Morgunblaðið - 22.07.2016, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 22.07.2016, Blaðsíða 13
Morgunblaðið/Þórður Fimm mánaða Auðunn Bragi og Steinunn með Karitas Brynju rúmlega fimm mánaða. hvort kynið var hafði hún viðrað hug- myndina. Hann var ekki hrifinn. Þau eru vitaskuld hæstánægð með Hjört Sumarliða, sem að fyrra nafni heitir eftir afa sínum, eins og var reyndar hugmynd Tryggva Þórs. Foreldrarnir ljóstra því upp að drengurinn sé þó sjaldan kallaður báðum nöfnunum nema í viðurvist afa síns. „Við erum kannski pínu væmin því í okkar huga hefur nafnið Sum- arliði líka aðra tengingu – okkur finnst sumarið hafa komið inn í líf okkar þegar við kynntumst fyrir tveimur árum,“ segja þau Sjöfn Ýr og Tryggvi Þór. Karitas veldur heimþrá Víkur nú sögunni að Steinunni og hennar fjölskyldu. Hún var búsett í Danmörku um tíu ára skeið og las Karitas án titils í fyrsta skipti þegar hún kom hingað heim um jólin 2004. Síðan margoft og seinni bókina líka. „Ég fékk alltaf jafnmikla heimþrá við lesturinn, allt var svo íslenskt; landslagið, maturinn og sagan sjálf. Nafnið Karitas sat í mér, konan sú var enginn auli, hún gekk í gegnum ýmislegt, fór út í heim og lét ekkert stoppa sig. Ég gæti alveg hugsað mér að Karitas mín fengi einhverja eiginleika hennar,“ segir Steinunn, sem eignaðist báðar bækurnar á sín- um tíma, en lánaði og fékk aldrei aft- ur.“ Dálæti hennar á Karitas fór ekki fram hjá kærastanum, Auðuni Braga Salmarssyni, sem gaf henni bækurnar þegar hún gekk með Kar- itas Brynju. „Þótt hann hafi ekki ennþá lesið bækurnar, samþykkti hann nafnið umyrðalaust,“ segir Steinunn og tekur skýrt fram að lesturinn sé í forgangi á „to-do list- anum“ hjá honum. „Auðunn Bragi vildi millinafn, sem var mér ekkert á móti skapi, enda nafn mömmu minn- ar,“ bætir hún við. Skömmu eftir fæðingu dóttur sinnar las Steinunn báðar sögurnar um Karitas – einu sinni enn – og gerði stórmerkilega uppgötvun, að henni fannst. „Mamma Karitasar í bókinni heitir Steinunn, eins og ég, og besta vinkona Steinunnar heitir Jenný – eins og systir mín. Auk- inheldur er Jón, faðir Karitasar, frá Ísafirði – eins og Auðunn minn.“ Nefnd en ekki skírð Nafnaveisla Karitasar Brynju var haldin með pompi og prakt á heimili þeirra Auðuns Braga og flutti Steinunn af því tilefni smá tölu um tilurð nafnsins og merkingu þess. „Karitas er latneskt orð, sem þýðir kærleikur, og þekkist hvergi annars staðar í heiminum skrifað með Ká-i nema á Íslandi, þar sem það á sér langa hefð,“ segir hún. Eins og Steinunn og Auðunn Bragi eru Sjöfn Ýr og Tryggvi Þór ekki í Þjóðkirkjunni, og því voru börnin nefnd en ekki skírð. Nafna- veislur beggja voru þó með svipuðu sniði og tíðkast alla jafna í hefð- bundnum skírnarveislum í heima- húsum. „Ógleymanlegur dagur,“ segja foreldrar nefndra barna, þeirra Karitasar og Sumarliða. Nafnaveisla Karitas var orðin svolítið þreytt í nafnaveislunni sinni. 1. janúar 2015 voru 137 sem báru nafnið Karitas sem 1. eiginnafn og 72 sem sem 2. eiginnafn. Þá voru 33 sem báru nafnið Sumarliði sem 1. eiginnafn og 5 sem 2. eiginnafn. Heimild: Hagstofa Íslands Í föðurfangi Sumarliði í sínu fínasta pússi í nafnaveislunni. Morgunblaðið/Freyja Gylfa Fjögurra mánaða Tryggvi Þór og Sjöfn Ýr með Hjört Sumarliða, rúmlega fjögurra mánaða. DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 2016 Alls kyns jaðaríþróttir, þrekraunir, úti- vist og leikir verða í brennidepli frá 22. júlí og fram yfir verslunar- mannahelgina á Sumarleikunum á Ak- ureyri. Íbúum og gestum bæjarins gefst kostur á að spreyta sig í fjall- göngum, þríþraut, sjósundi, hjólreið- um, hlaupum, siglingum og fleiru. Fólk getur hvort heldur sem er keppt við sjálft sig eða aðra. Markmiðið er fyrst og fremst að fjölskyldan fái notið sín með heilnæmri hreyfingu og útivist ásamt því að alvöru útitónleikar verða á kvöldin. Hjólreiðahelgi Greifans er fyrsti við- burður leikanna og hefst kl. 17 í dag, 22. júlí, á Siglufirði, en þaðan er hjólað til Akureyrar gegnum fern jarðgöng og endað fyrir framan Greifann á Ak- ureyri þar sem slegið verður upp veislu og DJ spilar á þakinu. Evr- ópumótaröð unglinga í golfi verður í miðri viku og svo er það endasprett- urinn, verslunarmannahelgin, en þá verða fjölbreyttir íþróttaviðburðir um allan bæ og skemmtidagskrá í Skáta- gilinu föstudags- og laugardagskvöld. Dagskránni lýkur á sunnudagskvöld á Sparitónleikum á leikhúsflötinni. Vefsíðan www.icelandsummergames.com Táp og fjör Jaðaríþróttir verða ekki út undan á Sumarleikunum á Akureyri. Íþróttir, útivist og afþreying Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. KOMNIR AFTUR! Laugavegi 29 - sími 552 4320 www.brynja.is - verslun@brynja.is Lykilverslun við Laugaveg síðan 1919 Áratuga þekking og reynsla 8.735,- 10.750,- 9.980,- VERÐ FRÁ 3.255,- 995,-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.