Náttúrufræðingurinn - 2013, Qupperneq 45
153
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
geta önnur mengunarefni haft áhrif
á greiningar- og kennimörkin, bæði
til hækkunar og lækkunar. Sér-
fræðingar töldu þó að ef styrkur H2S
væri yfir 7 µg/m3 í meira en hálfa
klukkustund myndu berast margar
kvartanir vegna lyktar. Þess vegna
var ákveðið að lyktarmörkin skyldu
miðast við 7 µg/m3 með 30 mínútna
meðatalstíma.2
Heilsuverndarmörk brennisteins-
vetnis á Íslandi
Heilsuverndarmörk eru leyfilegt
hámarksgildi mengunar og eru
sett til þess að draga úr skaðlegum
áhrifum mengunar og tryggja heilsu
manna til lengri tíma. Árið 2010
setti þáverandi umhverfisráðherra,
Svandís Svavarsdóttir, reglugerð
um heilsuverndarmörk fyrir brenni-
steinsvetni (1. tafla). Helstu mark-
mið reglugerðarinnar eru að við-
halda og bæta gæði andrúms-
lofts með tilliti til H2S, draga úr
skaðlegum áhrifum þess á heilsu
og umhverfi, tryggja mælingar á
styrk H2S í andrúmslofti og miðlun
þeirra upplýsinga til almenn-
ings.10 Aukinn styrkur H2S á höfuð-
borgarsvæðinu og í sveitarfélögum
í nágrenni Hellisheiðarvirkjunar
í kjölfar gangsetningar hennar
og fjöldi kvartana vegna lyktar-
óþæginda þrýsti á um að lagalega
bindandi mörk yrðu sett. Fram
að 1. júlí 2014 má hlaupandi 24
klukkustunda meðaltalsstyrkur H2S
fara fimm sinnum yfir 50 µg/m3 á
ári (5 dagar á ári þar sem styrkur
er yfir mörkum a.m.k. eina klst.),
en aldrei eftir 1. júlí 2014. Með
hlaupandi meðaltali er átt við að
gildið sem miðað er við fyrir hverja
klukkustund er meðaltalsstyrkurinn
síðastliðnar 24 klukkustundir. Í
rökstuðningi sínum fyrir því af
hverju gildið 50 µg/m3 var valið
sagði ráðherra að óvissa ríkti um
áhrif langvarandi innöndunar H2S
á heilsu og því yrði almenningur
að njóta vafans. Einnig myndi
þetta gildi koma í veg fyrir megna
lyktarmengun.11
Mengunarmörk
Mengunarmörk eru leyfilegur há-
marksstyrkur mengandi efnis í
vinnuumhverfi starfsmanns. Þau
eru tilraun til að meta hversu mikla
mengun starfsmaður þolir bæði
í skemmri og lengri tíma (allt upp
í heila starfsævi) án þess að heilsa
hans verði fyrir tjóni.12 Á Íslandi
eru mengunarmörk fyrir H2S 7
mg/m3 og 14 mg/m3 miðað við
8 klukkustunda og 15 mínútna
meðaltalstíma.13 Þetta eru mörk frá
Evrópusambandinu sem voru tekin
upp beint í íslensku mengunar-
markaskrána.14 Nefnd óháðra sér-
fræðinga setur mörkin15 út frá vefja-
skemmdum í nefholi rotta sem eru
taldar hefjast við 14 mg/m3. Það
gildi er notað beint með 15 mínútna
meðaltalstíma vegna þess að vefja-
skemmdirnar eru staðbundnar og
rottur anda aðallega með nefinu
eins og menn. Til að fá mörk með
8 klukkustunda meðaltalstíma er
mælt með öryggisstuðli upp á tvo
til að leiðrétta fyrir skorti á gögnum
og mun á aðstæðum sem þolendur
eru í, rottur á tilraunastofu og menn
á vinnusvæði.9
Samanburður á heilsu-
verndarmörkum og við-
miðum fyrir h2s
Upplýsingar um heilsuverndar-
viðmið og mörk eru oftast aðgengi-
legar á vefsíðum stofnana sem hafa
loftgæði og mengun á sinni könnu.
Til samanburðar við íslensku heilsu-
verndarmörkin voru aðallega valin
enskumælandi lönd, ríki eða fylki
(í Norður-Ameríku), þar sem lífs-
gæði eru svipuð og á Íslandi.16,17
Stundum var notast við skýrslur eða
greinar sem innihéldu umfjöllun um
viðmiðin/mörkin og þá var reynt að
hafa þær sem nýjastar. Löndin, ríkin
og fylkin sem skoðuð voru (2. mynd)
nota mismunandi langan meðaltals-
tíma fyrir sín mörk/viðmið svo taka
verður tillit til þess í samanburði.
Meðaltalstími þeirra marka sem
voru skoðuð er þó ávallt 24 stundir
eða styttri; til dæmis notar Hawaii
einnar klukkustundar meðaltals-
tíma18, líkt og Kalifornía19, New
York20 og Nýja Sjáland21, en British
Columbia22 og Ontario23 nota 24
klukkustunda meðaltalstíma.
Breytilegt er á milli landa hvort til
eru viðmið eða mörk um hámarks-
styrk H2S í andrúmslofti. Bretland
og Ástralía (nota 0,1 ppm = 139,4
µg/m3) nota viðmið WHO en hafa
ekki bundið þau í lög.24,25 Indland
og Taívan nota einnig viðmið WHO
og hafa bundið þau í lög.26,27
Mörg lönd, ríki og fylki kjósa
að miða við þann styrk H2S þegar
lykt fer að finnast til að vernda al-
menning gegn lyktaróþægindum
(1. mynd). Sum lönd kjósa að nota
lyktarviðmið WHO beint (eða
því sem næst) eins og Nýja-Sjá-
land21, þau kanadísku fylki sem
skoðuð voru22,23,28,29 og New York
ríki20. Önnur ríki eins og Kalifornía
og Maine nota niðurstöður rann-
sókna sem segja að meðaltal lyktar-
þröskulds sé um 40 µg/m3.19 Sum
ríki Bandaríkjanna leggja einfald-
lega til grundvallar heilsu og vel-
ferð fólks án þess að rökstyðja það
frekar.30,31 Bandaríkin eru ekki með
alríkisviðmið heldur er ríkjunum í
sjálfsvald sett hvort þau setja sér við-
mið eða lagalega bindandi mörk.32
Viðmiðunartími
– Reference time
Mörk (µg/m3)
– Limit
Fjöldi skipta sem
má fara yfir mörk árlega
– Number of allowed exceedances
Gildir frá
– Valid from
Hámark daglegra hlaupandi
24-klukkustunda meðaltala
– Max for running 24-h mean
50 5 1. júní 2010
Hámark daglegra hlaupandi
24-klukkustunda meðaltala
– Max for running 24-h mean
50 0 1. júlí 2014
Ár – Year 5
1. tafla. Heilsuverndarmörk H2S. Rúmmál miðað við 293 K og 101,3 kPa. Hlaupandi
24-klukkustunda meðaltal er meðaltal síðustu 24 klukkustunda þegar mæling er gerð.10
– Health limits for H2S.