Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.04.2016, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.04.2016, Blaðsíða 2
Ert þú mikill Abba-aðdáandi sjálf? Allir sem hafa gaman af vel gerðri tónlist geta ekki ann- að en fílað Abba. Hvernig þau láta melódíuna smjúga inn í sálina og skella svo textanum, sem oftar en ekki er mjög sorglegur, ofan á allt saman þá myndast einhver sprengja innan í manni. Og svo þessar raddir, hver fílar ekki þessa harmoníu. Var eitthvað sérstakt sem þú gerðir til þess að búa þig undir hlutverkið, og sóttirðu inn- blástur í eitthvað sérstakt? Mamma mía er auðvitað mikil gleðisprengja og glimmer og allt það. En það er líka mikið hjarta í sýningunni, bæði í gleði og sorg. Það er mjög auðvelt fyrir mann að tengja við allar þessar tilfinningar, þörfina fyrir að vita hver maður er og löngunina til að finna hamingjuna í lífunu. Það er kannski rosalega væmið en ég leit mikið til tveggja ára dóttur minnar í ferlinu en hún sameinar þetta allt nokkuð vel, er bæði með stærsta hjarta sem ég veit um og mesti gleðigjafi sem ég hef hitt. Er eitthvað eftirminnilegt sem hefur komið uppá á ferlinu? Við skulum bara segja að fyrsta æfingin á háhæluðu skónum sem allir eru í í lokaatriðinu hafi verið nokkuð skrautleg. Hvernig tilfinning er að leika í söngleik, er það mjög frábrugðið öðrum hlutverkum sem þú hefur tekið að þér? Ég er þakklát fyrir það að fá tækifæri til að taka þátt í ólíkum sýn- ingum, það stækkar mann. Söngleikur eða ekki, þú þarft alltaf að nálg- ast efniviðinn af sömu virðingu og næmi, kafa ofaní efnið og segja sög- una af öllu þínu hjarta. Hvað er á döfinni hjá þér? Fyrst og fremst þá heldur Mamma mía ævintýrið áfram. Eins og planið lítur út núna eigum við eftir að sýna hátt í 60 sýningar fram að sumarfríi. Svo er ég á leiðinni til Póllands í lok maí að sýna Mávinn á Kontakt leiklist- arhátiðinni. Svo vona ég bara að það verði sumar þennan mánuð sem ég fæ í frí. Morgunblaðið/Árni Sæberg ÞÓRUNN ARNA KRISTJÁNSDÓTTIR SITUR FYRIR SVÖRUM Auðvelt að tengja við tilfinn- ingarnar Í FÓKUS 2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.4. 2016 Ritstjórn Árni Matthíasson arnim@mbl.is Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Nú berast enn á ný tíðindi af því að hjá borginni þurfi að skera niðurhjá leikskólum. Krafa um sparnað er sett þvert yfir skóla- og frí-stundasvið og stjórnendum gert að fara ofan í saumana á rekstr- inum. Rekstri sem nú þegar er búið að taka til í ár eftir ár og spara umfram það sem ætti að vera hægt. Í háskólanámi tók ég kúrs í einhverri tegund stjórnunar – það eru víst til margar útgáfur af því að stjórna bæði landi, borg, stofnunum og fyr- irtækjum. En í einum tímanum teiknaði kennarinn þrjá hluti upp á töflu: smásjá, flugvél og gervihnött. Þetta var til að sýna að hægt er að horfa á rekstur frá ólíkum sjónarhólum og stjórna með ólíkum leiðum. Þú getur staðið á jörðu niðri og kannað gaumgæfilega hvað er að gerast. Notað aðferðir vísindanna við að setja sig inn í málin og skoða vandlega hvernig best er að reka fyrirtækið, nú eða leikskólann. Úr flugvél má fá annars konar sýn, og fyrir þá sem standa í rekstri eða stjórnun getur verið nauðsyn- legt að horfa yfir. Öðlast yfirsýn yfir starfsemina, sérstaklega ef hún er umfangsmikil eins og t.d. heilt sveit- arfélag með mörgum stofnunum. Þriðja myndin, sú af gervihnett- inum, er síðan sú sem oft er gripið til þegar á að skera niður, spara, taka til eða hvaða hugtök það eru sem eru notuð. Þegar horft er yfir reksturinn úr gervihnetti þá er í raun hvorki verið að reyna að ná yfirsýn né skoða reksturinn gaumgæfilega. Þá er bara farið hátt upp yfir og allt, hvort sem það heita leikskólar eða annað, verður að pínulitlum deplum sem kallaðir eru einhverju ömurlegu nafni eins og „rekstrareining“. Þegar umræða um niðurskurð í þeim stofnunum sem fóstra minnstu ein- staklinga samfélagins fer af stað hef ég oft á tilfinningunni að aðeins sé verið að horfa á hlutina út frá myndinni af gervihnettinum, ofan úr geimnum. Það á bara að skera niður, sama þótt öllum sem standa niðri í jörðinni eða nánar til- tekið inni á gólfi í leikskólum, sé ljóst að ekki sé hægt að spara meira. Viljum við verri og óheilnæmari mat fyrir börnin? Fleiri börn á hvern starfsmann? Minni sérkennslu? Hætta að kaupa málningu og liti? Börn mega ekki verða fórnarlömb slæmra stjórnunarhátta. Ráðamenn þurfa að hætta gervihnattasýn sinni á vandamálin sem eru til staðar á jörðu niðri. Leikskólar eru ekki bara einingar í rekstri heldur mikilvægustu upp- eldisstofnanir samfélagsins og ef eitthvað er þarf að leggja meira til þeirra en gert er. Upp með smásjána, þannig getum við séð það sem máli skiptir. Leikskóla þarf að skoða á jörðu niðri, ekki frá geimnum. Morgunblaðið/Golli Leikskólar og gervihnettir Pistill Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is ’Þegar umræða umniðurskurð á leik-skólum fer af stað hef égoft á tilfinningunni að aðeins sé verið að horfa á hlutina ofan úr geimnum. Andrea Kristjánsdóttir Ég hef ekki myndað mér skoðun á málinu og á eftir að kynna mér það betur. SPURNING DAGSINS Hvað finnst þér um að ís- lenskir ráðamenn eigi pen- inga í er- lendum skatta- skjólum? Auður Jónsdóttir Ég er ekkert að pirra mig á þessu. Arnór Geir Halldórsson Mér finnst það senda röng skilaboð til almennings. Eiga þeir ekki að sýna fordæmi? Hvaða fordæmi sýna þeir ef þeir geyma peninga annars staðar? Hrafnkell Örn Ingólfsson Ég er ekki búinn að mynda mér skoð- un almennilega. Mér finnst það kjána- legt að þeir séu ekki heiðarlegir. Ritstjóri Davíð Oddsson Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal Umsjón Eyrún Magnúsdóttir, eyrun@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Forsíðumyndina tók Ásdís Ásgeirsdóttir Þórunn Arna Kristjánsdóttir, leikkona, fer með hlutverk brúðarinnar Sophie í söngleiknum Mamma mia sem sýndur er í Borgarleikhúsinu. Söngleikurinn er byggður er á lögum hljómsveitarinnar Abba.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.