Náttúrufræðingurinn - 2014, Side 12
Náttúrufræðingurinn
92
mikið eldri en tveggja ára. Í Eystra-
salti tímgast sniglar ekki fyrr en þeir
eru komnir á annað ár og gerist það á
tímabilinu frá júní fram í nóvember.14
Líklegt er að lífsferillinn sé svipaður
við íslenskar aðstæður.
Flokkun og útbreiðsla
Á síðustu árum hafa raðgreiningar
á erfðaefni oft breytt hugmyndum
manna um skyldleika lífvera og á
það meðal annars við hjá leðjusnigl-
um af ættinni Hydrobiidae. Á grunni
slíkra athugana hefur stranddoppa
verið flutt úr ættkvíslinni Hydrobia í
ættkvíslina Ecrobia og á hún þar þrjár
systurtegundir (E. atuca (Boeters,
1988); E. pontieuxini (Radoman, 1973)
og E. vi trea (Risso, 1826)).15 Fulltrúar
ættkvíslarinnar lifa einvörðungu
í Evrópu. Áður hefur verið sagt
að stranddoppan lifi í Norður –
Ameríku1 en það er misskilningur.
Systurtegundir stranddoppu hafa
suðlæga útbreiðslu og eru bundnar
við strandsvæði Svartahafs og
Miðjarðarhafs. Stranddoppan lifir
mun víðar, finnst í Svartahafi og
á Miðjarðarhafsströnd Frakklands
meðal annars en er algeng á vest- og
norðlægum strandsvæðum Evrópu
og finnst þar frá Biskayflóa í suðri,
við Bretlandseyjar, í Norðursjó og
Eystrasalti allt norður í Hvítahaf.15
Norðvesturmörk á útbreiðslu strand-
doppu eru á Íslandi.
Hér á landi er útbreiðslan mjög
blettótt. Við suðurströndina hafa
lifandi eintök fundist við Stokks-
eyri í grunnu fjörulóni sem opið
var til sjávar, með seltustiginu
24‰.1 Leit höfunda að tegundinni
milli Eyrarbakka og Stokkseyrar og
Sérkenni lífsferilsins felast í því að öll lirfustig sníkjudýrsins
þroskast inni í einni og sömu lífverunni (stranddoppu).
Hreyfanlegu stigin sem agðan notar venjulega til dreifingar
utan við snigilinn (bifærð lirfa, halalirfa) eru hér óþörf.
Þannig verður lífsferillinn að mestu óháður óstöðugu um-
hverfi stranddoppunnar, sem lifir til dæmis við frost, seltu-
breytingar og uppþornun.
Þroskun hefst þegar stranddoppa étur egg ögðunnar.
Lirfan klekst í sniglinum, færir sig yfir í kynkirtlana og
breytist þar í lirfusekk sem síðar myndar aðra kynslóð
lirfusekkja með kynlausri fjölgun. Í sameiningu ryðja
þessi sekkstig mestöllum æxlunarvef dýrsins í burtu og
snigillinn verður ófrjór. Frekari þroskun á sér stað í dótt-
urlirfusekkjunum þar sem mikill fjöldi halalirfna (5. mynd
A) verður til. Fullþroskaðar kasta þær halanum og mynda
um sig hjúp (5. mynd B).
Hjúplirfan (5. mynd C) er þegar komin með útlit full-
orðinnar ögðu (5. mynd D) en er minni (200–250 µm) og
kynkerfið enn óþroskað. Fullþroskaðar hjúplirfur (5. mynd
B) safnast þúsundum saman fyrir í lirfusekkjunum og bíða á
því stigi eftir því að vaðfugl, sem lifir meðal annars á því að
tína upp í sig stranddoppur, éti smitaða snigilinn. Geldingin
kemur í veg fyrir að snigillinn eyði orku í að þroska kyn-
frumur þannig að smitaðar stranddoppur geta orðið óvenju
stórar og áberandi fæðubitar. Dreifingarmáttur sníkjudýrs-
ins eykst því við það að sýkta stranddoppan verður ófrjó.
Hjúpurinn meltist utan af lirfunum í meltingarvegi loka-
hýsilsins (5. mynd B) þar sem þær verða að kynþroska
ögðum á einum til tveimur dögum, og eggin verða fljótt
áberandi (5. mynd D).
Greinileg úrþróunareinkenni (e. evolutionary loss of vesti-
gal organs) sjást hjá halalirfunni (5. mynd A). Kirtlar sem
framleiða lífhvata sem melta lirfunum leið inn í aðra milli-
hýsla eru litlir, broddurinn (e. stylet) sem notaður er til að
stinga í gegnum húð næsta millihýsils er lítill og veikburða
og sundhalinn veiklulegur. Lífsferillinn þarf ekki lengur á
þessum aðlögunum að halda.
M. breviatus var algeng á öllum athugunarsvæðunum,
einkum þó í Gálgahrauni (1. tafla). Líklegt er að sendlingur
(Calidris maritima), stelkur (Tringa totanus) og vetrarfuglar
eins og tildra (Arenaria interpres) eigi þátt í að halda lífs-
ferlinum þetta vel gangandi.
Rammi B
Agðan Microphallus breviatus hefur engin hreyfanleg lirfustig. Lirfustigin þroskast öll innan
millihýsilsins (stranddoppu), lokahýslar eru litlir vaðfuglar sem éta snigilinn.
5. mynd. Fjögur lífsform ögðunnar Microphallus breviatus. A. Halalirfa; B. Hjúplirfur úr lirfusekk stranddoppu Ecrobia ventrosa,
hver um sig umlukin þolhjúpi; C. Laus hjúplirfa; D. Eggjafull fullorðin agða. – Four developmental stages of the digenean Micro–
phallus breviatus. A. Cercaria; B. Encysted metacercariae from sporocyst in Ecrobia ventrosa; C. Excysted metacercaria; D. Adult
fluke with ripe eggs. Ljósm./Photos: Karl Skírnisson.
84_3-4.indd 92 1601//15 12:49
161
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
Sýsla
District
Staður
Location
Nánari staðsetning varps
More detailed location
Notkun
Use
Dagur
Day
Mánuður
Month
Ár
Year
Fjöldi para
Nos. pairs
Dal. Rúfeyjar á Breiðafirði Bæjarey (Heimaey, Rúfey) 1 3 7 1990 4
Dal. Rúfeyjar á Breiðafirði Miðey 1 19 6 2007 1
Dal. Rúfeyjar á Breiðafirði Kálfsrófa 1? 6 6 1982 1
Dal. Rauðseyjar á Breiðafirði Bæjarey (Rauðsey) 1 x x 1970< x
Dal. Rauðseyjar á Breiðafirði Beitarey 1 2 7 1990 1
Dal. Ólafseyjar [í Vestureyjum] á Breiðafirði Bæjarey 1 3 7 1990 2
Dal. Hvalgrafir/Klifmýri á Skarðsströnd Ásmóðarey 0 x sumar 1986 0
Dal. Hvalgrafir/Klifmýri á Skarðsströnd Grafarfjall: Grafardrangur 0 15 5 2005 0
Dal. Tindar á Skarðsströnd Tindafjall 0 15 5 2005 0
Dal. Heinaberg á Skarðsströnd Fagradalsfjall (Heinabergsfjall):
Nípurhyrna 0 15 5 2005 0
Dal. Tjaldanes í Saurbæ Tjaldaneshlíð við Deild 0 15 5 2005 0
A.-Barð. Reykhólar í Reykhólasveit Ytri-Folaldahólmi (sá stærri) 1 21 5 2008 1
A.-Barð. Reykhólar í Reykhólasveit Kvíar (Sker út af Folaldahólma) 1 1 6 2000 1
A.-Barð. Reykhólar í Reykhólasveit Svörtusker 1 21 5 2008 1
A.-Barð. Höllustaðir í Reykhólasveit Höllustaðabjarg (Bjargfjall, Mávabjarg) 1 15 5 2005 9
A.-Barð. Laugaland í Reykhólasveit Hákallaströnd 1 15 5 2005 18
A.-Barð. Klettur í Kollafirði Vellir (Klettshlíð) 1 14 5 2005 71
A.-Barð. Fjörður á Múlanesi Fjarðarbjarg 1 14 6 2005 56
A.-Barð. Litlanes í Kjálkafirði Svartbakasker [við Litlanes] 1 1 7 1992 1
A.-Barð. Sviðnur á Breiðafirði Hamarshólmi (Hamarseyjarhólmi) 1 14 5 1977 1
A.-Barð. Sviðnur á Breiðafirði Ytri-Gimbureyjarflaga 1 14 5 1977 1
A.-Barð. Hvallátur á Breiðafirði Hái-Sundhólmur 1 x x 1978c 1
A.-Barð. Svefneyjar á Breiðafirði Klofningur 0 21 7 1997 0
A.-Barð. Stagley á Breiðafirði Stagley 1 3 6 1998 2
A.-Barð. Bjarneyjar á Breiðafirði Lónsker 1 17 7 1986 2
A.-Barð. Bjarneyjar á Breiðafirði Lón 1 9 5 1987 2
A.-Barð. Flatey á Breiðafirði Innri-Máfey 1 x vor 1994 1
A.-Barð. Flatey á Breiðafirði Lundaklettur 1 26 5 1977 1
A.-Barð. Flatey á Breiðafirði Innri-Stykkisey 1 x vor 1974 3
A.-Barð. Hergilsey á Breiðafirði Innri-Reykeyjarflaga 1 x vor 1994 1
A.-Barð. Hergilsey á Breiðafirði Urðhólmur 1 x x 1990< 2
A.-Barð. Hergilsey á Breiðafirði Oddleifsey 0 22 6 1990 0
A.-Barð. Hergilsey á Breiðafirði Sandey 1 x vor 1994 1
A.-Barð. Hergilsey á Breiðafirði Hrauneyjar – Innri-Hrauney 0 22 7 2006 0
A.-Barð. Hergilsey á Breiðafirði Hrauneyjaklettar (3) 1 x vor 2000 1
A.-Barð. Hergilsey á Breiðafirði Oddbjarnarsker 1 x vor 2000 1
V.-Barð. Auðshaugur á Hjarðarnesi Haugseyjar 0 x x 1988< 0
V.-Barð. Fossá á Hjarðarnesi Fossár- & Hamarseyjar 0 x x 1988< 0
V.-Barð. Sauðeyjar á Breiðafirði Ytri-Rauðsdalshólmi 1 9 6 2007 1
V.-Barð. Sauðeyjar á Breiðafirði Heimaey (Sauðey) 1 9 6 2007 1
V.-Barð. Sauðeyjar á Breiðafirði Rif 1 14 6 2007 9
V.-Barð. Sauðeyjar á Breiðafirði Þórisey 1 26 6 1994 1
V.-Barð. Sauðeyjar á Breiðafirði Innri-Kiðhólmi 1 26 6 1994 1
V.-Barð. Sauðeyjar á Breiðafirði Ytri-Kiðhólmi 1 26 6 1994 1
V.-Barð. Sauðeyjar á Breiðafirði Flataflaga 1 8 6 2007 1
V.-Barð. Hagi á Barðaströnd Hagadrápsker (2)/Hagadrápsker ytra 0 30 6 1992 0
V.-Barð. Hagi á Barðaströnd Hagadrápsker (2)/Hagadrápsker innra 0 30 6 1992 0
V.-Barð. Hvammur á Barðaströnd Stórfiskasker 0 30 6 1992 0
V.-Barð. Arnórsstaðir á Barðaströnd Blankur 1 14 6 2005 1
V.-Barð. Arnórsstaðir á Barðaströnd Arnórsstaðahyrna, rétt innan
Lambaness
1 14 6 2005 6
V.-Barð. Rauðsdalur á Barðaströnd Rauðsdalsfjall (Grafarhlíð, Fuglabjarg) 1 14 6 2005 17
V.-Barð. Hamar á Barðaströnd Hamarshyrna
(Hamarsfjall/Hvammsfjall)
1 14 6 2005 13
V.-Barð. Skjaldvararfoss á Barðaströnd Fuglberg (beint ofan bæjar) 1 14 6 2005 1
V.-Barð. Litlahlíð á Barðaströnd Litluhlíðarfjall 1 14 6 2005 26
V.-Barð. Miðhlíð á Barðaströnd sandmelar upp af Hlíðarskeri 1 x sumar 1988 1
V.-Barð. Miðhlíð á Barðaströnd Miðhlíðarnúpur 1 14 6 2005 2
V.-Barð. Hrísnes á Barðaströnd Hrísnesnúpur 0 14 5 2005 0
Vestfirðir
V.-Barð. Sigluneshlíðar Mávaskorarnúpur 1 x x 1955< x
V.-Barð. Sigluneshlíðar Vætufjall 1 x x 1965< x
V.-Barð. Skor Skorarhlíðar (Skorarklettar) 1 x x 2001< x
V.-Barð. Móberg (Máberg) á Rauðasandi Móbergsfjall (Mábergsfjall) 0 x x 1908 0
V.-Barð. Lambavatn á Rauðasandi Lambavatnsfjall 1 4 7 1990 50
V.-Barð. Látrabjarg 1 x x 1985< 5
84_3-4.indd 161 1601//15 12:50
15
01
19
7
N
at
tu
ru
fr
3B
C
M
Y
K
56