Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.04.2016, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.04.2016, Blaðsíða 37
Hugsað smátt og létt Blaðamaður kembdi vefsíður flug- félaganna og setti saman töfluna hér að neðan sem sýnir hve stóran og þungan handfarangur helstu flugfélög leyfa. Á listanum eru flest þeirra flug- félaga sem fljúga til Keflavíkur, ýmist árstíðabundið eða árið um kring, sem og leiðandi alþjóðleg flugfélög sem Íslendingar geta vænst þess að nota þegar haldið er lengra út í heim. Taflan sýnir að til að vera alveg öruggur í öllum flugferðum ætti ferðalangurinn ekki að láta hand- farangurinn vega meira en 7 kg. Er þó rétt að taka fram að Alitalia og WOW air draga mörkin við 5 kg fyrir þá handfarangursheimild sem innifalin er í verði miðans. Þá er Með hverju árinu virðastflugfélögin þrengja æmeira að farangursheim- ildum farþega. Verða ferðalangar að fara varlega og gæta þess að töskurnar séu hvorki of stórar, of þungar né of margar, ellegar er hætta á að fá háan reikning við inn- ritun. Til að flækja málin þá hafa flug- félögin mjög ólíkar farangurs- reglur. Leyfa þannig sum flug- félögin handfarangur af hvaða þyngd sem er á meðan önnur stoppa fólk við innritunarborðið ef flugfreyjutaskan fer yfir 5 kg. Sum- ir leyfa digrar töskur, svo lengi sem summa hæðar, breiddar og dýptar er innan réttra marka, á meðan aðr- ir taka ekki í mál að taskan fari yfir 20 cm á dýptina eða 43 cm á hæðina. öruggt að tekst að vera innan stærðarmarka allra flugfélaga ef handfarangurinn er ekki meira en 43 cm á hæð, 32 cm á breidd og 20 cm á dýpt. Er þá miðað við heild- arstærð töskunnar, að meðtöldum hjólum, handföngum og öðru sem kann að skaga út úr töskunni. Bakpoki sem fæddist á Kickstarter Mörg flugfélög leyfa þó mun stærri töskur og þyngri í farþegarýminu. Þannig eru nokkur á listanum sem leyfa töskur sem eru um og yfir 60 x 40 x 25 cm að stærð. Wizz Air, easy- Jet og Iberia Express, sem öll fljúga til og frá Keflavík, eru ekki með neina hámarksþyngd á hand- farangri. En hvaða taska fellur þá best að kröfum allra flugfélaga? Áhugaverður bakpoki sem vert er að benda lesendum á er Carry-on 2.0 Bag frá sprotafyrirækinu Min- aal (www.minaal.com). Er um að ræða aðra kynslóð bakpoka sem varð upphaflega að veruleika árið 2013 í gegnum fjáröflun á Kick- starter. Nýja útgáfan er gerð úr sterkara efni en sú fyrri, er með þægilegri handföngum og smellu- kerfi sem má nota til að þjappa vel saman innihaldi bakpokans. Stærð- in er 55 x 35 x 20 cm. Carry-on 2.0 Bag er núna í for- sölu á vefsíðu Minaal og kostar 269 dali í augnablikinu. ai@mbl.is Leyfileg hámarksstærð og -þyngd handfarangurs á almennu farrými -- Heimild: Ebags.com, Seatguru.com og heimasíður flugfélaganna. * Fyrir Wizz air er birt stærð handfarangurs sem hafa má ókeypis. Flugfélagið leyfir stærri handfarangur gegn gjaldi. Hjá WOW air má hafa handfarangur allt að 12 kg að þyngd gegn viðbótargjaldi. Mörg flugfélög leyfa stærri og þyngri töskur ef keyptur er miði á viðskiptafarrými. Auk lítillar tösku leyfa mörg flugfélög að farþegar taki með handtösku, fartölvutösku eða annað smálegt. Þau flugfélög á listanum sem fljúga til Íslands eru merkt með bleiku. Fyrirvari er gerður um villur. Á flugvellinum í Kaíró. Það getur verið gott að ferðast létt og vissara að kunna skil á farangursreglum flugfélaganna. Hversu stór má handfarangurinn vera? 3.4. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37 Flogið með Icelandair Ferðakynning Lúxus skemmtisiglingar Fararstjórarnir Þóra Björk Valsteinsdóttir og Kristinn R. Ólafsson kynna siglingarnar í Skógarhlíð 12, þriðjudagskvöldið 5. apríl kl. 20:00. Gengið inn neðan við húsið, gegnt Hlíðarenda. Miðjarðarhaf og Asía
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.