Morgunblaðið - 28.05.2016, Qupperneq 46
46 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2016
Söfn • Setur • Sýningar
Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár
grunnsýning Þjóðminjasafnsins
Með kveðju – Myndheimur íslenskra póstkorta í Myndasal
Dálítill sjór – Ljósmyndir Kristínar Bogadóttur á Vegg
Hvað er svona merkilegt við það? Störf kvenna í 100 ár í Bogasal
Bláklædda konan - Ný rannsókn á fornu kumli í Horni
Norðrið í norðrinu á 3. hæð
Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru
Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi
LISTASAFN ÍSLANDS
BERLINDE DE BRUYCKERE 21.5 - 4.9.2016
LJÓSMÁLUN – LJÓSMYNDIN OG MÁLVERKIÐ Í SAMTÍMANUM 7.5 - 11.9.2016
UDSTILLING AF ISLANDSK KUNST
UPPHAF KYNNINGAR Á ÍSLENSKRI MYNDLIST Í KAUPMANNAHÖFN
21.1 - 11.9 2016
PABLO PICASSO Í SAFNEIGN LISTASAFNS ÍSLANDS;
JACQUELINE MEÐ GULAN BORÐA (1962) 21.7. 2015 - 11.9. 2016
Leiðsagnir á ensku alla þriðjudaga og föstudaga kl. 12:10
SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur • KAFFISTOFA - Ljúffengar veitingar
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is. Opið daglega í sumar kl. 10-17
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR
GYÐJUR 5.2. - 29.5.2016
Opið laugard. og sunnud. kl. 14-17. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR
UNDIR BERUM HIMNI - MEÐ SUÐURSTRÖNDINNI 5.2.-16.9.2016
Opið þriðjudaga, fimmtudaga og sunnudaga kl. 14-17.
Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is
Sýningin Sjónarhorn Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú
Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög,
ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira
Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna.
Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali
Kaffitár nú einnig í Safnahúsinu
Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200,
www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn
Opið daglega frá kl. 10-17.
Verið
velkomin
Hverfisgötu 15, 101 Reykjavík s: 530 2210
www.safnahusid.is Sýningin opin daglega frá 10-17
Kaffitár opið mánudaga til föstudaga frá 8-17, 10-17 um helgar
SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU
Opið kl. 12-17. Lokað mánud.
Verslunin Kraum í anddyri
Garðatorg 1, Garðabær
www.honnunarsafn.is
Síðasta sýningarhelgi
Leiðsögn sunnudag kl. 14
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
RÍKI – flóra, fána, fabúla nefnist
umfangsmikil myndlistarsýning sem
opnuð verður í dag kl. 16 í Listasafni
Reykjavíkur, Hafnarhúsi, í þremur
sölum safnsins. Á henni má sjá verk
sem tengjast náttúrunni og flokk-
unarkerfi hennar með einum eða
öðrum hætti og veitir hún innsýn í
listsköpun ólíkra listamanna með
verkum frá síðustu árum og áratug-
um, glænýjum verkum sem og eldri
úr safneign.
Við opnun, kl. 17, flytur myndlist-
armaðurinn Anna Fríða Jónsdóttir
gjörning ásamt sellóleikaranum Ástu
Maríu Kjartansdóttur í fjölnotasal
Hafnarhússins og meðan á sýning-
unni stendur verður boðið upp á
viðamikla dagskrá með gjörningum,
kvikmyndasýningum o.fl.
Aðaláhersla á flóru og fánu
Sýningarstjóri er Markús Þór
Andrésson og segir hann alltaf dálít-
ið föndur að koma saman svo stórri
sýningu með verkum svo margra
listamanna en þeir eru á fimmta tug.
„Svo erum við að leika okkur svolítið
með uppsetninguna líka, að gera
þetta svolítið skemmtilegt, sér-
staklega í salnum með safneigninni.
Við málum veggina, gerum munstur
á þá þannig að þetta er dálítil inn-
setning í leiðinni,“ segir hann.
En hver er hugmyndin að baki
sýningunni, konseptið? „Við erum að
skoða myndlistarmenn og myndlist-
arverk sem endurspegla lífríkið með
einhverjum hætti með aðaláherslu á
flóru og fánu, þó ýmislegt annað
komi til sögunnar,“ segir Markús.
Með elementinu fabúlu bætist svo
við ákveðin frásögn, skilningur
manna á náttúrunni og lífríkinu. „Við
setjum þetta í e.k. kerfi eða upp-
röðun, gefum þessu nöfn eða túlkum
með einhverjum hætti sem er alltaf
mannanna verk. Það kemur fram í
því hvernig við vörpum okkar eigin
hugmyndum á lífríkið, manngerum
hitt og þetta, reynum að færa hlutina
í okkar mynd,“ útskýrir Markús.
Þetta sjáist í handverki og handa-
vinnu listamannanna, hvernig þeir
vinni með lífríkið og noti sem efnivið
og viðfangsefni og líka hvernig rýnt
er í hegðun mannsins gagnvart lífrík-
inu. „Þetta er tvískipt, við erum að
horfa á lífríkið og síðan aftur til baka,
á manninn, hvernig hann hegðar sér
gagnvart lífríkinu,“ segir Markús.
Hann segir viðfangsefni sýning-
arinnar sannarlega eiga erindi við
fólk í dag. „Hvernig ætlum við að
stíga næstu skref í sambýli okkar við
náttúruna án þess að hjakka í sama
gamla farinu?“
Hekla endurgerðir
af lækningajurtum
Nokkur verk voru unnin sér-
staklega fyrir sýninguna, m.a. verk
sem Rósa Sigrún Jónsdóttir vinnur í
samvinnu við hóp af handverks-
konum. „Hún er að fá þær til þess að
hekla með sér endurgerðir af lækn-
ingajurtum, býr til einhvers konar
tengingu á milli heilunar sem felst í
því að vinna að handverki og lækn-
ingarmáttar grasanna,“ segir Mark-
ús. Þá hafi Unndór Egill Jónsson
gert nýtt verk þar sem hann spyrðir
saman ólíka eiginleika úr lífríkinu
sem heyri annars vegar undir dýra-
ríkið og hins vegar plönturíkið.
„Hann reynir að blanda þeim saman
með tilvísun til þessarar tilhneig-
ingar mannsins að vera alltaf að
djöflast eitthvað í lífríkinu og hanna
það eftir eigin hugmyndum. En hann
gerir það á svolítið rómantískan hátt,
gefur tré möguleikann á því að hefja
sig til flugs,“ segir Markús.
Frekari upplýsingar má finna á
vef Listasafns Reykjavíkur, artmu-
seum.is.
Lífríkið og hegðun
mannsins gagnvart því
Tugir listamanna eiga verk á sýningunni RÍKI – flóra,
fána, fabúla, sem opnuð verður í Hafnarhúsi í dag
Ljósmynd/Pétur Thomsen
Selur Verkið „Between You and Me“ frá 2009 eftir Bryndísi Snæbjörnsdóttur, eitt þeirra sem eru á sýningunni.
Kristján Guðmundsson myndlist-
armaður opnar sýningu í Komp-
unni, Alþýðuhúsinu á Siglufirði, í
dag kl. 15.
Kristján er einn af þekktari lista-
mönnum þjóðarinnar, hóf listferil
sinn uppúr 1960 og var einn af
meðlimum SÚM. Hann var fulltrúi
Íslands á Feneyjatvíæringnum árið
1993 og árið 2010 hlaut hann hin
virtu sænsku Carnegie Art Award,
svo fátt eitt sé nefnt af farsælum
myndlistarferli hans. Kristján hef-
ur sýnt víða um heim sem og hér
heima og hlotið margvíslegar við-
urkenningar og lof fyrir verk sín.
Verk Kristjáns láta oft ekki mik-
ið yfir sér, en ef grannt er skoðað
má greina djúpa hugsun og kraft-
mikið formskyn, hreinleika og feg-
urð í viðkvæmum línudansi, segir í
tilkynningu vegna sýningarinnar.
„Ég reyni að vinna innan viðvar-
andi spennusviðs á milli einskis og
einhvers, er þar haft eftir Krist-
jáni.
Sýning Kristjáns í Kompunni
stendur til 11. júní og er opin dag-
lega kl. 14-17. Fjallabyggð, Menn-
ingarráð Eyþings/uppbygging-
arsjóður og Egilssíld styrkja
menningarstarf í Alþýðuhúsinu á
Siglufirði.
Morgunblaðið/Eggert
Í Kompunni Kristján Guðmundsson opnar sýningu í Kompunni í dag.
Kristján sýnir í Kompunni
Lúðrasveit Reykjavíkur heldur
sína árlegu vortónleika í Kalda-
lónssal Hörpu á morgun, 29. maí,
kl. 17.
Á efnisskránni verður fjölbreytt
úrval verka eftir ýmsa höfunda,
m.a. Hollendinginn Eric Swiggers
og Bandaríkjamennina James
Meredith, John Higgins, John
Moss, Richard Saucedo og Michael
Sweeney.
Í tilefni vorkomunnar mun
sveitin leika hátíðlega og fjörlega
tónlist sem ætti að höfða til allra
aldurshópa, segir í tilkynningu.
Lúðrasveitina skipa bæði áhuga-
og atvinnutónlistarmenn. Hún var
stofnuð árið 1922 við samruna
lúðrasveitanna Hörpu og Gígju og
er því elsta starfandi hljómsveit
landsins. Stjórnandi er Lárus Hall-
dór Grímsson. Miðaverð er 2.000
kr. og frítt inn fyrir börn upp að
12 ára aldri.
Vortónleikar Lúðrasveitar
Reykjavíkur í Kaldalóni
Stjórnandinn Lárus H. Grímsson.