Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.04.2016, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.04.2016, Blaðsíða 28
MATUR Á meðfylgjandi mynd má sjá Jerome, sem áður var heimilislaus, að störfum í bakaríi hjá Mic-hel Flamant, í Dole í Frakklandi. Flamant, eigandi bakarísins, ákvað að kenna Jerome iðnina og selja honum bakaríið sitt fyrir eina táknræna evru eftir að Jerome bjargaði lífi hans. Bakarí fyrir eina evru 28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.4. 2016 Getty Images/iStockphoto Borða eða henda? Skylt er að merkja matvæli með dagsetningu en ekki er sama hvort um er að ræða lágmarks- geymsluþol eða síðasta notkunardag. Mikilvægt er að greina þarna á milli því margar matvörur endast mun lengur en lágmarksgeymsluþol segir til um en síðasti notkunardagur er hins vegar dagsetning sem á að taka mikið mark á. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Þessi kona ætti nú held- ur að baka brauð úr þessum bönunum en að henda þeim. arsóun. Lágmarksgeymsluþol segir til um hve lengi matvara heldur eig- inleikum sínum. „Margt getur tak- markað þann tíma t.d. þornun, raka- drægni, þránun, seigja, bragð- og litarbreytingar. Einnig skemmdir af völdum örvera þannig að matur súrnar, fúlnar, myglar o.s.frv. Merk- ingin gefur til kynna þann tíma sem matvörurnar standast þær gæða- kröfur sem ábyrgðaraðili/framleið- andi vörunnar gerir til þeirra,“ segir á mast.is. Matvörur sem eru merktar með lágmarksgeymsluþoli mega ekki vera hættulegar heilsu fólks þó að uppgefinn geymsluþolstími sé liðinn, það má selja þær áfram eftir að upp- gefnu geymsluþoli lýkur, séu þær í neysluhæfu ástandi. Fólk þekkir þetta frá stórmörkuðum þar sem til dæmis ávextir og grænmeti sem far- ið er að láta á sjá er selt með afslætti. Sama á líka við um til dæmis mjólk. Þessar vörur eru hæfar til neyslu ef þær líta eðlilega út og lykta og smakkast eðlilega. Uppfylli mat- vörur þetta hvetur Matvælastofnun neytendur til að nýta þær vel þó að geymsluþolstími sé liðinn. Mörg þurrvara endist líka mjög vel í lokuðum umbúðum og jafnvel mörg ár fram yfir „best fyrir“ dag- setninguna. Pasta sem er komið fram yfir dagsetningu er mögulega ekki eins gott á bragðið en það er vel hægt að nota það. Síðasti notkunardagur er hins veg- ar notaður á matvörur sem eru mjög viðkvæmar fyrir örveruvexti þannig að hættulegar örverur geta fjölgað sér á geymslutíma og varan þannig orðið skaðleg heilsu, sé hennar neytt eftir síðasta notkunardag. „Það sem skiptir máli er að varan getur valdið hættu, þó að hún virðist vera í lagi hvað útlit, lykt og bragð varðar,“ segir á vef Mast. Þessa merkingu á því að virða og ekki borða kjöt sem er komið fram yfir dagsetningu. Hins vegar er hægt að lengja endingu vör- unnar með því að elda matinn daginn sem hann rennur út og geyma í ís- skáp í allt að tvo daga eða að frysta. Skylt er að merkja pökkuð mat-væli með dagsetningu lág-marksgeymsluþols eða síðasta notkunardegi en þetta tvennt er ekki það sama. Í leiðbeiningum á vef Mat- vælastofnunar er lögð áhersla á að tryggja öryggi með því að merkja matvöru með síðasta notkunardegi ef hún getur orðið hættuleg áður en augljóst er að hún er farin að skemmast. Þar stendur sömuleiðis að það eigi að merkja matvöru með lágmarksgeymsluþoli ef hún er örugg til neyslu eftir „best fyrir“ dagsetningu til að minnka mat- Margir eiga gömul egg í ísskápn- um en hvaða áhrif hefur það á notkunina? Þegar egg eldist tapar það raka í gegnum skurnina. Þess vegna fljóta gömul egg (í kringum sex vikna gömul) í vatni á meðan ný egg sökkva. Þetta próf er því hægt að nota til að kanna hvort egg sé gamalt eða ekki. Margir geyma egg í sérstökum bökkum í ís- skápnum og því er dagsetningin á bakkanum hvergi nærri þegar loks á að nota eggin. Það er vel hægt nota gömul egg ef þau hafa verið geymd í ísskáp. Ef nota á gömul egg í smáköku- bakstur gæti þurft að bæta við einu til tveimur teskeiðum af vatni á egg eða deigið verður of þurrt. Ef baksturinn á að heppnast vel ætti síður að nota gömul egg í kökur eða marengs. Það er hægt að frysta egg ef það á ekki að nota þau í bráð. Þá þarf að skilja að rauðuna og hvítuna. Best er að blanda vel saman ¼ te- skeið af sykri við hverja rauðu. Hvíturnar eru frystar sér án íblöndunarefna. Egg N ýbýlavegur8.-200 Kópavogur-S:527 1717 - dom usnova@ dom usnova.is -w w w .dom usnova.is Frítt verðmat Viltu vita hvað þú færð fyrir fasteignina þína ? Fasteignasala venjulega fólksins... Fagljósmyndun Traust og góð þjónusta alla leið Stundum þegar á að baka er ekki vitað hversu gamalt hveitið í dunkinum er eða eggin í ís- skápnum. Karin Allen, doktor í matvælafræði hjá Háskólanum í Utah í Bandaríkjunum, gefur góð ráð um geymslu og notkun þess- ara matvæla á vefsíðu háskólans. Hvað gerist þegar hveiti er orðið gamalt? Það getur þurft að hafa aldur hveitisins í huga þegar bakað er úr því en hveiti er notað í svo margt. Sterkjan breytist lítið en pró- teinin sem mynda glúten breyt- ast og þar með teygjanleiki deigsins. Það er vel hægt að nota gamalt hveiti en hveiti sem er meira en ársgamalt er betra að nota í bakstur þar sem þarf ekki mikið glúten eins og í kök- ur. Til að baka gott brauð eða pítsu er betra að nota nýtt hveiti. Best er að geyma hveiti í þétt- lokuðu íláti fjarri hita og raka. Allen segir að það sé hægt að frysta heilhveiti í loftþéttum pokum til að koma í veg fyrir að það þráni. Hveiti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.