Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2013, Page 64

Náttúrufræðingurinn - 2013, Page 64
Náttúrufræðingurinn 172 úr öllum þingflokkum.9 Tillagan hljóðaði svo: Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórn- ina að hraða, m.a. í samráði við hóp áhugamanna og Náttúrufræðistofnun Íslands, undirbúningi að byggingu yfir nútímalegt náttúrufræðisafn á höfuð- borgarsvæðinu. – Byggingarundirbún- ingur og fjárframlög til framkvæmda verði við það miðuð að unnt verði að opna safnið almenningi á árinu 1989 þegar 100 ár verða liðin frá stofnun Hins íslenska náttúrufræðifélags og náttúru- gripasafns á þess vegum. Í niðurlagi greinargerðar með til- lögunni sagði m.a.: Slíkt meginsafn á sviði náttúrufræða á einnig að geta orðið til stuðnings hliðstæðum söfnum víða á landinu og nauðsynlegt er að finna sam- starfi þessara safna ákveðinn farveg. Haustið 1985, fljótlega eftir að ofangreind tillaga var flutt á Alþingi, skipaði þáverandi menntamálaráð- herra, Ragnhildur Helgadóttir, nefnd (hér nefnd NN-nefndin) til að fjalla um tilhögun og uppbyggingu nátt- úrufræðisafns. Náttúrustofur komu hins vegar ekki við sögu í starfi hennar. Formaður þessarar nefndar var skipaður Ævar Petersen og ásamt honum Ágúst H. Bjarnason, þáverandi formaður HÍN, Björn Friðfinnsson, Hrólfur Kjartansson, Sveinbjörn Björnsson, Þór Jakobsson og Þórunn J. Hafstein. NN-nefndin skilaði áliti í árslok 1987 þar sem áhersla var lögð á að efla þyrfti til muna sýningar og fræðslu á sviði náttúrufræða og tækni. Lagt var til að byggt yrði hið fyrsta náttúrufræði- hús fyrir þessa starfsemi og rann- sóknir á vegum NÍ. Ekki var í nefnd- inni full samstaða um rekstrarform, en meirihluti hennar lagði til að sýningar- og fræðslustarfsemi yrði á hendi sjálfseignarstofnunar með aðild ríkisins, Reykjavíkurborgar, Háskóla Íslands og fleiri skóla. Álit nefndarinnar var sent til umsagnar og fékk almennt góðar undirtektir.10 NNN-nefndin 1989–1990 Haustið 1988 urðu ríkisstjórnar- skipti og varð Svavar Gestsson þá menntamálaráðherra. Hann skipaði þann 13. júní 1989 nefnd til þess að semja drög að frumvarpi til nýrra laga um náttúrurannsóknir og NÍ, kanna möguleika á samkomulagi um byggingu náttúrufræðihúss á höfuðborgarsvæðinu og athuga stöðu náttúrugripasafna í öðrum landshlutum. Valdi nefnd þessi sér heitið NNN-nefnd „þar eð all- margar stjórnskipaðar nefndir hafa glímt við svipað verkefni síðustu áratugi.“ Í skipunarbréfi nefndarinnar er vísað til tillagna frá fyrri árum og nefndin beðin um að hafa hliðsjón af þeim. … Í tengslum við starf sitt skal nefndin athuga stöðu náttúrugripasafna í öðrum landshlutum með tilliti til rannsókna og samstarfs við Náttúrufræðistofnun Íslands. Í því sam- bandi verði m.a. farið yfir fyrirliggjandi hugmyndir um byggingu Náttúrufræði- húss á Akureyri. Í nefnd þessa voru skipuð eftir- talin: Hjörleifur Guttormsson, for- maður; Eyþór Einarsson tilnefndur af NÍ, Jóhann Pálsson tilnefndur af Reykjavíkurborg, Sveinbjörn Björnsson frá HÍ, Kristín Einars- dóttir alþingismaður, Þóra Ellen Þórhallsdóttir formaður HÍN og Þórunn J. Hafstein deildarstjóri í menntamálaráðuneytinu. Nefndin skilaði áfangaáliti eftir þriggja mánaða vinnu og kynnti það á afmælishátíð HÍN þann 1. október 1989.11 NNN-nefndin átti viðtöl við fjölda aðila, kynnti þeim hugmyndir sínar og leitaði umsagna. Meðal þeirra sem sendu inn umsagnir voru fulltrúar frá Vísindaráði og Rannsóknaráði ríkisins. Hjá báðum þessum aðilum komu fram þau við- horf að í stað þess að efla NÍ sem sjálfstæða einingu bæri að sam- eina deildir hennar stofnunum og skorum innan Háskóla Íslands. Þessu var NNN-nefndin ekki sam- mála. Hún hélt alls 33 fundi, auk starfa í vinnuhópum, áður en hún skilaði lokaáliti 22. mars 1990. Það var tvíþætt, annars vegar tillögur um Náttúruhús í Reykjavík12 og hins vegar frumvarp til laga um NÍ og náttúrustofur.13 Helstu nýmæli í tillögum nefndarinnar voru þessi: • Náttúrufræðistofnun Íslands var skilgreind sem landsstofnun og geta starfsstöðvar hennar, kall- aðar setur, verið staðsettar á allt að fimm stöðum á landinu, þar af 10 Menntamálaráðuneytið, skjalasafn Db. N–1 og N–48. 11 Áfangaskýrsla NNN-nefndar til menntamálaráðherra, 29. september 1989. Hugmyndir um Náttúrufræðihús, Náttúrufræðistofnun og tengsl þeirra við Háskóla Íslands, ásamt fundargerðum tíu nefndarfunda. 12 Náttúruhús í Reykjavík. NNN-nefnd. Menntamálaráðuneytið, mars 1990. 13 Frumvarp til laga um Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur. Tillaga um frumvarp til laga frá NNN-nefnd. Menntamálaráðuneytið, mars 1990. 8. mynd. Frá hátíðarfundi Hins íslenska náttúrufræðifélags á 100 ára afmæli þess 1989. Í ræðustól er Þóra Ellen Þórhallsdóttir, þáverandi formaður HÍN. Vigdís Finnboga- dóttir forseti Íslands fyrir miðju og henni á vinstri hönd Svavar Gestsson mennta- málaráðherra. Ljósm. Skúli Þór Magnússon.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.