Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.04.2016, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.04.2016, Blaðsíða 14
VIÐTAL 14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.4. 2016 Þ að var bjart yfir Önnu Svövu en hún fagnaði 39 ára afmæli daginn sem viðtalið var tekið og bauð mér að deila með sér dýrindis súkkulaði- hráköku í tilefni dagsins. Anna Svava hefur frá mörgu að segja enda er líf hennar búið að vera viðburðaríkt, ekki síst síðustu fjögur árin. Á þessum tíma kynntist Anna Svava manni sínum Gylfa Þór Valdimars- syni, eignaðist sitt fyrsta barn, tvo stjúpsyni, opnaði eina vinsælustu ísbúð bæjarins með manni sínum á milli þess sem hún skrifaði handrit og skemmti fólki með uppistandi. Grín- þátturinn Ligeglad er nýjasta afurð ímynd- unarafls hennar en þar segir frá uppistand- aranum Önnu sem fer til Köben til að meika það. Grenjaði allan daginn Anna Svava er þessa dagana að njóta þess að vera nýbökuð móðir, en drengurinn Arnar Orri er nýorðinn eins árs. Hún segist hafa undirbúið sig vel fyrir komu hans og meðal annars lesið allt sem hún komst yfir og horft á hvern einasta þátt af One born every minute. En ekkert gat búið hana undir þessa fyrstu mánuði eftir fæðingu drengsins. „Ég fór alveg yfir um. Fór á geðtöflur og er fyrst núna að hætta á þeim. Ég var búin að gera allt sem ég vildi í 38 ár og svo bara kemur hann og hann svaf aldrei meira en tvo tíma í einu í þrjá mán- uði. Það voru hundrað manns sem vildu hjálpa mér en ég ætlaði að gera þetta eins og allar aðr- ar konur. En geðtöflurnar björguðu mér. Ég var geðveik, bara alveg geðveik. Kvíðin og „paraoid“. Ég bara grenjaði allan daginn. Líka þótt ég væri að horfa á eitthvað skemmtilegt, þetta var líkamlegt. Svo bara hékk ég yfir vagninum þegar hann var sofandi,“ segir hún. „Þarna kemur einhver einstaklingur sem mað- ur ber ábyrgð á og ég var búin að bíða eftir hon- um lengi. Ég var búin að ímynda mér hvað það væri yndislegt að vera mamma en svo var þetta bara hræðilega erfitt. En núna fyrst er ég bara: hann mun lifa þetta af. Þetta var bara almenn móðursýki!“ segir Anna Svava og hlær dátt, enda farin að sofa heilu næturnar loksins og njóta sín í móðurhlutverkinu. Svo mikið að hún vill gjarnan bæta við barni. Allir grínarar óöruggir Anna Svava ætlaði sér aldrei að verða leikkona og kannski enn síður grínisti. Hún er alin upp í Fossvogi og gekk þar í skóla en segist aldrei hafa verið í leiklist sem barn og unglingur. Ég spyr hvort hún hafi verið byrjuð í gríninu á unga aldri. „Það er sagt að allir grínarar séu svo með- virkir og óöruggir og vilji láta alla líka vel við sig. Það er alla vega einkennandi fyrir mig og örugglega marga. Ég man að ég átti það alveg til að finnast það æðislegt ef fólk hló að mér, þá vissi ég að það fílaði mig. En ég var kannski stundum leiðinleg að gera grín á kostnað ann- arra,“ segir hún og hlær. „En það var ekki fyrr en á síðasta ári í leik- listarskólanum sem einhver sagði að ég væri fyndin,“ segir hún. „Ég er aldrei góð í að leika neitt dramatískt.“ Leikhúsið á mann Það var ekki fyrr en hún var í bókmenntafræði í Háskóla Íslands sem áhuginn kviknaði þegar hún sótti námskeið í leiklistarsögu en þar var stofnaður leikhópur. Í kjölfarið fór Anna Svava í leiklistarskólann og þaðan lá leiðin til Ak- ureyrar. Hún lék þar með leikfélaginu í eitt ár og fannst það erfitt. „Leikhúsið á mann. Maður er að vinna allan daginn frá kl. 10-4 og svo sýna fimm kvöld í viku og meira um helgar,“ segir hún en þar lék hún meðal annars í alvarlegu hlutverki í Músagildrunni. „Ég var ekki góð í því!“ segir hún og skellihlær. „Mér leið ekkert sérstaklega vel í því hlutverki, þurfti að grenja allan tímann,“ segir hún. Ég bendi á að það hefði verið tilvalið hlutverk þegar hún var í fæð- ingarþunglyndinu. „Já, það hefði verið geð- veikt!“ segir hún skellihlæjandi. „Þetta var ótrúlega töff vinna. Og ég hugsaði þá, ef ég get verið að vinna í einhverjum veislum og fengið jafn mikið eða meira borgað, og get notað dag- inn í að skrifa, ætti ég að gera það. Ég gat skemmt um helgar og fengið tvöföld mán- aðarlaun miðað við hitt. Þannig að auðvitað gerði ég það.“ Þú vildir semsagt vera þinn eigin herra, stjórna þér sjálf? „Já, einmitt! Nú fæ ég aldrei vinnu lengur úr því þú segir þetta!“ segir hún og hlær. Mið-Ísland skemmtilegast í heimi Handritsskrifin byrjaðu hjá Önnu Svövu þegar hún skrifaði Dagbók Önnu Knúts. „Ég var að vinna með Gunnari Birni sem ég hef unnið með við nokkur skaup og ég var að skrifa leikrit sem endaði sem stand-up,“ segir hún en upp úr því fór fólk að biðja hana um að skemmta í veislum og taka að sér veislustjórn. Í fjóra vetur hefur Anna Svava staðið á sviði ásamt Ara Eldjárn, Jóhanni Alfreð, Birni Braga og Dóra DNA í Mið-Íslandi. „Það er svo gaman, skemmtilegast í heimi. Það er svo gam- an þegar fólk er komið til að horfa á uppistand. Það er að skemmta sér og er komið til að hlæja,“ útskýrir Anna Svava. Ég spyr hvort hún fái ekkert leiða á að segja „Ég er að verja hana en hún er algjör tík!“ Anna Svava Knútsdóttir er móðir, uppistandari, hand- ritshöfundur, grínleikkona og ísbúðareigandi. Grínþátt- urinn Ligeglad er kominn í loftið en þar fer Anna Svava á kostum sem misheppnaða persónan Anna uppistand- ari sem fer til Köben til að „meika“ það. Þátturinn gæti hneykslað suma en skemmt öðrum því Anna í Ligeglad er óþolandi, heimsk og vond að sögn Önnu Svövu. Texti og aðalmyndir Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Það var hressandi að fara í heimsókn til Önnu Svövu. Hún er opin, skemmtileg og hláturmild og hefur skemmtilega sýn á lífið. Hún tekur sjálfa sig ekki of hátíðlega, enda grínisti. Það var auðvelt að tala við hana um lífið og tilveruna og vorum við farnar að deila kökusneið og bera saman bækur okkar eftir stutt kynni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.