Náttúrufræðingurinn - 2013, Page 61
169
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
tekið með bréfi 13. september 1973.
Við Sveinn höfðum kynnst árið 1971
á ferðalagi um Bandaríki Norður-
Ameríku ásamt Snæbirni Jónas-
syni þá aðstoðarvegamálastjóra, en
þar vorum við í boði Independence
Foundation í því skyni að kynnast
náttúruverndarstarfi í USA. Í upp-
hafi starfs N-nefndarinnar kom
okkur saman um „að æskilegt væri
að nefndin tæki náttúrugripasafns-
málin fyrir á víðari grundvelli en
fælist í skipunarbréfi Menntamála-
ráðuneytisins. Var haft samráð við
ráðuneytið þar að lútandi og lýsti
það yfir samþykki sínu við þá
tilhögun“.6
Í nefndinni fóru fram hrein-
skiptnar umræður stig af stigi,
annars vegar um viðhorf til
skipulags, samvinnu og verka-
skiptingar náttúrugripasafna utan
Reykjavíkur og hins vegar við NÍ.
Annar fundur nefndarinnar (nr. 2)
var haldinn á Náttúrufræðistofnun
Íslands 27. janúar 1973 og sátu hann
deildarstjórar stofnunarinnar og
tveir starfsmenn að auki. Fóru þar
fram ágætar umræður, og engin
andmæli komu fram við að nefndin
ynni áfram á grundvelli hugmynda
sem fram höfðu komið og þar voru
kynntar. Á 3. fundi nefndarinnar
5. mars 1973 lögðu Hjörleifur og
Hörður, hvor í sínu lagi, fram til-
lögur sínar um tengsl, samstarf og
þróun náttúrugripasafna utan Suð-
vesturlands. Tillögur þess fyrr-
nefnda voru í formi viðbótar við lög
um almennar náttúrurannsóknir
og Náttúrufræðistofnun Íslands.
Fyrir næsta fund nefndarinnar
sendi Sveinn samnefndarmönnum
greinargerð um sína afstöðu. Í
framhaldi af því var rætt um þann
greinarmun sem rétt væri að gera á
söfnum með sýningar- og fræðslu-
starfsemi sem meginþátt og söfnum
sem að auki hefðu rannsókna-
starfsemi með höndum. Þannig
samræmdu nefndarmenn sjónarmið
sín og á 7. fundi nefndarinnar lágu
fyrir samkvæmt fundargerð tillögur
frá öllum nefndarmönnum, byggðar
í sama form. … Það mátti heita að á
fundinum kæmu fram hugmyndir um
samkomulagsgrundvöll flestra atriða,
sem höfðu verið ósamhljóða í tillögum
nefndarmanna … . Á 9. fundi lagði
formaður fram uppkast að tillögum
nefndarinnar í formi lagafrumvarps
og voru þá enn „talsverðar viðbætur
gerðar“. Síðasti fundur nefndar-
innar var haldinn á Náttúrufræði-
stofnun Íslands 12. september
1973. Í fundargerð segir m.a.: Hafði
Sveinn fyrir þann fund borið laga-
frumvarp nefndarinnar undir deildar-
stjóra Náttúrufræðistofnunar [Eyþór
Einarsson og Finn Guðmundsson],
og gerði grein fyrir breytingartillögum
frá þeim. Voru lagfæringar gerðar til
samræmis við þær. Á fundinum var
lokið við frumvarpið og skýringar
við lagagreinar og gert ráð fyrir
að ganga endanlega frá skilagrein
nefndarinnar til samþykktar og
undirskriftar utan fundar. Gekk
það eftir og var frá nefndarálitinu
gengið og það undirritað degi
síðar, 13. september 1973. Kom for-
maður skilagreininni síðan í hendur
ráðherra ásamt fundargerðum
nefndarinnar.7
6 Sjá greinargerð 13. sept. 1973 með tillögum náttúrugripasafnanefndar. Menntamálaráðuneytið, skjalasafn N-37.
7 Menntamálaráðuneytið, skjalasafn, mál N-37 1973.
5. mynd. Skilagrein N-nefndar 1973 (ljósrit).
4. mynd. Hörður Kristinsson grasafræð-
ingur og Sveinn Jakobsson jarðfræðingur
og formaður N-nefndar 1972–1973.