Morgunblaðið - 22.07.2016, Side 18

Morgunblaðið - 22.07.2016, Side 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 2016 LA LA LA LA SALA Ú TSALA Ú TSAL S TSALA Ú TSALA Ú A Ú ÚT A ÚTSA L Ú SALA ÚTSALA ÚTSALA Ú A ÚTSA L LA ÚTS ALA ÚT SALA Ú T ALA ÚT SALA Ú TSALA Ú TSALA Ú T ALA ÚT SALA Ú TSALA Ú TSALA Ú TSALA Ú TSALA ALA ÚT SALA Ú TSALA Ú TSALA Ú TSALA Ú TSAL SALA Ú TSALA Ú TSALA Ú TSALA Ú TSALA Ú TSAL ÚTSALA ÚT50% afsláttur Jacques Lemans ÚTSALA 30% afsláttur Skagen 30% afsláttur Michael Kors20% afsláttur Rodania 30% afsláttur Casio SALA Ú 30% afsláttur Silfurskart ÚTSAL 40% afsláttur asa jewelery 25% afsláttur ArmaniALA60% afsláttur Rosendahl 20% afsláttur Hugo Boss 20% afsláttur Tissot 20% afsláttur Movado ÚTSALA50% afsláttur Seculus 20% afsláttur Daniel Wellington T LA 20% afsláttur Nomination 30% afsláttur Kenneth Cole Ú 50% afsláttur Henry London 50% afsláttur Zeitner SA30% afsláttur Fossil Stórafsláttur af öllum úrum og skartgripum frá þessum vörumerkjum í verslunum okkar á Laugavegi 15, Kringlunni og á michelsen.is TSÖLU OK 22. júlí 2016 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 122.11 122.69 122.4 Sterlingspund 161.17 161.95 161.56 Kanadadalur 93.49 94.03 93.76 Dönsk króna 18.08 18.186 18.133 Norsk króna 14.396 14.48 14.438 Sænsk króna 14.211 14.295 14.253 Svissn. franki 123.68 124.38 124.03 Japanskt jen 1.1492 1.156 1.1526 SDR 169.21 170.21 169.71 Evra 134.5 135.26 134.88 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 167.577 Hrávöruverð Gull 1322.0 ($/únsa) Ál 1609.0 ($/tonn) LME Hráolía 46.76 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á Hagnaður Advania á síðasta ári nam 147 milljónum króna þegar tillit hafði verið tekið til afkomu af aflagðri starfsemi og þýð- ingarmunar vegna eignarhluta í er- lendum dóttur- félögum. Tekjur fyrirtækisins á árinu námu ríflega 20,5 milljörðum króna og jukust þær um 1,9% frá fyrra ári. Rekstrarhagnaður fyrir af- skriftir og fjármagnsliði nam tæpum 2,1 milljarði króna og jókst um 5,1% frá árinu 2014. Eiginfjárhlutfall Adv- ania um síðustu áramót var 13%. Stefnt er að skráningu félagsins í Kauphöllinni í Stokkhólmi á árinu 2018 en hjá félaginu starfa um 1.000 manns á tuttugu starfsstöðvum á Ís- landi, í Svíþjóð, Danmörku og Noregi. Thomas Ivarson, stjórnarformaður félagsins, segist vona að íslenskir fjárfestar verði sterkur hluti nýrra fjárfesta í félaginu í kjölfar skrán- ingar. Þá verði leitað samvinnu við Nasdaq á Íslandi um að gera það kleift ef áfram verði verulegar tak- markanir á fjárfestingarmöguleikum íslenskra fjárfesta á þeim tíma þegar skráningin fer fram. Thomas Ivarson Advania hagnast um 147 milljónir BAKSVIÐ Jón Þórisson jonth@mbl.is „Fyrst og fremst er úttekt sér- eignarsparnaðar til fasteignakaupa illa kynnt af hálfu stjórnvalda og fjármálafyrir- tækja,“ segir Magnús Árni Skúlason, hag- fræðingur hjá Reykjavík Economics. Hann segir einnig að það sé nokkuð út- breidd skoðun að séreignarsparnað eigi að nýta á efri árum og fólk þurfi að venjast því að geta ráðstaf- að honum mun fyrr. Aðeins 1.500 hafa nýtt leiðina ViðskiptaMogginn greindi frá því í gær að aðeins 1.500 manns hafi nýtt sér sérstakt úrræði sem ríkis- stjórnin bauð uppá í tengslum við hina svonefndu leiðréttingu árið 2014 og miðaði að því að leiðrétta höfuðstól verðtryggðra íbúðalána. Þannig hafa allir þeir sem leggja til hliðar séreignarsparnað af launa- tekjum sínum getað, annað tveggja, greitt sparnaðinn inn á húsnæðislán eða safnað honum upp og tekið út við kaup á fasteignum og þar með nýtt upphæðina sem hluta af eigin fé við kaupin. Skattfrjálst fé Þeir fjármunir sem fólk nýtir á grundvelli þessarar heimildar eru undanþegnir opinberri álagningu en séreignarsparnaður er að öðrum kosti skattlagður eins og launa- tekjur þegar til úttektar kemur. „Þetta eru skattfrjálsir peningar og full ástæða fyrir hvern og einn að skoða kosti þess af alvöru að nýta þennan möguleika,“ segir Magnús. „Með því að lækka höfuðstól er vaxtabyrði til framtíðar lækkuð. Fasteignakaupandinn er þá að spara sér þann vaxtakostnað til loka láns- tímans og skattinn sem greiða þyrfti af fjárhæðinni þegar kemur að því að nýta séreignasparnaðinn á hefð- bundinn hátt. Á móti kemur að hann fær ekki vexti af fjárhæðinni sem nýtt var til niðurgreiðslu lánsins.“ Magnús bendir einnig á að sér- eignarsparnaðurinn sé varinn fyrir kröfuhöfum. „Séreignarsparnaður er ekki aðfararhæfur. Ég ráðlegg þeim sem eru í fjárhagslegum þrengingum eða búa við ótryggan fjárhag að nýta ekki séreignar- sparnaðinn í þessu skyni. Það myndu vafalaust fleiri nýta sér þetta ef séreignarsparnaður í fasteign væri varinn fyrir aðför, eins og í öðru formi.“ Eins og fram kom í umfjöllun Við- skiptaMoggans í gær er í reglum um nýtingu séreignarsparnaðarins kveðið á um að hámarksúttekt ein- staklings geti numið 1,5 milljónum króna yfir þriggja ára tímabil, eða hálfri milljón á ári hverju. Sambúð- arfólk getur með sama hætti að há- marki safnað 2,25 milljónum yfir tímabilið, eða 750 þúsundum hvert ár. Segir leiðina ekki kynnta nægjanlega Morgunblaðið/Arnaldur Fasteignir Nýting séreignarsparnaðar til íbúðakaupa er skattfrjáls.  Tiltölulega fáir nýta séreignarsparnað til húsnæðiskaupa Magnús Árni Skúlason Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Seðlabanki Íslands segir að fulls jafn- ræðis sé gætt í tengslum við þær heimildir sem bankinn hefur veitt líf- eyrissjóðum og öðrum innlendum vörsluaðilum sér- eignarlífeyris- sparnaðar til fjár- festinga erlendis. Með því hafnar bankinn þeim ásökunum sem fram komu í bréfi sem Gísli Hauks- son, forstjóri Gamma, ritaði seðlabankastjóra, en í bréfinu var þess krafist að bankinn veitti verð- bréfa- og fjárfestingarsjóðum sams- konar heimildir til fjárfestinga er- lendis. Þar var áréttuð sú skoðun að mismunun milli fyrrnefndra aðila fæli í sér gróft brot á jafnræðisreglu stjórnsýsluréttarins því ekki væri jafnræðis gætt við meðhöndlun ólíkra sparnaðarforma almennings. Arnór Sighvatsson, aðstoðarseðla- bankastjóri, segir bankann ætíð líta til jafnræðissjónarmiða við ákvarðan- ir sínar. „Lífeyrissjóðir hafa fengið heim- ildirnar þar sem því næst allir fulltíða Íslendingar eiga aðild að þeim. Það er því í almannahag að dreifa eignum sjóðanna með erlendri fjárfestingu. Aftur á móti er það aðeins hluti þjóð- arinnar sem á sparnað í hlutdeildar- skírteinum verðbréfasjóða og við lít- um svo á að ef slíkum sjóðum yrði veitt undanþága frá gjaldeyrishöft- um þá fæli það miklu fremur í sér brot á jafnræðisreglu en sú heimild sem lífeyrissjóðum hefur verið veitt,“ segir Arnór. Hann segir þó að hægt sé að taka undir margt í bréfi Gamma til bank- ans. Þar vísar hann í að ekki sé ástæða til að halda fjármagnshöftum í landinu lengur en þörf krefur. „Við vinnum að því hörðum hönd- um að aflétta höftum og hér hefur sú vinna haldið áfram þrátt fyrir almenn sumarfrí. Á sumarþingi verða vænt- anlega samþykktar einhverjar laga- breytingar sem hníga í þá átt og bréf- ið frá Gamma breytir þar engu um.“ Spurður út í möguleg viðbrögð bankans ef forsvarsmenn Gamma munu leita réttar síns og eftir atvik- um leggja fram kvörtun til ESA, eft- irlitsstofnunar EFTA, segir Arnór að slíkum aðgerðum verði svarað efnis- lega. „Það eru augljós rök fyrir því að veita lífeyrissjóðunum þá heimild sem þeir hafa fengið. Hér í bankan- um eru veittar um 1.000 undanþágur frá höftunum á ári og margar þeirra eru eðli málsins samkvæmt mjög matskenndar. Í tilfelli heimilda sem veittar hafa verið lífeyrissjóðum þá eru jafnræðisrökin eins sterk og þau geta frekast orðið,“ segir Arnór. Morgunblaðið/Ernir Höft Lífeyrissjóðir hafa fengi 80 milljarða fjárfestingarheimild erlendis. Hafnar ásökunum Gamma  Seðlabankinn segir jafnræðis gætt við undanþágur Arnór Sighvatsson —með morgunkaffinu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.