Morgunblaðið - 22.07.2016, Side 39

Morgunblaðið - 22.07.2016, Side 39
MENNING 39 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 2016 Laufey Rún Ketilsdóttir laufey@mbl.is „Þetta er samtímasaga úr Reykjavík um venjulegt fólk í tilgangslausu stríði hvað við annað,“ segir Grímar Jónsson framleiðandi, en tökur eru hafnar á nýrri íslenskri kvikmynd, Undir trénu, í leikstjórn Hafsteins Gunnars Sigurðssonar en hann skrif- aði einnig handritið ásamt Huldari Breiðfjörð. „Þetta snýst um nágranna- og for- ræðisdeilur og þess háttar þar sem allt fer úr böndunum. Það kannast flestir við þetta þema,“ bætir Grímar við en hann framleiðir myndina ásamt Sindra Páli Kjartanssyni og Þóri Snæ Sigurjónssyni fyrir hönd Netop Films. Myndin er í grunninn dramatísk mynd en á henni eru kómískir fletir og á köflum væri hægt að tala um spennumynd. Hún gerist í Reykjavík samtímans þar sem Steindi Jr., Sig- urður Sigurjónsson, Edda Björg- vinsdóttir, Þorsteinn Bachmann og Selma Björnsdóttir fara með aðal- hlutverkin. „Þetta eru leikarar sem fólk hefur meira séð í kómísku sam- hengi en ég finn strax fyrir því eftir fyrstu dagana í tökum að það er mjög þakklátt að sjá þessa frábæru leikara í svona dramatískum hlut- verkum líka.“ Tökur standa yfir næstu sex vik- urnar og áætlað er að frumsýna myndina öðruhvorumegin við sum- arið 2017. Þegar hafa borist nokkur tilboð frá erlendum framleiðslufyr- irtækjum sem vilja kaupa réttinn á endurgerð myndarinnar. „Magnað ferli að finna tréð“ Einn helsti örlagavaldur mynd- arinnar er þó stórt og veglegt tré af tegundinni garðhlynur. Staðsetning trésins veldur því að heiftúðugar deilur myndast á milli fjölskyldn- anna í myndinni sem búa hlið við hlið en tréð varpar skugga á sólpall ann- arrar fjölskyldunnar. Slíkar deilur eru ekki aðeins ís- lenskt fyrirbæri þó þær séu vissu- lega algengar hér á landi. „Ég er Garðhlynurinn gerður ódauðlegur Undir trénu Steindi Jr., Hafsteinn Gunnar, Siggi Sigurjóns og Edda Björgvins á fyrsta tökudegi myndarinnar. ánægður með hvað þema mynd- arinnar er alþjóðlegt og eitthvað sem flestir geta tengt við.“ Það var þó ekki hlaupið að því að finna fallegan garðhlyn í borginni sem hægt væri að nota í myndinni án þess að hann biði skaða af. „Það var magnað ferli að finna tréð því tré eru mjög heilög hjá mörgum, nema kannski aspirnar en okkur langaði ekki í ösp,“ segir Grímar en leik- stjórinn hafði óskað eftir garðhlyn sem er með sjaldgæfari trjám. Upp komst svo um garðhlyn í Skerjafirð- inum en til stóð að höggva tréð og fjarlægja það. „Við tókum því að okkur að fjarlægja tréð og fórum með það nálægt sjónum í Skerjafirð- inum þar sem við gátum myndað tréð úr öllum áttum,“ segir Grímar en hafa þurfti hraðar hendur því það tekur aðeins um tvo daga fyrir lauf- blöðin að fölna og falla af eftir að tré er fellt. Stofninn verður notaður á töku- stað myndarinnar en krónu trésins verður komið fyrir í myndinni með hjálp tækninnar. „Við getum því alveg sagt með góðri samvisku að engin tré hafi hlotið skaða við gerð myndarinnar,“ segir Grímar léttur í bragði en tréð hafi þvert á móti verið gert ódauð- legt. Fjögur tungumál töluð Undir trénu er íslensk, dönsk, pólsk samframleiðsla og hlaut verk- efnið nýlega stuðning frá evrópska kvikmyndasjóðnum Eurimages ásamt Norræna kvikmynda- og sjón- varpssjóðnum. „Það er mikill heiður og skemmtilegt að setja saman svona samframleiðslu. Hingað er kominn hópur fagfólks frá Dan- mörku og Póllandi, verkefnið fer vel af stað,“ segir Grímar. Þegar styrkir fást úr erlendum kvikmyndasjóðum þarf að ákveða hvernig þeim fjármunum verði best varið með aðkomu þeirra þjóða sem veita styrkinn. „Við finnum leiðir til að eyða þeim peningum sem við fáum að utan þannig að það nýtist myndinni alltaf sem best,“ segir hann en ákveðið var að fá pólskan tökumann, tökulið og ljósadeild en danska tölvueftirvinnsludeild, brell- ur og förðun. „Tökurnar fara vel af stað en það er ákveðin áskorun þar sem við erum með fagfólk frá Danmörku og Pól- landi og því töluð fjögur tungumál á setti – en það er ótrúlega góð stemn- ing.“ Engir nýgræðingar „Maður finnur fyrir því að maður er í allt öðruvísi sporum núna en áð- ur,“ segir Grímar en íslensk kvik- myndagerð standi vel á alþjóðlegum vettvangi í kjölfar velgengni kvik- myndanna Hrúta, Fúsa og Þrasta á síðustu tveimur árum. Mikið sé horft til lengri tíma í sam- starfi milli fyrirtækja um framleiðslu kvikmynda og reynt að byggja upp langtímasamband þeirra á milli. Að myndinni Undir trénu standa engir nýgræðingar í íslenskri kvik- myndagerð en Grímar hefur ásamt Sindra Páli og Þóri Snæ unnið að framleiðslu kvikmynda um langt skeið. Þá leikstýrði Hafsteinn Gunn- ar, leikstjórinn, áður myndunum Á annan veg árið 2011 og París norð- ursins árið 2014.  Tökur hafnar á nýrri íslenskri kvikmynd, Undir trénu  Stjörnum prýdd samtímasaga úr Reykja- vík þar sem tré er í aðalhlutverki  Íslensk, dönsk og pólsk samframleiðsla  Mikill áhugi erlendis Tréð Garðhlynurinn myndaður í bak og fyrir en hann leikur stórt hlutverk. Í gullfallegu miðaldaumhverfi á rómantísku torgi í hollensku borg- inni Maastricht hefur fiðluleikarinn André Rieu haldið árlega tónleika síðustu tólf árin. Um er að ræða miðsumarstón- leika þar sem André Rieu nýtur stuðnings Johann Strauss Orchestra auk fjölda frægra einleikara og sér- stakra gesta. Þrátt fyrir að þúsundir sæki tón- leika hans á hverju ári komast færri að en vilja. Til að mæta áhuga fólks á miðsumarstónleikum André hefur Sena í samvinnu við CinemaLive tryggt beina útsendingu af tón- leikum fiðluleikarans og verða þeir sýndir í Háskólabíói á morgun, laug- ardag, klukkan 18. André leikur valsa, klassíska tón- list, óperettur og söngleikjatónlist sem seint mun gleymast og með beinu hágæða útsendingunum fá aðdáendur Andrés um allan heim tækifæri til að njóta þessara und- ursamlegu tónleika á hvíta tjaldinu. List Tónleikar André Rieu eru fjölbreyttir og flestir finna eitthvað við sitt hæfi þegar fiðluleikarinn stígur á sviðið til að skemmta fólki. André Rieu í beinni út- sendingu í Háskólabíói HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI Hágæða vinnuföt í miklu úrvali Sérmerkjum fyrir fyrirtæki Verkfæri og festingar Mikið úrval af öryggisvörum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.