Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2013, Síða 21

Náttúrufræðingurinn - 2013, Síða 21
129 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags var metinn með bootstrap aðferð22 með 10.000 endurtekningum fyrir hvert tré. Næringarnámspróf voru öll fram- kvæmd við 15°C á 1,5% agar og var lesið af þeim þegar greinilegur vöxtur hafði myndast á skálunum eða eftir eina viku. Á lágmarksætin var þess gætt að sá með nál svo sem minnst af næringarefnum bærist með sáningunni. Seyting amýlasa var metin með joðprófi23 á R2A þynntu að hálfum næringarefnastyrk og bættu með 0,2% kartöflusterkju. Að lokinni ræktun var örverugróður skolaður af skálinni með dauð- hreinu vatni og skálarnar því næst litaðar með Grams-joðlausn, svörun var jákvæð ef skýr litareyða var sýnileg. Seyting betaglúkanasa var metin á R2A þynntu að hálfum nær- ingarefnastyrk og bættu með 0,2% AZCL-lituðu betaglúkani úr byggi (Megazyme). Svörun var jákvæð ef skýr, blár baugur myndaðist um- hverfis örveruvöxtinn. Seyting próteasa var metin á 1:1 NA:undan- rennu23 og var jákvæð ef skýr eyðubaugur myndaðist umhverfis örverugróðurinn. Hæfni til niður- brots á fjölsorbati var metin með því að mæla vöxt á DFM lágmarks- æti24 með 0,2% Tween20 (Sigma) sem eina kolefnisgjafa. Vísbending um líklega niturfixunarhæfni var vöxtur á niturfríu æti (NFA): 5 g glúkósi, 5 g mannitól, 0,8 g KH2PO4, 0,2 g MgSO4*7H2O, 0,15 g CaCl2, 0,04 g FeSO4*7H2O, 0,005 g Na2MoO4*2H2O, 15 g agar og dH2O að 1000 mL (pH 7,0). Hæfni til að leysa (móbilísera) ólífrænt fosfat var metið á NBRIP25 og var svörun sögð jákvæð ef bæði skýr vöxtur og skýr eyðubaugur voru til staðar. Hæfni til að nýta metanól sem kolefnis- gjafa var metin á MSM lágmarksæti: 3,0 g NH4NO3, 2,5 g KH2PO4, 2,0 g K2HPO4, 0,2 g MgSO4*7H2O, 0,1 g FeSO4*7H2O, 10,0 ml metanól, 15 g agar (pH 7,3). Hæfni til járnoxunar var metin á 9K æti26 með viðbættum 1,5% agar. Úreasavirkni var metin skv. Tindall et al.23 í 0,1% BES, 2% þvagefni og 0,001% fenólrauðum (pH 7,0). Niðurstöður Nokkur fjölbreytileiki var meðal þeirra baktería sem ræktuðust upp úr sýnunum, en alls 52 mis- munandi kóloníugerðum var lýst með víðsjárskoðun við einangrun (1. tafla). Ekki þótti rétt að meta fjölda baktería í sýnunum, hvorki heildargerlafjölda né fjöldahlut- föll mismunandi kóloníugerða, þar sem ljóst þótti að breytingar hefðu að líkindum orðið á fjölda og innbyrðis hlutföllum örveranna í sýnunum við flutning. Mark- mið ræktunartilrauna var því einvörðungu að fá í endurræktan- legar hreinræktir fulltrúa sem flestra þeirra örverugerða sem finna mátti í sýnunum. Eins og sjá má í 1. töflu reyndust einangrunarætin gefa mismunandi kóloníugerðir og má því ætla að notkun mis- munandi æta, þar á meðal afar nær- ingarefnasnauðs ætis (1NA) hafi skilað tilætluðum árangri. Það er, að auka heimtur á fjölbreytileika örverulífríkis hellisins og auka líkur á að ná í rækt torræktanlegum og ef til vill áður óræktuðum bakteríum. Af þeim 180 bakteríustofnum sem einangraðir voru og teknir til varðveislu í stofnasafni Háskólans á Akureyri hafa 49 stofnar verið kennigreindir með raðgreiningu á 16S rRNA geni þeirra. Þar af reyndust átta stofnar tilheyra flokki geislagerla, en flestir kennigreindu stofnarnir tilheyrðu ýmist flokki Bacilli eða Gammaproteobacteria (14 stofnar í hvorum flokki). Einnig reyndust átta stofnar tilheyra flokki Betaproteobacteria, þrír Sphingobac- teria og tveir Alphaproteobacteria (2. tafla). Nokkrir einkennisþættir næringar- náms voru kannaðir á handahófs- völdum hluta stofnasafnsins. Heild- arniðurstöður voru þær að 30% kann- aðra stofna gátu nýtt sér sterkju (n=66), 13% beta-glúkan (n=66), 24% kaseín (n=66), 22% fjölsorbatið Tween-20 (n=18), 23% metanól (n=30), 36% sýndu úreasa-virkni (n=28), 44% gátu vaxið á niturfríu æti (n=36), 47% gátu nýtt sér ólífrænt fosfat (n=19) og einn stofn af 28 (stofn 3. mynd. Uppdráttur af Vatnshelli og sýnatökustaðir. Mæling: Árni B. Stefánsson, Gunn- hildur Stefánsdóttir, júlí 2009 og janúar 2010. Kortagerð og teikning: Árni B. Stefánsson. Merking sýnatökustaða: Egill B. Thorstensen. – A map of Vatnshellir cave and location of sampling points. Geodetic measurements: Árni B. Stefánsson, Gunnhildur Stefánsdóttir, July 2009 and January 2010. Mapping: Árni B. Stefánsson. Labeling of sampling points: Egill B. Thorstensen.

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.