Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.04.2016, Blaðsíða 31
Mangó-
hristingur
Magn er miðað við 1-2 glös
Handfylli spínat
frosið mangó
vænn bútur af engifer
ávaxtasafi, t.d. heilsusafi
banani
Setjið í blandara og blandið vel.
Best er að setja vökvann fyrst.
Drekkist strax ískalt.
Frá eldhussogur.is.
3.4. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31
BOTN
95 g möndluduft
55 g mulið graham-kex
30 g sykur
3 msk smjör
OSTAKÖKUDEIG
225 g rjómaostur við stofuhita
100 g sykur
1/2 vanillufræ
3 egg
140 g hvítt súkkulaði
150 g mangó, maukað vel
Undirbúningur á botni: Hrærðu
saman öllum hráefnunum og
pressaðu það í botninn á hringlaga
formi (ca 20 cm). Bakaðu þetta í
10-12 mínútur eða þar til ljós-
brúnt á lit. Kældu á meðan þú út-
býrð ostakökudeig. Í hrærivél,
hrærðu saman rjómaosti, vanillu
fræjum og sykri þar til slétt og
mjúkt. Bættu við eggjum, einu í
einu. Hrærðu vel saman. Bræddu
hvítt súkkulaði og hrærðu saman
við deigið. Að síðustu á að hræra
mangóinu saman við.
Helltu á botninn og bakaðu í
vatnsbaði í 50-60 mínútur á
150°C. Kældu og settu svo í ísskáp
yfir nótt.
Ostakaka með hvítu
súkkulaði og mangó
Getty Images/iStockphoto
Fyrir 6
4 meðalstórar andabringur
120 ml sólblómaolía
salt
50 g sykur
180 ml kókosmjólk
280 g langar grænar baunir (settar í augnablik í sjóðandi
vatn)
2 vel þroskuð meðalstór mangó, afhýdd og skorin í 2 cm
kubba
1 msk limesafi
FYRIR KRYDDBLÖNDU
1⁄3 tsk þurrkaðar chiliflögur
2½ msk sambal oelek (chilimauk í krukku)
3 rauð chili, meðalsterk
30 g ferskt engifer, afhýtt og skorið í fínar sneiðar
2-3 lemongrass-stilkar, skornir
1 tsk túrmerik
12 litlir skalotlaukar, skornir smátt
10 hvítlauksrif, skorin smátt
1 tsk Thai- eða Malay-rækjumauk (paste)
Setjið allt kryddið í matvinnsluvél og maukið. Gott
að setja 2 msk af sólblómaolíu út í. Setjið 150 g af
kryddblöndunni í skál, bætið við ¼ tsk af saltinu og
andabringunum og nuddaðu kryddblönduna inn í
kjötið. Settu plast yfir og í kæli í a.m.k. tvo tíma.
Geymdu afganginn af kryddblöndunni.
Kveiktu undir stórri pönnu og stilltu á meðalhita.
Taktu bringurnar og skafðu af þeim kryddblönduna
og settu í skál með afgangskryddinu. Settu bring-
urnar á pönnuna með skinnið niður og steiktu í 2-3
mínútur þar til það hefur brúnast vel. Þú gætir þurft
að hella af pönnunni aukafitu. Brúnaðu líka hina hlið-
ina. Þegar búið er að brúna öndina á báðum hliðum
eru bringurnar teknar af pönnunni og geymdar í skál.
Þurrkaðu af pönnu með bréfþurrku, bættu afgang-
inum af olíunni á pönnuna og hitaðu. Eldaðu krydd-
blönduna á pönnunni í 10-15 mínútur og hrærðu
stanslaust þar til hún verður rauð á lit. Ef hún fer að
festast við, skvettu þá smávatni saman við.
Settu því næst öndina aftur á pönnuna og bættu við
250 ml af vatni og hálfri teskeið af salti og láttu malla
í sex mínútur. Snúðu öndinni einu sinni. Taktu öndina
úr sósunni og bættu við sykri, kókosmjólk, baunum
og mangói og láttu malla í þrjár mínútur. Á meðan
skaltu skera öndina í ½ cm þykkar sneiðar og setja
aftur í sósuna. Settu nú limesafann út í og eldaðu í 2-3
mínútur í viðbót. Smakkaðu til og saltaðu ef þarf.
Berðu fram með grjónum.
Önd í
mangó-
karríi