Morgunblaðið - 31.10.2015, Page 57
MENNING 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 2015
Sænski teknótónlistarmaðurinn
Petter B leikur á skemmtistaðnum
Paloma í kvöld kl. 23 ásamt Exos,
Yamaho og Dj Hendrik og Emblah.
Petter B er meðal þeirra sem halda
uppi heiðri sænskrar teknótónlistar
og hefur sent frá sér hvern slagar-
ann á fætur öðrum, að því er fram
kemur í tilkynningu. Af þeim eru
nefndir „Global Writes“, „Shut yo-
ur eyes“, „Belgian Green“ og „Tool
4“.
Teknó Petter B hinn sænski.
Teknótónlistar-
maðurinn Petter B
leikur á Paloma
Kvikmyndavefurinn The Holly-
wood Reporter greinir frá því að
Hera Hilmarsdóttir muni leika í
kvikmyndinni An Ordinary Man á
móti leikaranum Ben Kingsley.
Kvikmyndin er sögð spennutryll-
ir og fjalla um eftirlýstan stríðs-
glæpamann sem vingast við þjón-
ustustúlku sem Hera leikur. Hann
áttar sig á því að hún er sú eina sem
hann getur treyst, eins og því er
lýst í frétt vefjarins. Leikstjóri
myndarinnar er Brad Silberling
sem á m.a. að baki kvikmyndina Le-
mony Snicket’s A Series of Un-
fortunate Events. Tökur á mynd-
inni hefjast í næstu viku í Belgrad. Rísandi Hera leikur á móti Ben Kingsley.
Hera leikur í kvikmynd með Kingsley
Melodia, kammerkór Áskirkju,
heldur útgáfutónleika í Laugarnes-
kirkju í dag kl. 15 vegna nýútkom-
ins hljómdisks síns, Melodia, sem
hefur að geyma íslensk þjóðlög í
nýjum og nýlegum útsetningum
samtímatónskálda og þá bæði
þekkt þjóðlög og minna þekkt.
Nokkur laganna voru útsett sér-
staklega að beiðni Melodiu og munu
heyrast í fyrsta sinn á tónleikunum.
Efnisskrá disksins verður flutt í
heild og er aðgangur að tónleik-
unum ókeypis.
Melodia, undir stjórn Magnúsar
Ragnarssonar, hefur á að skipa 16
söngvurum. Kórstjóri Magnús Ragnarsson.
Þjóðlagaarfurinn í nýjum búningi
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Hljóðheimur okkar sameinar ýmsa
tónlistarstíla og því pössum við jafn
vel inn í Jazzhátíð Reykjavíkur og
Airwaves. Erlendis höfum við komið
fram á heimstónlistarhátíðum og í
tónleikasölum sem fyrst og fremst
eru nýttir fyrir klassíska tónlist. Við
pössum því víða inn,“ segir Heiða
Árnadóttir, söngkona hljómsveit-
arinnar Mógils. Sveitin sendi fyrr á
árinu frá sér plötuna Korriró, en út-
gáfutónleikarnir voru haldnir á
Jazzhátíð Reykjavíkur í ágúst.
Næstu tónleikar verða hins vegar á
Iceland Airwaves í Kaldalóni Hörpu
miðvikudaginn 4. nóvember milli kl.
21.30 og 22.00. „Við hlökkum mikið
til tónleikanna og ætlum eingöngu
að spila lög af nýju plötunni.“
Korriró er þriðja plata Mógils. Sú
fyrsta, sem nefnist Ró, kom út árið
2008 og í framhaldinu fylgdi Í still-
unni hljómar árið 2011. „Hljómsveit-
arskipanin hefur breyst frá því síð-
asta plata kom út. Við vorum fjögur,
en erum núna fimm þar sem við
bættum við trompeti. Einnig kom
inn víóla í staðinn fyrir fiðlu,“ segir
Heiða, en auk hennar eru í hljóm-
sveitinni þau Hilmar Jensson á gít-
ar, Kristín Þóra Haraldsdóttir á
víólu, Eiríkur Orri Ólafsson á
trompet og Joachim Badenhorst á
klarinett, en fiðluleikarinn Ananata
Rossen er hætt.
Hlý vetrarplata
Að sögn Heiðu skýrist einstakur
hljóðheimur Mógils af því að með-
limum tekst að vefa saman klassík,
þjóðlagatónlist og djass, sem helg-
ast af ólíkum bakgrunni hljómsveit-
armeðlima. „Hilmar, Eiríkur og
Joachim koma úr djassinum, en við
Stína höfum klassískan bakgrunn.
Þetta blandast hins vegar vel sam-
an, þannig að það kemur skemmti-
legur bræðingur út úr þessu,“ segir
Heiða sem lagði grunninn að Mógil í
samstarfi við Badenhorst fyrir sjö
árum. „Við Joachim, sem er Belgi,
vorum saman í Tónlistarháskól-
anum í Haag í Hollandi. Á mast-
ersprófinu mínu ákvað ég að vinna
með íslensk þjóðlög og ég fékk hann
til að spila með mér. Okkur langaði
til að starfa meira saman og spurð-
um þá Hilmar hvort hann vildi vera
með,“ segir Heiða og bendir á að
Ananata Rossen hafi líka verið í
námi við sama skóla í Haag.
„Við byrjuðum að halda tónleika á
Íslandi með þjóðlögum úr ýmsum
áttum, en þegar kom að því að gera
plötuna langaði okkur til að hafa
bara frumsamið efni. Þá settust allir
í sitt horn og sömdu lag áður en við
hittumst og unnum úr því. Við
vinnum efnið okkar ennþá þannig,
þ.e. hver semur í sínu horni og svo
útfærum við hlutina í sameiningu,“
segir Heiða sem semur flesta text-
ana, en á nýju plötunni eru einnig
textar eftir Hannes Pétursson, Vil-
borgu Dagbjartsdóttur og Árna Ís-
aksson. „Þegar ég var að velja og
semja texta fyrir nýju plötuna var
ég mjög mikið að hugsa um vetur,
þannig að platan er ævintýraleg og
hlý vetrarplata.“
Mógil þýðir ekki mamma!
Að sögn Heiðu stefnir hljóm-
sveitin að því að fylgja nýju plötunni
eftir á meginlandinu á næsta ári.
„Þar sem allir textar á plötunni eru
á íslensku gáfum við nýverið út
textabók með nýjasta disknum þar
sem textarnir voru þýddir, en útgef-
andinn er Princess Archæological
Squeeze í NYC. Bókin var hand-
skrifuð af mér, hönnuð af Kára Emil
Helgasyni og myndskreytt af Joac-
him, sem er mikill listamaður, en
hann hefur séð um myndskreyt-
ingar á öllum diskunum þremur,“
segir Heiða og bendir á að þar sem
Badenhorst búi í Belgíu vinni hljóm-
sveitin í skorpum þegar kemur að
tónleikahaldi og upptökum. „Sem
stendur er Joachim reyndar í Japan
og því fengum við hinn frábæra
Hauk Gröndal til liðs við okkur og
mun hann blása í klarinettið á tón-
leikunum á Airwaves.“
Að lokum er Heiða spurð hvernig
hljómsveitarnafnið Mógil sé til-
komið. „Þegar við unnum að fyrstu
plötu okkar gerði ég lista með
mögulegum hljómsveitarnöfnum og
valdi ýmsa staði af landinu,“ segir
Heiða og bendir á að Mógil hafi rat-
að á listann þegar hún átti leið
framhjá Mógilsá við Esjurætur.
„Þegar við settumst niður komumst
við að því að okkur fannst Mógil fal-
legast.“ Spurð hvort nafnið virki vel
erlendis svarar Heiða því játandi.
„Við lentum þó einu sinni í vandræð-
um með nafnið. Á einum stað fyrir
nokkrum árum hafði tónleikahaldari
sett orðið í gegnum „google trans-
late“ og fengið það út að orðið mógil
þýddi mother eða mamma. Þegar
við mættum á staðinn blöstu við
okkur dreifimiðar með þessari þýð-
ingu. Í framhaldinu tóku aðrir tón-
leikastaðir þetta upp, en ég held að
okkur hafi tekist að hrista þetta af
okkur aftur.“ Spurð hvort sveitin sé
farin að leggja drög að næstu plötu
svarar Heiða: „Við verðum 10 ára
eftir tvö ár. Það væri draumur að
koma með næstu plötu um það
leyti.“
„Skemmtilegur bræðingur“
Mógil kemur fram á Iceland Airwaves í Kaldalóni Hörpu nk. miðvikudag
Stefna á fjórðu plötuna á tíu ára afmæli hljómsveitarinnar eftir tvö ár
Einstakur hljóðheimur Heiða Árnadóttir, Eiríkur Orri Ólafsson, Kristín
Þóra Haraldsdóttir, Joachim Badenhorst og Hilmar Jensson skipa Mógil.
JEM AND THE HOLOGRAMS 5:30,8
SCOUTSGUIDE,ZOMBIE APOCALYPSE 8,10
HÓTEL TRANSYLV. 2D ÍSL 6
CRIMSON PEAK 10:30
EVEREST 3D 5;30,8
SICARIO 10:30
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar
Háskólanám erlendis
á sviði skapandi greina
Námskynning
TJARNARBÍÓ (Tjarnargötu12)
Laugardag 31. október, kl. kl. 13:00-17:00
Fulltrúar frá 7 skólum á Englandi, Skotlandi,
Ítalíu og Þýskalandi verða á staðnum.
Sjá nánar: lingo.is/frettir