Náttúrufræðingurinn - 2013, Blaðsíða 66
Náttúrufræðingurinn
174
mennirnir Hjörleifur Guttormsson,
Kristín Einarsdóttir, Tómas Ingi
Olrich, Valgerður Sverrisdóttir og
Össur Skarphéðinsson. Hélt nefnd
þessi átta fundi og lagði til fáeinar
breytingartillögur frá því frumvarpi
sem lagt hafði verið fram 1991, m.a.
að heimild væri til að stofna alls til
fimm setra NÍ, að meðtöldu setrinu
í Reykjavík eins og NNN-nefndin
hafði lagt til. Hafi hvert setur um sig
sjálfstæðan fjárhag. Engar teljandi
breytingar voru gerðar á ákvæðum
um náttúrustofur. Ekki var gert ráð
fyrir náttúrustofu í landshluta þar
sem sett væri á fót setur NÍ. Var full
samstaða um málið í nefndinni og
var það síðan lagt fyrir þingið, þar
sem umhverfisnefnd fékk það til
meðferðar. Í nefndinni var eining
um afgreiðslu málsins að öðru leyti
en því, að einn nefndarmanna, Árni
M. Mathiesen, vildi takmarka fjölda
setra NÍ við tvö, eins og orðið hefur
raunin hingað til. Við lokaafgreiðslu
20. maí 1992 var frumvarpið sam-
þykkt samhljóða sem lög frá Alþingi.
Með því var náð því markmiði sem
fyrsta N-nefndin lagði til tveimur
áratugum áður þegar hún gerði til-
lögur um náttúrufræðistofur í lands-
hlutunum. Tillögur N-nefndarinnar
frá 1973 reyndust þannig endingar-
góðar, því að efnislega var lítill sem
enginn munur á þeim og textanum
sem varð að lögum 1992.
Átta mikilvægar stofnanir
Eins og bráðabirgðaákvæði í lögum
nr. 60/1992 gerði ráð fyrir, var
fyrsta náttúrustofan stofnuð í Nes-
kaupstað 1995 með heitinu Nátt-
úrustofa Austurlands. Starfsstöðvar
hennar eru nú tvær austanlands, í
Neskaupstað og á Egilsstöðum, og
starfsmenn eru átta talsins. Nátt-
úrustofa Suðurlands komst á lagg-
irnar í Vestmannaeyjum ári síðar og
á eftir fylgdi ein af öðrum þannig að
11. mynd. Náttúrustofur á Íslandi.Yfirlit sem sýnir stofnár og staðsetningu náttúrustofa á Íslandi 1995–2013. Myndgerð: Helga Einarsdóttir.
10. mynd. Eiður Guðnason umhverfisráð-
herra undirritar í Río sáttmálann um líf-
fræðilega fjölbreytni 1992, sama ár og lög
voru sett um náttúrustofur. Ljósm. Hjör-
leifur Guttormsson.