Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.04.2016, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.04.2016, Blaðsíða 32
Forsætisráðherra Kanada, Justin Trudeau, virðist ófær um að stíga feilspor. Hann og kona hans Sofie lifa afar heilsusamlegu lífi. Sjálf er hún menntaður jógakennari. AFP Forsætisráðherra Kanada, Justin Trudeau, er mikill uppáhaldsleiðtogi víða heim allan. Nú hef- ur hann heillað þá sem hafa áhuga á heilsu og hreyfingu þegar mynd af honum í krefjandi jóg- astellingu fór vítt og breitt um netheima í vikunni. Myndin er raunar ekki ný af nálinni heldur er þetta mynd sem Trudeau sjálfur birti á sam- félagsmiðlinum Twitter í apríl 2013. Eftir að CNN-fréttastöðin endurbirti hana á Twitter nú þremur árum síðar rataði hún einhverra hluta vegna inn í netheima á ný. Þetta er reyndar ekki í fyrsta sinn (og eflaust ekki það síðasta) því færni hans á einhjóli hefur áður komið fyrir augu þeirra sem vafra um netið. Hraustasti leiðtoginn? Pierre faðir Justin Trudeau var forsætisráðherra Kanada á 8. áratugnum. Eftir að myndin af syninum til hægri kom upp á yfirborðið fóru margir miðlar í það að draga fram gamla mynd af föður hans heitn- um sem var ekki síður íþróttamannslegur leiðtogi. Pierre heimsótti Ísland á sínum tíma, kannski kemur Justin sonur hans til Íslands einn daginn. Leiðtoginn sýndi listir sínar á einhjóli á listviðburði fyrir nokkru og myndir af því bárust einnig um netheima. Justin Trudeau starfaði sem snjóbrettakennari á sínum yngri árum og þykir liðtækur á brettinu. Á kosningaferðalögum lyftir Trudeau börnum gjarnan hátt á loft. HEILSA 32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.4. 2016 Bandaríska kvennalandsliðið í knattspyrnu krefst sömu launa og karlalandsliðið. Þær hafa nú höfðað mál til að ná þessu í gegn. En ætti þetta ekki að vera augljóst, nú þegar árið er 2016? Launajafnrétti í knattheimi Höfðabakka 9, 110 Reykjavík, sími 525 8210 eddaehf@eddaehf.is • www.eddaehf.is EDDA HEILDVERSLUN Stofnsett 1932 Allt lín fyrir: Hótelið - Gistiheimilið - Bændagistinguna - Airbnb Rúmföt og lök Handklæði Sængur og koddar Sloppar og inniskór Almenningshlaup njóta sífellt meiri vinsælda og hlaupahópar eru starfandi árið um kring. Nú þegar tekið er að glitta í vor- ið fara enn fleiri hlauparar af stað og spretta úr spori. Það ætti ekki að vera vandamál að finna al- menningshlaup við hæfi á næst- unni. Bara í aprílmánuði eru þó- nokkur hlaup á dagskrá og svo bætir bara í eftir því sem sól hækk- ar á lofti. Flóahlaupið fer fram í dag, laug- ardaginn 2. apríl. Hægt er að velja um 3 km, 5 km og 10 km. Skráning á staðnum og ræst kl. 13:00 við Fé- lagslund, Gaulverjabæjarhreppi. Ungmennafélag Akureyrar stendur fyrir svokölluðum vetr- arhlaupum og hið síðasta í þeirri hlauparöð er einmitt í dag, laug- ardaginn 2. apríl. Vetrarhlaup UFA nr. 6 verður ræst frá Bjargi á Akureyri kl. 11 og eru hlaupnir 10 km. Skráning er á staðnum í bæði hlaupin, þannig að árrisulir les- endur í nágrenninu ættu að geta komið sér á staðina í tæka tíð. Norðlendingar fá nóg að gera við hlaupin því Vorhlaup VMA verður haldið í annað sinn fimmtudaginn 14. apríl nk. Hlaupið er frá Menningarhús- inu Hofi kl. 17.30 og í boði eru bæði 5 og 10 km hlaupaleiðir. Hinn 21. apríl, sumardaginn fyrsta, fer svo Framhlaupið fram en í því er hægt að velja um 3 og 5 km vegalengdir. Sama dag fer Víðavangshlaup ÍR fram en þar eru hlaupnir 5 km. Þeim sem vilja lengri vegalengd- ir má benda á Vormaraþon Félags maraþonhlaupara hinn 23. apríl, en þar er hægt að velja um hálft eða heilt maraþon. Hér hafa einungis verið talin upp nokkur hlaup í apríl en listinn er ekki tæmandi fyrir það sem er í gangi í mánuðinum. Á hlaupav- efnum www.hlaup.is er að finna upplýsingar um öll almennings- hlaup í vor og sumar en þau hlaupa á tugum. Kannski er það bara góð hugmynd að skipuleggja sumarið einfaldlega út frá almenn- ingshlaupum víðsvegar um landið. Það þarf ekki að bíða fram á sumarið með að hefja þátttöku í almennings- hlaupum. Af nógu er að taka strax í apríl. Morgunblaðið/Ernir ALMENNINGSHLAUP Í APRÍL Hlaupið inn í vorið Vertu upplýstur! blattafram.is BREGSTU VIÐ, EF ÞÚ SÉRÐ EÐA VEIST AF OFBELDI, EÐA FINNST ÞÉR ÞÆGILEGRA AÐ LÍTA UNDAN?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.