Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.04.2016, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.04.2016, Blaðsíða 8
Í PRÓFÍL 8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.4. 2016 Margir láta sig dreyma um að smíða geimflaugar. Elon Musk situr ekki við orðin tóm heldur stofnaði hann SpaceX – fyrirtæki sem smíðar geimflaugar! SpaceX hefur sett sér háleit mark- mið um að umbylta geim- flaugaiðnaðinum. Í desember í fyrra náði SpaceX þeim áfanga að lenda eldflaug heilu á höldnu í fyrsta skipti á Ka- naveral-höfða í Flórída. Lendingin markaði tímamót en hún er hluti af tilraun fyr- irtækisins til að draga úr kostnaði og fjársóun með því að þróa eldflaug sem hægt er að nota oftar en einu sinni eins og flugvélar. Falcon 9-eldflaugin í sögulegri lendingu í Flórída í Bandaríkjunum hinn 22. des- ember 2015. Elon Musk stofnaði SpaceX árið 2002. AFP/SPACEX Smíðar geimflaugar Elon Musk er maður sem tekið er mark á í tæknigeiranum, enda afrekalistinn langur. Hann er stofnandi Tesla Motors-rafbílaframleiðandans sem í vikunni til- kynnti að ódýrari útgáfa af rafbílnum vinsæla væri væntanleg. Musk stofnaði einnig greiðslugáttina PayPal sem gerir netnotendum kleift að borga fyrir vörur á netinu og geimferðafyrirtækið SpaceX sem byggist á draumi Musk um að smíða tiltölulega einfaldar og ódýrar eldflaugar sem hægt verði að skjóta upp í geim oftar en einu sinni. Framúrstefnulega hraðlestin Hy- per Loop er líka hans hugmynd, en enginn skortur virðist á hugmyndum hjá þessum raðfrumkvöðli. Elon Musk er fæddur í Suður-Afríku árið 1971. Aðeins tíu ára gamall keypti hann sína fyrstu tölvu og 12 ára seldi hann sinn fyrsta tölvuleik. Þrátt fyrir að hafa komist upp á lagið með tölvutæknina og forritun ungur er Musk ekki einn af þeim sem létu menntun lönd og leið. Hann lauk raunar tveimur háskólagráðum frá háskólanum í Pennsilvaníu í Bandaríkjunum, en þangað fluttist hann árið 1992. Musk lauk bæði bakkal- árgráðu í hagfræði og eðlisfræði og hugðist halda áfram í doktorsnám við Stan- ford-háskóla. Hann hóf þó aldrei nám við Stanford heldur hellti sér af fullum krafti út í netbransann og stofnaði sitt fyrsta fyrirtæki, Zip2, um miðjan tíunda áratuginn. Musk er sagður fullkomnunarsinni sem aldrei hætti. Standi hann frammi fyrir óleystu vandamáli á hann afar erfitt með að hætta fyrr en málið er leyst. Musk hefur þó ekki verið sérlega farsæll í einkalífinu. Skiln- aður hans við barnsmóður sína og eiginkonu var erfiður og hún ber honum ekki vel söguna. Í þann mund sem þau stigu út á gólfið og af stað í brúðarvalsinn á hann að hafa hvíslað í eyra hennar „ég er „alfa“ í þessu sambandi“. Og svo reyndist það rétt, hann vildi ráða yfir lífi hennar og hún varð smám saman óham- ingjusamari í samvistum við milljarðamæringinn. Musk hefur einnig orð á sér fyrir að vera harður við und- irmenn sína og hefur rekið fólk fyrir afar litlar sakir eins og að verða það á að senda tölvupóst með stafsetningarvillu. Einhvers konar snilligáfu og miklum frumkvöðlahæfileikum virðist hann þó búa yfir og helstu tæknifrömuðir heims bíða jafnan í ofvæni eftir því upp á hverju Elon Musk finnur næst. Meðal verkefna sem hann hefur sjálfur sett á sitt teikniborð eru einmitt að finna lausn á loftslagsvanda heimsins með því að þróa nýja tækni í samgöngum. Það er ekki hægt að segja annað en að markmiðin séu háleit. Og það sem meira er þá er hann bara frekar lík- legur til að ná árangri eins og hann hefur gert með svo margt fram að þessu. Kolefnisútblástur er Musk hugleik- inn og hann hefur talað fyrir því að jarðarbúar hreinlega hætti að nota jarðefnaeldsneyti. Musk gerði loftslagsmál að umtalsefni á viðskiptaþingi í Berlín í fyrrahaust. Þar sagði hann bruna jarð- efnaeldsneytis „heimskulegustu tilraun sögunnar“. Musk gengur lengra en margir í þessum efnum. Hann telur ekki nóg að gert í því að sporna við loftslagsbreytingum. Ekki sé nóg að minnka útblástur, hann verði beinlínis að stöðva. Annars fari illa fyrir jörðinni og þeim sem hana byggja. Vill útrýma útblæstri Elon Musk er talinn með allra áhrifamestu frumkvöðlum samtímans. AFP Leikkonan Talulah Riley er seinni eiginkona Elons Musks. Hún hefur ný- verið óskað eftir skilnaði við hann – í annað sinn. Musk og Riley kynntust árið 2008, skömmu eftir að hann skildi við fyrri eiginkonu sína og móður fimm barna hans, Justine Musk. Þau Riley giftu sig svo árið 2010. Í lok árs 2012 tilkynntu Musk og Riley um skilnað. Þau skildu en tóku saman aftur árið 2013 og giftu sig þá á ný. Nú vilja þau halda hvort í sína áttina á ný. Riley var aðeins 22 ára þegar hún kynntist hinum 36 ára gamla Elon Musk. Á ýmsu hefur gengið síðustu ár og nú virðist sem sambandinu sé endanlega lokið. Þau Riley og Musk eiga engin börn saman en Elon Musk og fyrri eig- inkona hans Justine eignuðust saman sex börn. Fyrsta barn þeirra lést í fæðingu en þau eiga bæði tvíbura og þríbura, allt stráka. Justine hefur komið fram í viðtölum og skrifað um samband sitt við Elon Musk, og lýsir honum ekki beint sem neinum dýrlingi. Hún segir hann hafa verið ráðríkan og gjarnan sagt við sig: „Ef þú værir starfsmaður hjá mér myndi ég reka þig.“ Sex vikum eftir að þau Justine skildu hafði hann kynnst Riley, konunni sem hann er nú að fara að skilja við í annað sinn. Talulah Riley og Elon Musk vekja jafnan athygli þar sem þau eru. Óstýrilátur en óstöðvandi ’ Elon Musk villleysa loftslags-vandamál með nýrrisamgöngutækni. Fram til þessa hefur sauðsvartur almúginn ekki haft kost á að kaupa sér Tesla rafbíl en Elon Musk hyggst breyta því og hefur nú kynnt til sögunnar ódýrari útgáfu af Teslu sem kemur til með að kosta um 4 milljónir króna. AFP Sími 555 2992 og 698 7999 FISKIOLÍA OG BLÁBER í einum pakka Það gerist varla betra fyrir: OMEGA 3 Ónæmiskerfið Kolesterol Liðina Hjartað og æðar Gegn skaðlegum sindurefnum í frumum líkamans sem tengist hrörnun, skýi á auga og krabbameini Þriðji skilnaðurinn framundan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.