Orð og tunga - 01.06.2002, Page 36

Orð og tunga - 01.06.2002, Page 36
26 Orð og tunga erfitt að skera úr um hvort orðið sé staðbundið eða ekki. Tiltækar heimildir benda þó til Vestfjarða. kvenskur ‘laglegurtil kvenmannsstarfa’. B1 merkir orðið Vf. og lýsir merkingunni á sama hátt og BMÓ. ÁBIM merkir orðið ekki sem staðbundið. Elsta dæmi Rm er frá 17. öld og dæmin benda ekki til staðbundinnar notkunar. kýta ‘steinbítsmagi’. Við orðið er sett spurningarmerki. B1 hefur samt tekið það með og merkt Arnf. ÁBIM hefur elst dæmi frá 17. öld og merkir orðið sem staðbundið. I Rm voru þrjú dæmi, hið elsta frá 17. öld frá Jóni Indíafara en hin tvö úr Islenskum sjávarháttum Lúðvíks Kristjánssonar. 1 öðru þeirra segir: „Á Vestfjörðum voru hrognin kölluð kýta“ (IV: 89). I hinu er verið að segja frá orðum um steinbítsmaga og var kýtan fengin úr Blöndalsbók (IV:346). í Tm var ekkert dæmi um þessa merkingu. Hugsanlegt er að merking BMÓ sé vestfirsk en það þarf að kanna betur. kæpa ijót húfa’ (+Df.). B1 merkir orðið Vf. ÁBIM hefur elst dæmi frá 19. öld og merkir orðið ekki sem staðbundið. Dæmi í Tm benda til að hins sama. lóa ‘smálúða’. Ein af merkingum orðsins í B1 er ‘smálúða’ og merkir hann það Vf. ÁBIM hefur elst dæmi frá 19. öld og merkir orðið sem staðbundið. Hugsanlega er það dæmi úr vasabókinni. Elst dæmi um lóu í þessari merkingu í Rm er úr Andvara: „smá- lúður undir stofnlúðu stærð eru á Vestfjörðunum nefndar „lóur“ en á Norðurfjörðunum „lok“ (1917:79). Orðin lóa og lok eru bæði nefnd á orðalista Brynjólfs Oddssonar (sjá dornikur) í merkingunni ‘lítið og minnsta heilagf.’ (BA XXXIX: 158). í Tm voru nær öll dæmin um þessa merkingu vestfirsk, eitt var þó úr Austur-Húnavatnssýslu. manni ‘fóstri, vinur. Þetta er alúðlegt nafn sem ekki er gefið nema einum)’ (+Df.). B1 merkir orðið Vf. ÁBIM hefur elst dæmi frá 18. öld. Allmörg dæmi eru til um þetta smækkunarorð í Rm en ekkert þeirra sýndi amfirsku notkunina. Hana má því líklega telja staðbundna. melankólíska ‘þunglyndi’. B1 setur spurningarmerki framan við orðið og telur það erlent í málinu. Hann hefur dærni frá Vf. og Árn. ÁBIM hefur elst dæmi frá 16. öld. Ekkert bendir til staðbundinnar notkunar. mógur ‘mór’. Við er bætt: „(ac. móg, mógnum, mógsins)“. B1 merkir orðið Vf. ÁBIM merkir orðið staðbundið og frá 19. öld. Hann styðst þar líklega við vasabókina. Hvorki fundust dæmi í Rm né Tm og virðist vasabókin eina heiinildin. mysutað ‘hitalítið tað, klíningur’. B1 merkir orðið Vf. Það er ekki með hjá ÁBIM og engin dæmi voru í Rm og Tm. Vasabókin er því þarna líklega eina heimildin. naskur ‘hnyttinn, fyndinn’. B1 hefur ekki þessa merkingu í orðinu. Sama er að segja um ÁBIM sem gefur merkinguna ‘glöggur, snjall, fundvís á e-ð; leikinn, seigur’. Hann hefur elst dæmi frá 18. öld (1989:659). Ekkert þeirra var þó í merkingu BMÓ. Hvorki í RM né Tm kom fram þessi merking. Hún gæti því verið vestfirsk en einnig er hugsanlegt að um misskilning hafi verið að ræða. nánus ‘= nápína’. Orðið er framburðarmynd af nánös. B1 merkir það ekki sem staðbundið og ÁBIM hefur elst dæmi frá 18. öld. nápína ‘nískurkvenmaður’. B1 merkirorðiðekki sem staðbundið. ÁBIM hefurþað ekki með sem flettu. Dæmi í RM benda ekki til staðbundinnar notkunar. neðan ‘upp’. B1 merkir þessa notkun Vf. og nefnir dæmið: „ganga n., gaa opad (et Bjærg el. en Skrænt).“ Sjá gelmingur.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Orð og tunga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Orð og tunga
https://timarit.is/publication/1210

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.