Morgunblaðið - 22.07.2016, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 22.07.2016, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 2016 Utanríkisráðuneytið vill brýna fyrir íslenskum ferðamönnum sem hyggja á för til Tyrklands og þeim Íslendingum sem eru í landinu að gæta áfram fyllstu varúðar meðan á dvöl þeirra stendur, en tyrknesk stjórnvöld lýstu í fyrradag yfir þriggja mánaða neyðarástandi í landinu í kjölfar valdaráns- tilraunarinnar síðastliðinn föstudag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu. Þar segir að þetta hafi verið ákveðið eftir reglulegt samráð borgaraþjónustu Norður- landanna. Þá brýnir borgaraþjónusta utan- ríkisráðuneytisins fyrir Íslendingum í Tyrklandi að vera ávallt með vega- bréf eða önnur persónuskilríki með- ferðis og fylgja þeim leiðbeiningum sem eru í gildi. Í tilkynningunni er minnt á að unnt sé að ná í borgara- þjónustu utanríkisráðuneytisins all- an sólarhringinn í síma 5459900. Íslendingar beðnir um að gæta varúðar AFP Tyrkland Ástandið í landinu hefur verið óstöðugt að undanförnu. Bæjarlind 6, sími 554 7030 Við erum á facebook ÚTSALA BOLIR Á ÚTSÖLU 1.000.- 2.000.- 2.900.- 3.450.- 4.400.- Birting lýsingar Útgefandi: Vátryggingafélag Íslands hf., kt. 690689-2009, Ármúla 3, 108 Reykjavík. Vátryggingafélag Íslands hf. hefur birt lýsingu, sem samanstendur af verðbréfalýsingu og útgefandalýsingu, dagsetta 20. júlí 2016. Lýsingin er birt í tengslum við umsókn útgefanda um að skuldabréf hans verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði NASDAQ Iceland hf. Lýsingin hefur verið staðfest af Fjármálaeftirlitinu. Lýsingin er gefin út á íslensku. Útprentuð eintök af lýsingunni má nálgast á skrifstofu útgefanda að Ármúla 3, 108 Reykjavík, í 12 mánuði frá staðfestingu hennar. Rafræn eintök má nálgast á vefsíðu útgefanda, http://www.vis.is/vis/fjarfestar/fjarfestar/. Gefin hafa verið út skuldabréf að nafnvirði 2.500.000.000 íslenskra króna og er heildarstærð flokksins hin sama. Öll skuldabréfin hafa verið seld. Skuldabréfin eru gefin út rafrænt hjá Nasdaq verðbréfamiðstöð hf. í 20.000.000 kr. einingum. ISIN númer bréfanna er IS0000026755. Skuldabréfin eru verðtryggð vaxtagreiðslubréf, gefin út til 30 ára með einum gjalddaga höfuðstóls í lokin. Viðmiðunarvísitala er dagvísitala sem er reiknuð út frá vísitölu neysluverðs á Íslandi (NEY), sem gefin er út af Hagstofu Íslands. Grunnvísitala skuldabréfanna er dagvísitalan 29. febrúar 2016, sem er 428,46667. Skuldabréfin bera 5,25% fasta ársvexti, sem greiðast þann 1. mars og 1. september ár hvert, fyrst þann 1. september 2016 og síðast 1. mars 2046. Vextir hækka um 1% (1 prósentustig) að liðnum 10 árum frá útgáfudegi skuldabréfanna og verða þá 6,25% fastir ársvextir. Útgáfudagur skuldabréfanna var 29. febrúar 2016. Vátryggingafélag Íslands hf. hefur óskað eftir því að skuldabréfin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði NASDAQ Iceland hf. og mun verða tilkynnt um slíkt með að lágmarki eins viðskiptadags fyrirvara. Óskað hefur verið eftir því að auðkenni skuldabréfaflokksins í viðskiptakerfi NASDAQ Iceland hf. verði VIS 16 1. Reykjavík, 22. júlí 2016 Stjórn Vátryggingafélags Íslands hf. www.arctica.is | Höfðatorgi, 15. hæð | 105 Reykjavík | Sími 513 3300 Sparidress - Sumaryfirhafnir - Peysur - Blússur - Bolir Laugavegi 63 • S: 551 4422 STÓRÚTSALA GLÆSILEGIR FRAKKAR OG KÁPUR GERRY -WEBER-TAIFUN-BETTY BARCLAY GÆÐA DÖMUFATNAÐUR ALLT AÐ 60% AFSLÁTTUR 40-60% afsláttur Jóhannes Gunn- arsson hyggst ekki gefa kost á sér til áfram- haldandi for- mennsku í Neytenda- samtökunum. Jóhannes greindi frá ákvörðuninni á Facebook-síðu sinni, en þar kemur einnig fram að hann telji tíma til kominn að annar taki við keflinu. Hann segir starfið hafa verið ánægjulegt og það hafi verið honum heiður að fá að sinna því. Auglýst hefur verið eftir fram- boðum til formennsku og stjórnar á heimasíðu Neytendasamtakanna. Jóhannes gefur ekki kost á sér aftur Jóhannes Gunnarsson Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Börkur NK, skip Síldarvinnslunnar, hefur síðustu daga verið í slipp á Ak- ureyri og fengið þar mikla yfirhaln- ingu. Skipið hefur nú verið málað í nýj- um litum Síldarvinnslunnar sem þó mætti segja að séu gamlir, en þeim svipar til dökkblás litar fyrstu skipa Síldarvinnslunnar, að sögn Karls Jó- hanns Birgissonar, rekstrarstjóra útgerðar hjá Síldarvinnslunni. „Þetta eru nýir litir sem fyrirtækið ákvað að láta mála skipin í. Þeir nálgast meira þá liti sem skipin voru máluð í fyrst, í kringum 1965, þ.e.a.s. blái liturinn,“ en kjölurinn er rauður að lit og hvítar strípur liggja með- fram skipinu endilöngu. Merki Síldarvinnslunnar má svo sjá aftar- lega á skrokknum báðum megin og í stefni bátsins. Börkur var áður rauð- ur, en þannig var hann keyptur frá Noregi árið 2014. Síldarvinnslan gerir út fimm skip, en að sögn Karls Jóhanns er Blæng- ur næstur í röðinni. „Blængur hefur verið í endur- byggingu í Póllandi og er bara rétt að klárast. Hann siglir væntanlega heim á sunnudag,“ segir hann, en Blængur hefur einnig verið málaður í nýju litunum. Að sögn Karls Jóhanns er óvíst hvert skipanna verður næst í röð- inni, möguleiki sé þó að það verði frystitogarinn Barði. Börkur nýmálaður  Skipaflotinn málaður í upphaflegum lit Síldarvinnslunnar Ljósmynd/Þorgeir Baldursson Yfirhalning Börkur NK í nýjum litum siglir frá Slippnum á Akureyri á leið sinni til Neskaupstaðar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.