitt viðurkenning úr Listasjóði
Guðmundu S. Kristinsdóttur sem
Erró stofnaði til minningar um Guð-
mundu frænku sína og ætlað er að
efla og styrkja listsköpun kvenna.
Danielle Kvaran er sýningarstjóri
Tilurðar Errós og ritaði hún einnig
texta í sýningarskrá. Á sýningunni
er birt mynd af listamanni sem mitt
í hringiðu myndlistarheimsins, mest
í Parísarborg, gerði ýmsar tilraunir
og fetaði sig áfram í listinni, að því
er fram kemur í tilkynningu. Á
henni megi sjá hvernig Erró hverf-
ur frá tjáningarfullu málverki til
samtíningsverka og samklippi-
mynda sem hann hafi einkum verið
þekktur fyrir á síðari árum.
Úlfur Karlsson er fæddur árið
1988 og lauk myndlistarnámi við
Valand-listaháskólann í Gautaborg
árið 2012. Úlfur vinnur mest kraft-
mikil og áleitin málverk og innsetn-
ingar þar sem marglaga sögur og
atvik mynda veröld sem vísar í bæði
raunveruleikann og heim fantasíu,
segir í tilkynningu. Sýning hans er
hluti af sýningaröð sem nefnd er
eftir D-sal Hafnarhússins og var
haldin í safninu á árunum 2007-2011
og verður haldið áfram þar sem frá
var horfið. Markmið sýningaraðar-
innar er að vekja athygli á lista-
mönnum sem hafa ekki áður haldið
einkasýningar í stærri söfnum
landsins. Sýningarstjóri er Yean
Fee Quay.
Mótunarár The Big Sabartes, mál-
verk eftir Erró frá árinu 1964.
Erró og Úlfur í Hafnarhúsi
Framhald teiknimyndar-innar Hótel Transylvaníasegir frá Drakúla greifasem rekur hótel í kastala
sínum í Transylvaníu þar sem
mörg hryllingsveran sinnir gestum;
múmíur, uppvakningar og Fran-
kenstein, svo nokkrar séu nefndar.
Drakúla á dóttur sem er vampíra
eins og hann og í upphafi myndar-
innar giftist hún dauðlegum manni,
föður sínum til vonbrigða. Nokkru
síðar tilkynnir hún honum að hún
eigi von á barni og þegar barnið
vex úr grasi fer Drakúla (eða afi
Kúla eins og hann er kallaður af
barninu) að hafa miklar áhyggjur
af því að það sé ekki komið með
vígtennur. Afi Kúla óttast að afa-
strákurinn verði bara maður en
ekki máttug vampíra eins og hann.
Þegar dóttirin fer með eiginmanni
sínum til heimaborgar hans og skil-
ur barnið eftir hjá afanum ákveður
Drakúla að fara með drenginn út í
skóg og kenna honum eitt og annað
sem vampírur þurfa að kunna, í
von um að vampíran vakni í honum.
Það er ákaflega fátt skemmtilegt
við þessa teiknimynd og lítið var
hlegið í bíósalnum á sýningunni
sem ég sótti. Ef börn hlæja ekki að
teiknimynd sem á að vera fyndin þá
hefur eitthvað klikkað, það segir sig
sjálft.
Kannski það sé gamanleikaranum
Adam Sandler að kenna? Hann kom
að handritsskrifunum og talar inn á
myndina fyrir Drakúla í enskri út-
gáfu hennar. Allar þær kvikmyndir
sem Sandler hefur komið að hin síð-
ustu ár hafa verið leiðinlegar og hér
bætist enn ein í safnið (Sandler er
með meðaltalseinkunnina 36 af 100
mögulegum á Metacritic, þ.e. þær
myndir sem hann hefur leikið í).
Persónusköpunin er ófrumleg og þá
bæði hvað handrit varðar og vinnu
teiknara. Sem dæmi um það má
nefna að þegar Drakúla og dóttir
hans breytast í vampírur er engu
líkara en tuskudýr úr gjafa-
vöruverslun hafi verið fyrirmyndir
teiknaranna og þeir aðeins bætt við
vængjum.
Í góðum teiknimyndum höfðar
sagan bæði til barna og fullorðinna
og grínið sömuleiðis en það klikkar
í þessari. Að auki er söguþráðurinn
fyrirsjáanlegur en sem betur fer
lifnar aðeins yfir Drakúla og fé-
lögum í seinni hluta myndarinnar.
Það er hætt við því að foreldrar
dotti yfir Hótel Transylvaníu 2 og
óski margir þess að hún verði búin
sem allra fyrst.
Vampíra? Afi Drakúla með afastrákinn sinn í Hótel Transylvaníu 2.
Bitlaus Drakúla
Smárabíó, Borgarbíó
og Háskólabíó
Hótel Transylvanía 2 bbnnn
Leikstjóri: Genndy Tartakovsky.
Bandaríkin, 2015. 89 mín.
HELGI SNÆR
SIGURÐSSON
KVIKMYNDIR
Everest 12
Morgunblaðið bbbbm
Metacritic 66/100
IMDb 7,7/10
Laugarásbíó 17.00, 20.00
Sambíóin Álfabakka 17.30,
20.00, 22.30
Sambíóin Egilshöll 17.20,
20.00
Smárabíó 14.00, 17.00
Borgarbíó 15.50, 20.00
Legend 16
Metacritic 59/100
IMDb 7,5/10
Sambíóin Álfabakka 22.40
Sambíóin Egilshöll 20.00,
22.30
Crimson Peak 16
Metacritic 69/100
IMDb 7,9/10
Laugarásbíó 22.30
Sambíóin Egilshöll 22.40
The Last Witch
Hunter 12
Vin Diesel fer með hlutverk
Kaulder, aldagamals víga-
manns sem drap norna-
drottninguna á miðöldum.
Metacritic 36/100
IMDB 6,7/10
Sambíóin Álfabakka 17.40,
20.00, 22.20
Sambíóin Egilshöll 17.40,
20.00, 22.20
Sambíóin Kringlunni 21.00
Sambíóin Akureyri 22.30
Sambíóin Keflavík 22.30
Pan 10
Munaðarleysingi ferðast til
töfraríkisins Hvergilands og
uppgötvar örlög sín, að
verða hetjan Pétur Pan.
Metacritic 36/100
IMDb 6,0/10
Laugarásbíó 14.00
Sambíóin Álfabakka 13.00,
15.00, 15.00, 17.30, 17.30,
20.00, 22.30
Sambíóin Egilshöll 15.00,
17.30
Sambíóin Kringlunni 13.30,
15.00, 16.00, 17.30
Sambíóin Akureyri 14.30,
15.00, 17.30
Samb. Keflavík 15.00, 17.30
Klovn Forever 14
Casper flytur frá Danmörku
til Los Angeles til að eltast
við frekari frægð og frama.
Morgunblaðið bbbbn
IMDb 6,9/10
Smárabíó 20.00, 22.50
Háskólabíó 17.30, 20.00,
22.20
Borgarbíó Akureyri 22.10
The Martian 12
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 74/100
IMDB 8,6/10
Smárabíó 14.00, 17.00,
20.00, 22.20
Black Mass 16
Metacritic 68/100
IMDb 7,8/10
Sambíóin Álfabakka 20.00
Sambíóin Kringlunni 22.30
Sicario 16
Metacritic 83/100
IMDb 8,0/10
Laugarásbíó 22.30
The Intern Metacritic 50/100
IMDb 7,4/10
Sambíóin Kringlunni 20.00
The Walk
Metacritic 70/100
IMDB 8,0/10
Smárabíó 17.00, 20.00,
22.40
Dheepan 12
Fyrrverandi hermaður úr
borgarastríðinu á Srí Lanka
reynir að finna sér samastað
í Frakklandi.
Metacritic 78/100
IMDB 7,1/10
Háskólabíó 15.00, 17.30,
20.00, 22.30
Þrestir 12
Háskólabíó 15.00, 17.30,
20.00, 22.20
Borgarbíó Akureyri 18.00
Tannhäuser Sambíóin Kringlunni 16.00
Inside Out Metacritic 93/100
IMDB 8,8/10
Sambíóin Álfabakka 13.30,
15.40
Hotel
Transylvania 2 IMDB 7,7/10
Laugarásbíó 14.00, 16.00
Sambíóin Keflavík 15.30
Smárabíó 13.00, 13.00,
15.00, 15.40, 17.45
Háskólabíó 15.00
Borgarbíó Akureyri 14.00,
15.50, 18.00
Töfrahúsið Metacritic 47/100
IMDb 6,3/10
Sambíóin Álfabakka 13.30,
15.40
Hvað er svona
merkilegt við það? Heimildarmynd um hin rót-
tæku kvennaframboð sem
birtust á níunda áratug síð-
ustu aldar.
Sambíóin Kringlunni 18.30
Glænýja testamentið
Guð er andstyggilegur skít-
hæll frá Brussel, en dóttir
hans er staðráðin í að koma
hlutunum í lag. Myndin er
ekki við hæfi yngri en 9 ára.
Bíó Paradís 17.45, 20.00,
22.15
Stúlkurnar á
Kleppjárnsreykjum
Á stríðsárunum fór allt á
annan endann í íslensku
samfélagi vegna samskipta
kvenna við setuliðið.
Bíó Paradís 18.00
Fúsi
Bíó Paradís 22.00
Jóhanna - Síðasta
orrustan Bíó Paradís 20.00
Ice and the Sky
Bíó Paradís 22.00
99 Homes
Bíó Paradís 17.45
Stille Hjerte
Bíó Paradís 20.00
Upplýsingar og ábendingar sendist á netfangið bio@mbl.is
Kvikmyndir
bíóhúsanna
Þrír skátar, á lokakvöldi útilegunnar,
uppgötva gildi sannrar vináttu þegar
þeir reyna að bjarga bænum sínum frá
uppvakningafaraldri.
IMDb 5,9/10
Laugarásbíó 18.00, 20.00, 22.00
Sambíóin Álfabakka 13.00, 15.40, 15.40, 17.50, 17.50,
20.00, 20.00, 22.10, 22.10
Sambíóin Egilshöll 17.50, 20.00, 22.10
Sambíóin Akureyri 20.00, 22.10
Sambíóin Keflavík 20.00, 22.10
Scouts Guide to the
Zombie Apocalypse 16
Kokkurinn Adam Jones er einn af villingum Parísarborgar og skeytir
ekki um neitt nema spennuna við að skapa nýjar bragðsprengjur.
Metacritic 38/100
IMDb 6,9/10
Smárabíó 17.45,
20.00, 20.00, 22.20,
22.20
Háskólabíó 17.30,
20.00, 22.20
Borgarbíó Akureyri
14.00, 20.00, 22.10
Burnt 12
Smábæjarstúlkan Jerrica Jem Benton stofnar hljómsveit með systur
sinni og tveimur vinkonum og þær slá í gegn.
Metacritic 44/100
IMDb 3,2/10
Laugarásbíó 14.00, 17.00, 20.00
Samb. Kringlunni 20.00, 22.30
Sambíóin Akureyri 17.30, 20.00
Sambíóin Keflavík 17.30, 20.00
Smárabíó 13.00, 15.10
Háskólabíó 15.00
Jem and the Holograms