Náttúrufræðingurinn - 2013, Side 70
Náttúrufræðingurinn
178
Heiðursfélagar
Á aðalfundinum 25. febrúar 2012
voru kjörnir tveir heiðursfélagar
HÍN, þær Adda Bára Sigfúsdóttir
og Margét Guðnadóttir. Þá hafði
engum hlotnast sá heiður frá 2005.
Þeim var veitt skrautritað heiðurs-
skjal og gullmerki félagsins ásamt
blómvendi. Á heiðursskjölunum
kemur fram fyrir hvað vegsemdin
hlotnast en þar stendur:
Hið íslenska náttúrufræðifélag hefur
kjörið Öddu Báru Sigfúsdóttur veður-
fræðing heiðursfélaga fyrir ötult starf
að rannsóknum á veðurfari Íslands og
baráttu fyrir jafnrétti kvenna og karla í
stétt náttúrufræðinga.
Hið íslenska náttúrufræðifélag hefur
kjörið Margréti Guðnadóttur veiru-
fræðing heiðursfélaga fyrir braut-
ryðjandastarf að rannsóknum í veiru-
fræði, sér í lagi vegna vísindaframlags
á sviði hæggengra veirusjúkdóma í
búfé og þróun bóluefnis gegn slíkum
sjúkdómum.
Adda Bára mætti á aðalfundinn
og hélt þakkarávarp. Margrét var
erlendis en Guðni Franzson, sonur
hennar, var viðstaddur athöfnina
fyrir hennar hönd. Seinna hittu full-
trúar stjórnar Margréti og færðu
henni heiðurstáknin.
Fræðsluerindin
Fræðsluerindi félagsins voru haldin
í stofu 132 í Öskju eins og undan-
farin ár. Reglan er að halda erindin
síðasta mánudag hvers mánaðar
á tímabilinu september til maí að
desember undanskildum. Frá
síðasta aðalfundi voru haldin sjö
erindi. Aðsókn á erindin hefur verið
allsæmileg, eða 393 fundargestir á
árinu (50 fleiri en á síðasta ári).
Eftirfarandi erindi voru haldin:
27.2.2012. Dr. Páll Imsland jarðfræð-
ingur. Að fara litum. Litbreytingaferli
litföróttra hrossa.
26.3.2012. Björn Pálsson sagnfræð-
ingur. Sigurður Þórarinsson jarð-
fræðingur: Minningabrot.
30.4.2012. Dr. Freysteinn Sigmunds-
son jarðeðlisfræðingur. Hvenær
gýs Hekla? Innviðir eldfjalls og
jarðskorpuhreyfingar.
24.9.2012. Dr. Kristín S. Vogfjörð
jarðeðlisfræðingur. Samspil jarð-
skjálftavirkni og jökulhlaupa á
Íslandi.
24.10.2012. Þorsteinn Sigurðsson
fiskifræðingur. Makríll við Ísland.
Líffræði - stofnstærð og göngur.
26.11.2012. Dr. Ingibjörg Svala Jóns-
dóttir plöntuvistfræðingur. Mosar
sem glóa – fjölbreytni og vistfræði
mosa í ljósi loftslagsbreytinga.
28.1.2013. Sævar Helgi Bragason
jarðfræðingur. Forvitinn jeppi á
Mars.
Félagsmönnum HÍN og öðrum
áhugasömum um náttúrufræðileg
málefni gefst núorðið kostur á því
að fylgjast með fræðsluerindum á
vegum félagsins á Youtube mynd-
bandasíðunni. Erindin eru birt á
slóðinni http://www.youtube.com/
user/Natturufraedingurinn og þar er
hægt að hlusta á fyrirlesara og horfa
á myndefni þeirra. Tengil á mynd-
bandsupptökur fræðsluerindanna
er einnig að finna í kynningartexat
um viðkomandi erindi á heimasíðu
HÍN, ww.hin.is.
Náttúrufræðingurinn
Á árinu kom út fjórfalt tölublað af
Náttúrufræðingnum í 82. árgangi
og var það helgað Þorleifi Einars-
syni jarðfræðingi. Eftir útkomu
árgangsins lét ritstjórinn Hrefna B.
Ingólfsdóttir af störfum en hún sat
í ritstjórastóli frá árinu 2006 og rit-
stýrði þá 1. tölublaði 75. árgangs.
Á tiltölulega stuttum ritstjóraferli
sínum náði hún því langþráða
takmarki að hala inn slaka á út-
gáfu ritsins sem komið var tveimur
árum á eftir áætlun. Á jólafundi
stjórnar í desember voru Hrefnu
færðar þakkir fyrir störf sín fyrir
félagið og færðar gjafir í því skyni,
Fuglabók Gröndals og vaxstyttu af
geirfugli.
Auglýst var eftir nýjum ritstjóra.
Tuttugu ágætar umsóknir bárust
frá tólf körlum og átta konum. Sex
umsækjendur voru boðaðir í viðtal
og í kjölfarið var Sighvatur Blöndahl
ráðinn ritstjóri. Er hann boðin
velkominn til starfa. Von er á næsta
tölublaði ritsins eftir um þrjár vikur
eða um miðjan mars.
Í ritstjórn Náttúrufræðingsins sitja nú:
Droplaug Ólafsdóttir líffræðingur,
formaður, Esther Ruth Guðmunds-
dóttir jarðfræðingur, Hafdís Hanna
Ingólfur Einarsson (1927–2012) heiðurs-
félagi HÍN. Hann var gjaldkeri félagsins í 28
ár og þar áður endurskoðandi reikninga um
árabil. Fáir eða engir hafa setið jafn lengi í
stjórn Hins íslenska náttúrufræðifélagsins
og Ingólfur.
Á aðalfundinum voru Adda Bára Sigfús-
dóttir og Margét Guðnadóttir gerðar að
heiðursfélögum HÍN. Guðni Franzson,
sonur Margrétar, tók við heiðursskjali og
blómvendi fyrir hönd móður sinnar.