Morgunblaðið - 22.07.2016, Blaðsíða 1
ar slakar reglur um skatta, mönnun
á skipunum og öryggismál. Meira að
segja Mongólía er með skipaskrán-
ingu en á þó hvergi land að sjó,“ seg-
ir Henry.
Henry upplýsir í viðtali við
Morgunblaðið í dag að hann sé
að skoða mál sem tengist sam-
starfi íslensks fyrirtækis við
fyrirtæki í eigu mafíunnar í
New York og tengsl þeirra
félaga við fjármálastrúkt-
úr tengdan Donald
Trump, frambjóðanda
Repúblikanaflokksins
í komandi forseta-
kosningum í Banda-
ríkjunum. »14
„Það eru mörg dæmi um tengsl ís-
lenskra fyrirtækja við skattaskjól,“
segir James S. Henry, hagfræðingur
og sérfræðingur í aflandsmálum,
sem hélt fyrirlestur um málefni af-
landsfélaga í Háskóla Íslands í gær.
Henry telur sumar greinar vera
nánast eingöngu reknar í gegn-
um aflandsfélög. „Farskip heims-
ins eru áhugavert rann-
sóknarefni. Nánast
allur farskipaiðnaður-
inn er rekinn í
skattaskjólum. Flest
flutningaskip í
heiminum eru
skráð á Marshall-
eyjum sem hafa af-
Kannar samstarf íslensks fyrirtækis við
fyrirtæki í eigu mafíunnar í New York
James S. Henry
F Ö S T U D A G U R 2 2. J Ú L Í 2 0 1 6
Stofnað 1913 170. tölublað 104. árgangur
EINS OG AÐ
HALDA JÓL
AÐ SUMRI TIL UNGIR NAFNAVINIR
GESTIRNIR SITJA
Í KOLNIÐAMYRKRI
UMVAFÐIR HLJÓÐI
KARITAS OG SUMARLIÐI 12 OF LIGHT Í TJARNARBÍÓI 38FRANSKIR DAGAR 15-16
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Það sem af er þessu ári og fram á
daginn í dag, hafa innlendir mat-
væla-, mjólkurvöru-, drykkjarvöru-
og sælgætisframleiðendur hækkað
verð á framleiðslu sinni um 2% til
7%. Flestar hækkanirnar hafa verið
á bilinu 2% til 5%.
Í samtölum við forstjóra Haga,
Festar og Samkaupa í Morgun-
blaðinu í dag, kemur fram að inn-
lendir framleiðendur, birgjar og
þjónustufyrirtæki, hafi gefið, sem
meginskýringu á verðhækkunum
sínum, launabreytingar, bæði á
þessu ári og síðasta ári. Segja þeir
að hækkanirnar hafi verið hófstillt-
ar. Jón Björnsson, forstjóri Festar,
sagði í samtali við Morgunblaðið, að
það hefði komið honum ánægjulega
á óvart, hversu hófstilltar hækk-
anirnar hefðu verið.
Finnur Árnason, forstjóri Haga,
segir að matvaran sem hefur verið
að hækka um 2% til 5% á árinu, sé
svínakjöt, kjúklingur, mjólkurvara,
brauð og kex. Á móti komi að inn-
flytjendur á matvöru hafi verið að
lækka verð til verslana, vegna
styrkingar krónunnar, um 2% til
3%.
Ómar Valdimarsson, forstjóri
Samkaupa, sagði að verslunin ein
gæti ekki tekið á sig þessar hækk-
anir, og að einhverju leyti myndu
þær smita út í verðlagið. „Menn eru
alltaf að reyna að hagræða eins og
hægt er að hagræða. Við höfum
þann kost að leita í eigin innflutning
og gerum það í auknum mæli,“
sagði Ómar.
Matur hækkar um 2-7%
Forstjórar Haga, Festar og Samkaupa telja að innlendir framleiðendur og
birgjar hafi stillt verðhækkunum sínum eftir megni í hóf, það sem af er ári
MHækkun launa »6
Hófstilltar hækkanir
» Viðmælendur eru sammála
um að verðhækkun á innlendri
matvöru, sælgæti, mjólkur-
afurðum og flutningsgjöldum
hafi verið stillt í hóf.
» Langflestir innlendir fram-
leiðendur hafa hækkað verð á
framleiðslu sinni það sem af er
ári um 2% til 5%.
Heimamenn á Snæfellsnesi voru í hestaferð og ráku hrossin sín
meðfram þjóðveginum er ljósmyndari Morgunblaðsins var þar
á ferð. Vöktuðu bílaleigubílar með forvitin erlend augu hvert
spor jafnt hesta og manna. Mikil umferð hefur verið um Vestur-
land í sumar enda stuttar vegalengdir í margar heimsfrægar
náttúruperlur. Það var því kannski kærkomið fyrir ferðamenn
að sjá hinn margfræga íslenska hest í návígi, töltandi um slóða
við þjóðveginn. Sitjandi slakir í bíl sínum og smella af með
myndavélinni án þess að þurfa að hreyfa legg eða lið.
Slegið í gandinn við þjóðveginn á Snæfellsnesi
Morgunblaðið/RAX
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Á nýju skipuriti, sem forstjóri 365
hefur kynnt fyrir starfsfólki fyrir-
tækisins, kemur fram að Jón Gnarr
er ekki lengur í hópi helstu stjórn-
enda fyrirtækisins. Í hans stað hefur
Hrefna Lind Heimisdóttir tekið við
sem yfirmaður dagskrárgerðar hjá
fyrirtækinu. Jón tók við sem fram-
kvæmdastjóri dagskrársviðs fyrir-
tækisins um miðjan október í fyrra
en Hrefna Lind bar titilinn ritstjóri
dagskrársviðs.
Þegar Morgun-
blaðið leitaði
skýringa á þess-
um breytingum
hjá Sævari Frey
Þráinssyni, for-
stjóra 365, sagði
hann að ákveðið
hefði verið að Jón
myndi einbeita
sér fram á haust-
ið að gerð grínþáttaraðar sem ber
heitið Borgarstjórinn.
Fleiri breytingar voru kynntar í
nýju skipuriti. Þar má meðal annars
nefna að Ágúst Héðinsson var
kynntur til leiks sem yfirmaður út-
varps og íþrótta hjá fyrirtækinu og
mun hann heyra beint undir for-
stjóra. Þá mun Svanur Valgeirsson
taka við starfi staðgengils forstjóra
en undir hann heyra einnig svið aug-
lýsinga- og áskriftarmála.
Spurður út í ástæður breyting-
anna segir Sævar Freyr að verið sé
að skerpa línurnar í rekstri fyrirtæk-
isins. „Með þessu erum við að leggja
aukna áherslu á sölumálin hjá okkur
og skerpa á ábyrgðarsviðum hvers
og eins.“
Jón Gnarr ekki á skipuriti
Breytingar á yfirstjórn 365 Skerpa á söluhlutanum
Jón Gnarr
Lilja Dögg Alfreðsdóttir
utanríkisráðherra segir stöðu mála
í Tyrklandi grafalvarlega. Fastaráð
Öryggis- og samvinnustofnunar
Evrópu (ÖSE) fundaði í Vín í gær.
Þar tók Ísland undir yfirlýsingu
Evrópuríkja þar sem lýst var stuðn-
ingi við lýðræðislegar stofnanir
samfélagsins. Valdaránstilraunin
var harðlega fordæmd en tyrknesk
stjórnvöld hvött til að gæta hófs í
viðbrögðum sínum.
„Þróunin hefur verið mjög hröð
og ófyrirsjáanleg og hvetur Ísland
til stillingar og sátta,“ segir Lilja
Dögg í yfirlýsingu. „Það er mikil-
vægt að tyrknesk stjórnvöld virði
mannréttindi í hvívetna. Eitt er að
draga þá til ábyrgðar sem skipu-
lögðu og stóðu að valdaránstilraun-
inni – annað er að stunda víðfeðmar
hreinsanir af pólitískum toga.“ »19
Telur stöðuna í Tyrk-
landi grafalvarlega