Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.04.2016, Blaðsíða 47
3.4. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 47
Forvitnileg þriggja daga kvik-
myndahátíð er í Bíó Paradís um
helgina, Reykjavík World Inter-
national Film Festival. Sýndar eru
tíu fjölbreytilegar kvikmyndir frá
öllum heimshornum.
Hljóðinnsetning eftir
Þórönnu Björns-
dóttur, unnin í sam-
starfi við Nicolas Ku-
nysz og Veðurstofu
Íslands, verður
flutt í Mengi við
Óðingstorg kl.
17 á laugardag.
Verkið sækir
innblástur í veð-
urskil á Íslandi,
sem birtast í hæð-
um og lægðum.
Þorpið Kulusuk á Austur-
Grænlandi er viðfangsefni sýn-
ingar með ljósmyndum eftir
Díönu Júlíusdóttur sem verður
opnuð á laugardag í Skotinu í
Ljósmyndasafni Reykjavíkur.
Ari Marteinsson og Sophie
Haack koma fram í Alþýðuhúsinu
á Siglufirði á sunnudag kl. 15.30 og
fjalla um skapandi verkefni sem þau
hafa unnið að. Þau eru með mast-
ersgráðu í samskiptahönnun.
Gaflaraleikhúsið verður með síð-
ustu sýningar á skoska verðlauna-
leikritinu Hvítt í Hafnarborg á
sunnudag kl. 13 og 15. Sýningin,
sem er ætluð börnum frá 2 til 6
ára, hefur fengið mikið lof.
Þetta verkefni kom upp í hend-urnar á mér,“ segir MaríaMagnúsdóttir tónskáld um
fyrsta kórverk sitt, Guðnýjarljóð,
sem kvennakórinn Katla frumflytur í
Listasafni Íslands á morgun, sunnu-
dag, kl. 14.
„Í vor sem leið lauk ég BMus-
lokaprófi í djassi frá Konunglega
listaháskólanum í Haag í Hollandi og
var milli verkefna þegar ég sá auglýst
eftir styrkumsóknum hjá Tónskálda-
sjóði 365. Þá var ég nýbúin að lesa
grein sem nefnist „Af þöggun skáld-
kvenna“ eftir Magneu J. Matthías-
dóttur þar sem hún fjallar um upp-
færslu Leikfélags Hörgdæla á
leikritinu Þöggun eftir Jón Gunnar
Þórðarson þar sem saga skáldkvenn-
anna Ólafar frá Hlöðum, Skáld-Rósu
og Guðnýjar frá Klömbrum er rakin.
Í framhaldinu fór ég að skoða sér-
staklega sögu Guðnýjar og las fræði-
greinina „Gegnum orðahjúpinn. Líf
og ljóð Guðnýjar Jónsdóttur frá
Klömbrum“ eftir Helgu Kress og
varð heilluð af þessari skáldkonu.
List hennar og dramatískt lífshlaup
hreyfði sterklega við mér þannig að
ég sökkti mér ofan í ljóð hennar,“
segir María og rifjar upp að Guðný,
sem var fyrst íslenskra kvenna til að
fá veraldlegt ljóð birt eftir sig á
prenti, neyddist til að gefa tíu mánaða
dóttur sína frá sér eftir að hafa horft
á eftir tveimur börnum í gröfina.
Hlakkar til að heyra verkið
María valdi ljóðin „Á heimleið“, „Að
norðan“ og „Sit ég og syrgi“ til að
semja við, en tónsmíðarnar voru hluti
af mastersnámi hennar við Gold-
smiths University of London þar sem
hún leggur nú stund á nám í dægur-
tónlist.
Að sögn Maríu hafði hún fljótt
samband við stjórnendur Kötlu, þær
Hildigunni Einarsdóttur og Lilju
Dögg Gunnarsdóttur, því henni
fannst að verkið yrði að syngjast af
kvennakór og líkaði vel hljómurinn í
Kötlu. „Upphaflega ætlaði ég að
reyna að hafa tónlistina við ljóðin létt-
ari og nútímalegri, en þegar ég fór að
semja við ljóðin sem eru samin í róm-
antískri stefnu fyrir 200 árum þá
reyndust þau svo þung og íslensk að
mér fannst ekkert passa nema klass-
ísk nálgun. Þó það heyrist stöku
djasshljómur er yfirbragðið eins og
sálmur,“ segir María og tekur fram
að hún hlakki mjög mikið til að heyra
afraksturinn á morgun.
Lætur engan ósnortinn
„Okkur leist strax vel á þessa hug-
mynd enda magnaður kveðskapur
sem talar sterkt til okkar,“ segir Lilja
Dögg og tekur fram að þær Hildi-
gunnur séu ávallt spenntar fyrir
óvenjulegum verkefnum þar sem
landamæri milli list- og tónlistar-
greina séu flæðandi, en á tónleik-
unum á morgun flytja Helga Kress
prófessor og María Ellingsen leik-
kona nokkur orð um líf og ljóð Guð-
nýjar Jónsdóttur.
„Þetta er krefjandi tónlist til hlust-
unar að því leytinu til að hún snertir
hlustendur djúpt,“ segir Lilja Dögg
um kórverkið Guðnýjarljóð. „Maríu
tekst í tónlist sinni listilega vel að
spegla stemninguna í ljóðum Guð-
nýjar. Sú góða speglun sem er milli
texta og tóna gerir það að verkum að
enginn er skilinn eftir ósnortinn.“
Þess má að lokum geta að aðgangur
að tónleikunum er ókeypis. silja@mbl.is
Stjórnendurnir Lilja Dögg Gunnarsdóttir og Hildigunnur Einarsdóttir ásamt
konunum í kvennakórnum Kötlu koma fram í Listasafni Íslands á morgun.
„Dramatískt
lífshlaup“
Kvennakórinn Katla frumflytur Guðnýjarljóð eftir
Maríu Magnúsdóttur í Listasafni Íslands.
Tónskáldið María Magnúsdóttir.
MÆLT MEÐ
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
til kl. 16 mánudaginn 11. apríl.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
Sérblað Morgunblaðsins
um brúðkaup kemur út
föstudaginn 15. apríl
Fatnaður fyrir brúðhjónin, förðun,
hárgreiðsla, brúðkaupsferðin,
veislumatur, veislusalir
og brúðargjafir
eru meðal efnis í blaðinu.
SÉRBLAÐ
–– Meira fyrir lesendur
Brúðkaupsblaðið