Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.04.2016, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.04.2016, Blaðsíða 51
3.4. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 51 Ströndin í náttúru Íslands eftir Guð- mund Pál Ólafsson er í mínum huga ein besta bók sem komið hefur út á Íslandi. Þar er mikill fróðleikur um allt á milli himins og jarðar sem teng- ist strandlengju Íslands og við bætast frábærar myndir og ljóð. Í öllu verkinu endurspeglast mikil virðing fyrir nátt- úru landsins. Bók sem hvetur fólk til ferðalaga um íslenska náttúru. Aðventa eftir Gunnar Gunnarsson er stutt en hnitmiðuð bók sem er skyldulesning þegar líða fer að jólum. Smalinn Benedikt og fjórfættir vinir okkar eru í lykilhlutverkum, hund- urinn Leó og hrúturinn Eitill eru svipsterkir og hafa mikinn persónu- leika. Veðurlýsingar og náttúrulýsingar eru magnaðar og staðfesta þeirra í leit að eftirlegukindum um miðjan vetur uppi á öræfum er til eft- irbreytni. Einföld bók, fá orð en mikil saga. Bækur Kristínar Marju Baldursdóttur um listakonuna Karit- as, Karitas án titils og Óreiða á striga, eru áhrifamiklar og myndrænar kvennasögur sem spegla vel tíðarandann á 20. öld þeg- ar menntun og velmegun voru ekki sjálfsagt mál. Saga ekkjunnar sem flutti til Akureyrar til að mennta börn sín og saga listakonunnar sem bjó víða um land og barðist við sjálfa sig og aðra sýna vel hve hörð lífsbar- áttan getur verið. Klara Bjartmarz Emelie Schepp langaði að skrifa sögu sem speglaði þjóðfélagið og tæpti líka á því sem ekki er rætt. Morgunblaðið/RAX BÓKSALA 23.-29. MARS Listinn er tekinn saman af Eymundsson. 1 JárnblóðLiza Marklund 2 MerktEmelie Schepp 3 Í hita leiksinsViveca Sten 4 The very worst of DagssonHugleikur Dagsson 5 Independent PeopleHalldór Laxness 6 Meira blóðJo Nesbø 7 Sagas Of The IcelandersÝmsir höfundar 8 Saga af nýju ættarnafniElena Ferrante 9 Einn af okkurÅsne Seierstad 10 NicelandKristján Ingi Einarsson 1 JárnblóðLiza Marklund 2 MerktEmelie Schepp 3 Í hita leiksinsViveca Sten 4 Meira blóðJo Nesbø 5 Saga af nýju ættarnafniElena Ferrante 6 Framúrskarandi vinkonaElena Ferrante 7 UndirgefniMichel Houellebecq 8 NautiðStefán Máni 9 KólibrímorðinKati Hiekkapelto 10 Níunda sporiðKati Hiekkapelto Allar bækur Íslenskar kiljur BÆKUR Í UPPÁHALDI Sænska nóbelsnefndin, sem velur þá rithöfunda sem hljóta bók- menntaverðlaun Nóbels ár hvert, hefur fordæmt dauðadóm íranskra yfirvalda yfir breska rithöfund- inum Salman Rushdie, 27 árum eft- ir að hann var kveðinn upp. Það var trúarleiðtoginn Ayatol- lah Khomeini sem kvað upp dauða- dóminn og var Rushdie gefið að sök að hafa móðgað Múhameð spámann í bókinni Söngvar Satans sem kom út 1988. Tveir fulltrúar nób- elsnefndarinnar sögðu sig úr henni árið 1989 þegar nefndin neitaði að fordæma dóm Khomeinis. Nefndin kvaðst þá ekki vilja blanda sér í pólitík með nokkrum hætti, gaf þó út yfirlýsingu þar sem tjáningarfrelsið er varið, án þess þó að lýsa yfir stuðningi við Rushdie. Yfirlýsing var svo birt á heima- síðu nóbelsnefndarinnar á fimmtu- daginn, þar sem dauðadómurinn er fordæmdur í fyrsta skipti. Rushdie brást strax við á Twitter og lýsti yfir miklu þakklæti vegna ákvörðunar Svíanna. Rithöfundurinn Salman Rushdie á bókmenntahátíð í Mexíkó á síðasta ári. AFP Fordæmir dauðadóminn NÓBELSNEFNDIN TEKUR LOKS AF SKARIÐ Eðalfiskur ehf • Sólbakka 4 • 310 Borgarnesi • S. 437 1680 • sala@edalfiskur.is • www.edalfiskur.is Eðallax fyrir ljúfar stundir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.