Morgunblaðið - 28.05.2016, Page 24
24 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2016
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
Frakkland stendur nú frammi fyrir
mestu ólgu á vinnumarkaði í um
tveggja áratuga skeið, en hún litast
af öldu mótmæla og verkföllum gegn
umdeildum breytingum á vinnulög-
gjöf Frakklands, að sögn fréttaveit-
unnar AFP.
Francois Hollande, forseti Frakk-
lands, hét því í gærmorgun að hvika
ekki frá vinnulöggjöfinni. Hollande
segir að haldið verði áfram með
breytingar á vinnulöggjöfinni, þar
sem þær séu af hinu góða. Forsetinn
segir að réttur manna til að mót-
mæla verði virtur, en frönsk stjórn-
völd ætli sér að tryggja ferðafrelsi
borgaranna og eðlilegan aðgang að
eldsneyti. Hann ræddi málið við
fréttamenn í Japan þar sem hann var
á fundi G7-ríkjanna í gær.
Mótmæli sem hafa brotist út
undanfarið víða um Frakkland hafa
raskað samgöngum. Eldsneytis-
skortur hefur verið í París og bið-
raðir myndast víða við bensínstöðvar
stöðvum landsins ýmist lokaðar eða
með skerta starfsemi vegna mót-
mælaaðgerða verkalýðsfélaga.
Stjórnvöld segja breytingarnar á
vinnulöggjöfinni munu koma í veg
fyrir allt of mikið atvinnuleysi og
laða að fleiri fyrirtæki. Talsmenn
verkalýðshreyfinga segja hana ekki
verja réttindi starfsmanna heldur
fyrirtækjanna.
Samkvæmt löggjöfinni geta fyrir-
tæki sett starfsmönnum sín eigin
vinnuskilyrði. Hún gerir stjórnend-
um kleift að fækka störfum þegar illa
árar og að fara yfir 35 klst. vinnu-
viku, en hún gekk í gildi árið 2000.
Breytingarnar voru samþykktar
af frönsku ríkisstjórninni og var
þeim komið í gegn án þess að at-
kvæðagreiðsla færi fram á franska
þinginu. Enn á eftir að samþykkja
hana svo hún verði að lögum.
Ár er í næstu forsetakosningar.
Talið er líklegt að Hollande eigi eftir
að gefa kost á sér en afstaða hans til
breytinga á vinnulöggjöfinni er ekki
talin auka vinsældir hans, sem hafa
dalað undanfarið.
birgðastöðvar fyrir utan eina sem er
í Gargenville en þar er verkfall.“
Þetta er haft eftir talsmanni franska
samgönguráðuneytisins. Með þessu
móti verður meira eldsneyti á
bensínstöðvum en verið hefur. Hins
vegar stendur fimmtungur bensín-
stöðva frammi fyrir eldsneytisskorti.
Enn eru sex af átta olíuhreinsunar-
vegna mótmælaaðgerða verkalýðs-
félaga við olíubirgðastöðvar.
Áfram mótmælt
Mótmælaaðgerðirnar héldu áfram
í gær og rýmdi lögreglan 15 olíu-
birgðastöðvar af samtals 100 sem
eru í öllu landinu. „Allar mótmælaað-
gerðir hafa verið stöðvaðar við olíu-
Stendur við vinnulöggjöfina
Lögreglan stöðvaði mótmæli við 15 olíubirgðastöðvar Endalok 35 stunda
vinnuviku? Stjórnvöld segja breytingar á vinnulöggjöf minnka atvinnuleysi
AFP
Mótmæli Franska lögreglan stöðvaði mótmæli við 15 olíubirgðastöðvar.
„71 ár er liðið frá því að dauðinn féll af himnum ofan
og heimurinn breyttist. [...] sem sýndi að mannkynið
hefur alla burði til að tortíma sér sjálft,“ sagði Bar-
ack Obama, forseti Bandaríkjanna, í opinberri heim-
sókn til Hiroshima í Japan í gær. Heimsóknin var
söguleg fyrir þær sakir að Obama varð fyrsti sitjandi
forseti Bandaríkjanna til að heimsækja japönsku
borgina eftir að Bandaríkjamenn vörpuðu kjarn-
orkusprengju á hana í ágúst árið 1945 í síðari heims-
styrjöldinni.
Obama lagði blómsveig að minnismerki um þá sem
létu lífið. Hann heilsaði þeim sem lifðu af árásina af
og voru viðstaddir, og tók jafnframt utan um Shige-
aki Mori, einn eftirlifenda. AFP
71 ár frá því
„dauðinn féll
af himnum“
Lögreglan í Rio
de Janeiro í
Brasilíu leitar nú
30 manna sem
grunaðir eru um
að hafa nauðgað
16 ára stúlku og
sett myndskeið
af verknaðinum
á samfélags-
miðla. Stúlkan
telur að sér hafi verið byrlað eitur-
lyf. Á laugardaginn var fór hún í
heimsókn til kærasta síns en vakn-
aði í öðru húsi umkringd mönn-
unum. Handtökuskipun hefur verið
gefin út á hendur mönnunum, einn-
ig kærastanum. Atvikið átti sér
stað í fátækrahverfi í vesturhluta
Ríó.
Hópnauðgunin hefur verið for-
dæmd á samfélagsmiðlum og hefur
hrundið af stað herferð gegn því
sem baráttufólk kallar „nauðg-
unarmenningu“ í Brasilíu. Mynd-
skeiðið er 40 sekúndna langt og því
var deilt víða áður en dreifing þess
var stöðvuð.
BRASILÍA
30 manns grunaðir
um hópnauðgun
Fimm menn
voru dæmdir í
lífstíðarfangelsi
fyrir hryðju-
verkaárásir sem
þeir frömdu ár-
ið 2010 í Kam-
pala, höfuðborg
Úganda, þar
sem 74 létu líf-
ið. Á meðal þeirra var Isa Ahmed
Luyimam, aðalskipuleggjandinn
sem er sagður liðsmaður íslömsku
hryðjuverkasamtakanna al-
Shabab.
Tveir af þeim voru dæmdir í 50
ára fangelsi. Þegar dómur var
kveðinn upp sagðist dómarinn,
Alfonse Owiny-Dollo, ekki trúa
því að lífstíðarfangelsi hefði fyrir-
byggjandi áhrif. Dómurinn er lík-
lega sá fyrsti sem fellur yfir með-
limum al-Shabab utan Sómalíu.
Hryðjuverkasamtökin al-Shabab
tengjast al-Qaeda.
ÚGANDA
Fimm í lífstíðarfang-
elsi fyrir hryðjuverk
Fyrsta tilfelli af ónæmi gegn
sýklalyfinu colistin greindist í
Bandaríkjunum nýverið. Colistin
er sýklalyf sem er notað þegar
engin önnur sýklalyf virka. Í lok
ársins 2015 í Kína greindist ónæmi
gegn colistin í fyrsta skipti.
Í þetta skipti greindist það í 48
ára gamalli konu frá Pennsylvaníu.
Ekki liggur fyrir hvernig konan
smitaðist því hún hefur ekki
ferðast nýlega, auk þess sem lyfið
colistin er ekki notað víða í Banda-
ríkjunum.
Bregðast þarf hratt við
DNA í bakteríunum, sem veitir
þeim ónæmi gegn þessu sýklalyfi,
nefnist mcr-1 gen, og það getur
breiðst hratt út yfir í aðrar teg-
undir. Helsta áhyggjuefnið er að
ónæmi gegn colistin færist yfir á
önnur form sýklaónæmis. Það
veldur því að það geti skapað sýk-
ingar sem ekki er hægt að með-
höndla.
„Því meira sem við skoðum
ónæmi við lyfjum, þeim mun
áhyggjufyllri verðum við. Lyfja-
skápurinn er tómur fyrir suma
sjúklinga. Það er komið að því að
vegur sýklalyfja endar nema við
bregðumst hratt við.“ Þetta er
haft eftir Thomas Frieden, fram-
kvæmdastjóra Miðstöðvar for-
varna gegn smitsjúkdómum í
Bandaríkjunum. Í sama streng
tekur dr. Nasia Safhdar, sem
starfar í Háskólanum í Wisconsin í
heilbrigðisvísindum, og segir þess-
ar niðurstöður mikið áhyggjuefni.
BBC greinir frá. thorunn@mbl.is
„Lyfjaskápur-
inn er tómur“
AFP
Ónæmisvandi Það reynist sífellt
erfiðara að koma í veg fyrir ónæmi.
Ónæmi gegn
sýklalyfinu
colistin greinist