Morgunblaðið - 28.05.2016, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2016
H
a
u
ku
r
0
1
.1
6
Viðskiptatækifæri á www.kontakt.is
• Garðyrkjustöð Ingibjargar, ein veglegasta garðyrkjustöð landsins er
til sölu. Velta hefur verið stöðugt vaxandi og hagnaður mjög góður.
• Eigendur stórglæsilegs, vel rekins 70 herbergja hótels á
höfuðborgarsvæðinu óska eftir meðeiganda að helmingshlut í
félaginu.
• Stærsta, skemmtilegasta og elsta gæludýraverslun landsins,
Dýraríkið, er nú fáanlegt. Gæludýr og gæludýravörur. Spennandi
verkefni fyrir dýraáhugafólk.
• Hótel Siglunes er lítið og mjög fallegt hótel/gistihús í eigin húsnæði í
ferðamannabænum Siglufirði. Þar eru 19 herbergi, fullbúinn
veitingastaður og bar. Frábærir dómar hjá ferðamiðlum.
• Umboð fyrir eldhúsinnréttingar. Þekkt evrópskt merki í
eldhúsinnréttingum og fataskápum. Velta á bilinu 70-100 mkr. Gott
tækifæri fyrir aðila í skyldum rekstri. Auðveld kaup.
• Lítil heildverslun með gott umboð fyrir hágæða múrefni og
klæðningar. Velta um 100 mkr. Miklir möguleikar á vexti
• Vaxandi innflutnings- og smásölufyrirtæki með mjög góða
markaðshlutdeild á sérhæfðum markaði. Ársvelta 130 mkr. og
EBITDA 30 mkr.
• Fiskvinnsla á SV-horninu í framleiðslu á fiski og harðfiski. Velta 50
mkr. Inannlandsssala og útflutningur. Miklir möguleikar til
veltuaukningar.
• Verslunarkeðja með matvæli (12 útsölustaðir) og miðlæga
framleiðslu. Ársvelta 650 mkr. Miklir vaxtamöguleikar og góð
afkoma.
• Gamalgróin heildverslun með þekkt leikföng og gjafavörur. Velta um
100 mkr. Góð afkoma.
• Stórt og gott hótel miðsvæðis á Suðurlandi sem býður upp á mikla
möguleika fyrir áhugasaman, nýjan eiganda.
• Öflugt og vaxandi fyrirtæki í skiltagerð og markaðslausnum. Vel
tækjum búið. Ársvelta um 100 mkr. og góð afkoma.
Fagleg miðlun fyrirtækja
og rekstrareininga
• Til sölu fyrirtæki sem sérhæfir sig í búnaði fyrir viðburði,
viðskiptavinir eru sveitafélög, fyrirtæki og einstaklingar.
• Við erum að vinna að sölu á mjög vinsælu kaffihúsi í 101
Reykjavík.
• Til sölumeðferðar nokkur mjög áhugaverð veitingahús í 101
Reykjavík.
• Við vinnum að sölu á stóru landsþekktu verslunarfyrirtæki með
sérvöru.
• Til sölu fullkomið stóreldhús með öllum tækjum og tólum í
Reykjavík, húsnæðið er um 300 fm.
• Hádegisverðarþjónusta við fyrirtæki og stofnanir til sölu
• Boostbar, söluturn í úthverfi sem veltir um 120 milljónum
• Erum að vinna að mjög áhugaverðu gisti og ferðaþjónustu
tækifæri á Akureyri.
Lækjargötu 2, 2. hæð | Sími 546 1100 | investis.is | fyrirtaekjakaup.is | investis@investis.is
!
"#$
%
$!
$"
#
%%
!#
" "
&'()* (+(
,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5
%
"
"%!
!$%
%"
$$
#
!%"#
"
%
"!
!"
$"
$%!
#
"
!%
"
!! !
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Vísitala neysluverðs hækkaði um
0,42% milli mánaða miðað við verð-
lag í maí. Þetta er meiri hækkun en
greiningardeildir höfðu spáð, en
þær höfðu gert ráð fyrir 0,2-0,3%
hækkun á milli mánaða.
Samkvæmt þessu mælist árs-
verðbólgan nú 1,7%. Sé hins vegar
litið framhjá húsnæðislið vísitöl-
unnar er verðbólgan einungis 0,3%.
Að mati greiningardeildar Arion
banka mætti túlka hækkun annarra
liða í vísitölunni en húsnæðis sem
vísbendingu um að verslun sé að
velta launahækkunum út í verðlag.
Ársverð-
bólgan 1,7%
Jón Þórisson
jonth@mbl.is
Síminn hefur áhuga á samstarfi við Reiknistofu bank-
anna (RB), hvort sem fyrirtækið yrði meðal eigenda eða
sem samstarfsaðili, segir í skriflegu svari frá Símanum
við fyrirspurn Morgunblaðsins. Segir í svarinu að um
samninga sem fyrirtækið geri eða geri ekki, ríki almennt
trúnaður og því sé ekki unnt að staðfesta aðkomu Símans
að nýtingu forkaupsréttar Sparisjóðs Höfðhverfinga,
sem fjallað var um í ViðskiptaMogganum á fimmtudag-
inn. Síminn telji sig hafa ýmislegt fram að færa ef af nán-
ara samstarfi yrði, segir ennfremur í svari fyrirtækisins.
Eins og fram kom í ViðskiptaMogganum eru átök um
7,2% hlut í Reiknistofu bankanna (RB). Á grundvelli for-
kaupsréttarákvæðis í samþykktum RB lýsti Sparisjóður
Höfðhverfinga því yfir að hann myndi nýta sér forkaups-
rétt á hlut sem Kvika banki hefur selt til fjárfesta. Jó-
hann Ingólfsson, stjórnarformaður sparisjóðsins, segir
sjóðinn ekki hafa í hyggju að eiga hlutinn. Segir hann að
fyrir liggi samkomulag við utanaðkomandi aðila um að sá
kaupi hlutinn, en hann sé bundinn trúnaði um hver sá að-
ili sé. ViðskiptaMogginn hefur fyrir því traustar heim-
ildir að sá aðili sé Síminn eða félag honum tengt. Síminn
er skráður á aðalmarkað Kauphallarinnar.
Bankarnir þurfa að selja
Eins og fram hefur komið hefur eignarhald RB verið í
eigu fjármálafyrirtækja fram til þessa. Má það rekja til
sögulegra ástæðna þar sem í upphafi þótti verulegt hag-
ræði því fylgjandi að kjarnakerfi væru byggð upp og rek-
in sameiginlega. En nú eru skýr teikn á lofti um að það sé
að breytast. Stærstu hluthafar RB eru stóru viðskipta-
bankarnir þrír, Landsbankinn, Arion banki og Íslands-
banki. Í ljósi sáttar hluthafa RB við Samkeppniseftirlitið
frá 2012 skuldbundu bankarnir sig til að minnka hlut
sinn. Leitað var eftir upplýsingum hjá bönkunum um
hvernig þau mál stæðu.
Í svari Íslandsbanka kemur fram að aðilar hafi sýnt
hlut bankans áhuga og samtöl hafi átt sér stað en þau
ekki enn leitt til viðskipta.
Minnst þriðjungur hlutar hans í RB sé til sölu en bank-
inn á 30,1% hlutafjár. Hluturinn sé nú þegar í opnu sölu-
ferli og til greina geti komið að selja meira en sem nemur
þriðjungi. Áhugasömum hafi verið boðið að setja sig í
samband við fyrirtækjaráðgjöf bankans en nú sé verið að
setja söluna í formlegra ferli.
Frá Arion banka fengust þau svör að fyrir lægi að
bankinn hefði áhuga á að selja 21,7% hlut sinn og hann
væri allur auglýstur til sölu á heimasíðu bankans. Bank-
inn hefði annað veifið orðið var við áhuga en engar form-
legar viðræður átt sér stað né formleg tilboð borist.
Landsbankinn á 36,8% hlutafjár og segist í svari sínu
hafa boðið þriðjung þess til sölu á vef sínun á síðasta ári
en engar fyrirspurnir borist. Landsbankinn staðfestir að
nýverið hafi orðið vart áhuga á hlut bankans í RB. Ekki
standi til að selja stærri hlut en sem nemur þriðjungi
hlutarins og komi til sölu á hlutum bankans muni salan
fara fram í opnu söluferli.
Af þessu er ljóst að til sölu eru hið minnsta 44% hluta-
fjár í RB.
Í svörum allra bankanna þriggja kemur fram að starf-
semi RB sé mjög mikilvæg fyrir rekstur þeirra, ekki síst
þar sem hún sinni grunnþjónustu fyrir tölvukerfi þeirra.
Síminn staðfestir
áhuga á Reiknistofu
Morgunblaðið/Eggert
Reiknistofa bankanna Eignarhaldið er að breytast.
Sala á hlutum í Reiknistofu bankanna
» Af svörum stóru hluthafanna að ráða eru um
44% hlutafjár í RB til sölu, ef til vill meira.
» Að viðbættum þeim 7,2% sem nýlega voru við-
skipti með, er hér um meira en helming hlutafjár
að ræða sem skipt gætu um hendur.
» Hugsanlegt er að miklu ráði um endanlegt eign-
arhald hver á endanum kaupir hinn umdeilda 7,2%
hlut.
Bankarnir finna fyrir auknum áhuga á hlut sínum í RB
Hagnaður Eimskips jókst um 21,1% á
fyrsta ársfjórðungi frá sama tímabili í
fyrra og nam hann 1,8 milljónum
evra, eða 252 milljónum króna miðað
við núverandi gengi.
Hagnaður fyrir afskriftir og fjár-
magnsliði, EBITDA, nam 9,6 millj-
ónum evra, eða rúmlega 1,3 millj-
örðum króna, sem er 66% vöxtur frá
sama tímabili í fyrra. Flutningsmagn
jókst um 8,1% í áætlunarsiglingum
félagsins á Norður-Atlantshafi og
5,9% aukning varð í flutningsmagni í
flutningsmiðlun. Samtals námu
rekstrartekjur félagsins á fjórð-
ungnum 113,3 milljónum evra, eða
tæplega 16 milljörðum króna, og juk-
ust um 0,6 milljónir evra frá síðasta
ári.
Handbært fé frá rekstri nam 12,7
milljónum evra frá janúar til mars,
samanborið við 3,1 milljón evra á
sama tímabili í fyrra. Nam handbært
fé félagsins í lok mars 47,3 milljónum
evra, jafngildi 6,6 milljarða króna.
Eiginfjárhlutfall Eimskips var tæp-
lega 60% í lok fjórðungsins.
Gylfi Sigfússom, forstjóri, segir í
afkomutilkynningu til Kauphallar að
þetta sé besti fyrsti ársfjórðungur
Eimskips frá árinu 2009. „Afkomuspá
fyrir árið 2016 hefur verið hækkuð og
er nú á bilinu 49 til 53 milljónir evra í
stað þess að vera 46 til 50 milljónir
evra eins og kynnt var í febrúar.“
Gylfi segir Eimskip halda áfram að
meta möguleg tækifæri til vaxtar.
„Við erum komin langt í fyrir-
tækjakaupum erlendis og ráðgerum
að ljúka þeim á þriðja ársfjórðungi.“
jonth@mbl.is
Hagnaður
Eimskips jókst
um fimmtung
Eimskip Gylfi segir þetta besta
fyrsta ársfjórðung frá 2009.
Fyrirtækjakaup erlendis langt komin
og ráðgert er að ljúka þeim síðar á árinu