Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.04.2016, Blaðsíða 15
3.4. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15
alltaf sömu brandarana. „Jú, en þess vegna
verður maður alltaf að gera eitthvað nýtt, ég
myndi aldrei fara lengur en þrjá mánuði með
sama efni.
Hún segist ekki vera með sviðsskrekk eftir
að hún er komin á svið þótt það beri á honum
áður. „Þá er bara svo gaman. Hefurðu prófað
þetta? Þetta er æðislegt. Þetta er eins og að
fara í tívolítæki, maður stressast í röðinni en
svo er þetta rosalega skemmtilegt. Það hefur
auðvitað nokkrum sinnum komið fyrir að sal-
urinn er hræðilegur en þá segir maður bara,
hvað er að ykkur? Eruði sofandi eða eitthvað?
Maður lendir bara í alls konar,“ segir hún. Hún
segist vera nánast hætt í veislustjórnun. „Nú er
ég komin með lítið barn og fyrirtæki,“ segir
hún.
Anna Svava hefur unnið að ýmsu síðustu árin
og má nefna grínþættina Hæ Gosa og við
teiknimynd Hugleiks Dagssonar, Hullaþætt-
ina, og skrifað fyrir nokkur áramótaskaup svo
eitthvað sé nefnt.
„Jarðar“ manninn sinn í uppistandi
Hugmyndir að gríni fær Anna Svava af því að
tala við fólk. „Eins og að við sitjum hérna tvær
að ræða saman er eitthvað pottþétt sem ég á
eftir að tala um seinna,“ segir hún og það er
ekki laust við að ég svitni aðeins. Annars segir
hún að Gylfi sé henni endalaus uppspretta
gríns. „Tvo síðustu vetur hefur uppistandið
snúist um Gylfa og barnið. Gylfi er með rosa
mikið af bröndurunum,“ segir Anna Svava og
nefnir dæmi af því að hún hafi sagt að hann
væri með stærri brjóst en hún sem hafi komið
sér vel þegar hún hætti með soninn á brjósti.
Ég spyr hvernig hann taki þessu. Anna
Svava hlær hátt. „Ég jarða hann alveg í uppi-
stöndum. Hann hittir stundum fólk sem segir:
þú veist hvað konan þín er að segja? Mömmu er
ekki sama þannig að ég verð að nota Gylfa,“
segir hún. „Ég auðvitað ýki allt en fólk af henn-
ar kynslóð heldur að fólk trúi þessu,“ útskýrir
hún og hlífir því móður sinni.
Anna Svava gerir mest grín að sjálfri sér en
það þýðir ekki endilega að aðrir megi það. Hún
segir að Gylfi tali um að ekki megi gera grín að
Anna Svava segist léleg í dramatískum
hlutverkum en er fædd til að láta aðra
hlæja. Hún nýtur sín vel á sviði þar
sem hún gerir óspart grín að manni
sínum Gylfa. Nýjasta hlutverk hennar
er Anna í Ligeglad-þáttunum þar sem
hún fer á kostum í Danmörku.
Morgunblaðið/Ásdís
’ Ég fór alveg yfir um. Fór ágeðtöflur og er fyrst núna aðhætta á þeim. Ég var búin aðgera allt sem ég vildi í 38 ár og
svo bara kemur hann og hann
svaf aldrei meira en tvo tíma í
einu í þrjá mánuði.
Anna Svava eignaðist sitt fyrsta barn fyrir ári og dafnar Arnar Orri vel. Hún nýtur þess að vera
móðir en segir að fyrstu mánuðirnir hafi verið erfiðir. Nú vill hún gjarnan bæta við öðru barni.