Náttúrufræðingurinn - 2013, Side 62
Náttúrufræðingurinn
170
Aðalatriðin í tillögum
N-nefndar 1973
Eins og áður greinir voru tillögurnar
settar fram sem viðbót við lög nr.
60/1965 (15.–26. grein). Lögin svo
breytt skyldu bera heitið: „Lög um
almennar náttúrurannsóknir, Nátt-
úrufræðistofnun Íslands og Náttúru-
fræðistofur landshlutanna.“ Helstu
efnisatriði voru eftirfarandi:
• Heimilt er að leyfa starfrækslu
einnar náttúrufræðistofu [frá og með
1990 hlutu þær nafnið náttúrustofur]
í hverjum landshluta (kjördæmi), er
njóti styrks úr ríkissjóði og starfi í
samvinnu við Náttúrufræðistofnun
Íslands. Eigandi og rekstraraðili á
móti ríkissjóði séu landshlutasam-
tök sveitarfélaga og/eða sveitar-
og sýslufélög á viðkomandi svæði.
Starfsemi stofunnar geti verið á fleiri
en einum stað í landshlutanum eftir
samkomulagi.
• Helstu hlutverk hverrar nátt-
úrufræðistofu séu að varðveita
heimildir um náttúrufar og stuðla
að almennum náttúrurannsóknum;
standa að sýningum náttúrugripa og
vinna að fræðslu; stuðla að æskilegri
landnýtingu og náttúruvernd.
• Stjórn stofunnar sé skipuð
þremur eða fimm mönnum úr lands-
hlutanum og skipi menntamálaráð-
herra formann stjórnar.
• Forstöðumaður, ráðinn af stjórn,
hafi BS-próf eða þekkingu sem meta
má til jafns við það. Hann ráði annað
starfslið með samþykki stjórnar.
• Ríkissjóður greiði laun forstöðu-
manns í fullu starfi, svo og helm-
ing stofnkostnaðar vegna húsnæðis,
innréttinga, bóka- og tækjakaupa.
Aðrar tekjur komi af heimavettvangi
eða sem sértekjur.
• Heimilt er ráðuneytinu að viður-
kenna náttúrufræðistofu landshluta
sem rannsóknarstofnun er stundi
almennar náttúrurannsóknir og
rannsóknir í þágu umhverfismála.
Forstöðumaður hafi meistaragráðu.
Ríkið greiði auk launa forstöðu-
manns, laun eins eða fleiri aðstoð-
armanna og framlag til reksturs er
nemi minnst 1/3 af launagreiðslum
ríkissjóðs til stofunnar.
• Náttúrufræðistofnun Íslands leit-
ist við að samræma störf og uppbygg-
ingu náttúrustofanna til að koma á
hagfelldri verkaskiptingu og sam-
vinnu stofnananna. Haldinn sé árlega
sameiginlegur fundur NÍ og forstöðu-
manna og starfandi sérfræðinga og
stofurnar skili NÍ fyrir árlegan aðal-
fund ársskýrslum sínum sem fylgi
með útgefinni ársskýrslu NÍ.
Séu tillögur þessar frá 1973 um
stofurnar bornar saman við gildandi
lög frá 1992 sést að þær eru í
meginatriðum efnislega samhljóða.
Heimildin um að lyfta náttúrufræði-
stofu upp á stig rannsóknarstofnunar
vísar á það sem síðar var gerð til-
laga um með setrum Náttúrufræði-
stofnunar Íslands.
Afdrif tillagna N-nefndar
Magnús Torfi Ólafsson ráðherra
fékk tillögur N-nefndar í hendur
haustið 1973 en vannst ekki tími
til að búa þær í hendur Alþingis á
starfstíma sínum fyrir stjórnarslit
vorið eftir. Þann 8. janúar 1975 ritaði
því Hörður Kristinsson, þá orðinn
forstöðumaður Náttúrugripasafn-
sins á Akureyri, bréf til nýs mennta-
málaráðherra, Vilhjálms Hjálmars-
sonar, með ósk um að þessar tillögur
verði aftur teknar fyrir hjá ráðuneytinu,
með tilliti til þess að leggja þær fyrir
Alþingi.8 Hliðstæða ósk flutti ég
Vilhjálmi ráðherra munnlega um
svipað leyti og ítrekaði hana síðar
við hann. Ekkert gerðist hins vegar í
málinu í ráðherratíð Vilhjálms utan
nefndarálitið frá 1973 var sent til
umsagnar nokkurra aðila. Haustið
1978 tók við ný ríkisstjórn undir for-
sæti Ólafs Jóhannessonar og átti ég
sæti í henni sem iðnaðarráðherra,
en Ragnar Arnalds gegndi starfi
menntamálaráðherra. Ræddi ég
mál þetta fljótlega við Ragnar með
ósk um að hann hreyfði því sem
fyrst. Skömmu síðar tjáði hann mér
hins vegar að umsagnir sem ráðu-
neytinu hefðu borist um tillögur N-
nefndar í tíð Vilhjálms forvera síns
hafi að mati ráðuneytismanna verið
svo neikvæðar að tilgangslaust væri
að flytja málið í þeim búningi inn á
Alþing í von um að fá það lögfest.
Nefndi Ragnar sérstaklega umsögn
sem borist hefði frá Náttúrufræði-
stofnun Íslands um málið.
Þegar litið er yfir umsagnir sem
menntamálaráðuneytinu bárust á
fyrrihluta árs 1976 um tillögur N-
nefndar kemur í ljós, að flestar voru
þær jákvæðar og með óverulegum
athugasemdum. Þetta á m.a. við um
umsagnir flestra landshlutasam-
taka sveitarfélaga, en Fjórðungssam-
band Vestfirðinga gerði þó fyrirvara
um kostnað af stofnun eða rekstri
stofanna, nema til komi auknir tekju-
stofnar. Jarðfræðiskor Verkfræði- og
raunvísindadeildar Háskóla Íslands
lýsti sig samþykka tillögunum en
taldi æskilegt að gera meiri kröfur
um menntun forstöðumanna og líf-
fræðiskor Háskóla Íslands lýsti sig
fylgjandi efni þeirra í meginatriðum.
Það er hins vegar umsögn Finns
Guðmundssonar, þáverandi for-
stöðumanns Náttúrufræðistofnunar
Íslands, sem sker sig úr og sem að
líkindum stöðvaði framgang máls-
ins. Verður því nánar að henni vikið
hér á eftir.
8 Menntamálaráðuneytið, mál N-37, 13/1 1975.
6. mynd. Magnús Torfi Ólafsson, mennta-
málaráðherra 1971–1974.