Morgunblaðið - 22.07.2016, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 22.07.2016, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 2016 Reykjavíkurvegi 64, Hfj, s. 555 1515, enjo.is • Tímasparnaður • Engin kemísk efni • Ódýrara • Umhverfisvænt • 6 x hreinna - betri þrif • Vinnuvistvænt • Minni vatnsnotkun Nýja ENJO vörulínan er komin á markað Ferskari, líflegri og enn meiri gæði Komið í verslun okkar og sjáið úrvalið Opið kl. 11-18 alla virka daga Sigríður Ása Harðardóttir, formað- ur Flugfreyjufélags Íslands, vill ekki gefa upp hvert ágreiningsefnið er í kjarasamningi flugfreyja en segir þó engan eðlismun á þessum samningi og þeim samningi sem gerður var við flugfreyjur Icelandair í síðasta mán- uði. „Nei alls ekki, þetta eru mjög svipaðir samningar,“ segir Sigríður Ása, en fundur verður haldinn hjá ríkissáttasemjara í ágúst. Félagsfundur var haldinn hjá flug- freyjum hjá Flugfélagi Íslands á miðvikudag. Þar voru kjaramál til umræðu eftir að kjarasamningur þeirra var felldur með afgerandi hætti. Í samtali við mbl.is sagði Sigríður Ása að fundurinn hefði gengið vel. „Við munum koma með á næsta samningafundi hvað það er sem olli því að samningurinn var felldur og reyna að fá umræðu um það,“ segir Sigríður og tekur fram að engar verkfallsaðgerðir séu fyrirhugaðar hjá félaginu. agf@mbl.is Samningarnir eðlislíkir Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Flugfreyjur Kjarasamningur flugfreyja var felldur með afgerandi hætti.  Engar verkfallsaðgerðir fyrirhugaðar hjá flugfreyjum  Svipaðir samningar hjá Icelandair og Flugfélagi Íslands Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir er í 4. sæti á heimsleikunum í crossfit að lokn- um fjórum þraut- um, en kepp- endur syntu 500 metra sjósund í fjórðu þrautinni. Annie Mist Þór- isdóttir fylgir fast á hæla hennar í 5. sæti, Katrín Tanja Davíðsdóttir er í því 10. og Þuríður Erla Helgadóttir í 19. sæti. Í karlaflokki er Björgvin Karl Guð- mundsson í 5. sæti. Haraldur Holgersson lauk keppni í gær í 8. sæti í keppni drengja 16-17 ára, jafn að stigum og sá sem endaði í sætinu fyrir ofan hann, en þeir keppendur sem lentu í fimm efstu sætunum keppa í einni þraut til viðbótar. Hilmar Þór Harðarson hefur einnig lokið keppni, en hann hafnaði í 18. sæti í masters-flokki 55-59 ára. Hilmar slasaðist á síðustu æfingunni fyrir mótið og hefur því keppt meiddur. Ragnheiður Sara fjórða eftir daginn  Annie Mist og Björgvin eru í 5. sæti Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Heildarkjötsala jókst um 11,2% frá 1. júní 2015 til 30. júní 2016 og var um 27 þúsund tonn. Þyngst vegur aukning sölu á nautakjöti en hún hefur vaxið um heil 36,9% á tíma- bilinu. Sala eykst á öllum kjöttegundum nema lamba- kjöti. Óvenjugóð sala í verkfalli Ágúst Andrésson, forstöðumaður kjötafurðastöðva hjá Kaupfélagi Skagfirðinga, segir að ein ástæða þess að ekki hafi orðið söluaukning á lambakjöti sé að á meðan verkfalli dýralækna stóð í fyrra var ekki hægt að slátra svínum og nautum. Fyrir vikið hafi verið óvenjugóð sala á lambakjöti í fyrrasumar þar til verk- fallinu lauk, en það stóð fram í júní. „Í þessu samhengi má nefna það að þó að salan hafi ekki aukist á kindakjöti á milli ára að salan var mjög góð í júní og greinilegt að stemmningin í kringum EM og gott grillveður hafði þar áhrif,“ segir Ágúst. Að sama skapi kann það að skýra hina miklu aukningu í sölu á nauta- og svínakjöti síðastliðið ár að vel hafi selst af þessum kjöttegundum eftir að verkfallinu lauk í júní í fyrra. Söluaukning á svínakjöti nam 15,4% og tæpum 37% á nauti. Birgðastaðan í ágætu jafnvægi Ágúst segir að aukningin upp á 11,2% sé mjög ásættanleg niður- staða fyrir kjötsölu í heild. Ljóst sé að hún helgist að mestu leyti af auknum fjölda túrista. Ekkert bendi til þess að Íslendingar séu að neyta meira kjöts en áður. „Allir þessir gestir á landinu taka mikið til sín. Það er góð sala þessa dagana og ef maður skoðar birgða- stöðuna má sjá að 7% minna er til af dilkakjöti en í sama mánuði (júní) í fyrra. Með áframhaldandi góðri sölu í júlí og ágúst, og ef miðað er við stemmninguna eins og hún er, þá held ég að útlitið sé ágætt með tilliti til þess að til verði nægt kjöt á mark- aði, en alls ekkert of mikið og jafn- vægið er því ágætt,“ segir Ágúst. Kjötsala hefur aukist um 11,2%  Góð sala í kringum EM í knattspyrnu  Aukning í öllum kjöttegundum nema lambakjöti  Sala á nautakjöti vaxið um tæp 37%  Verkfall skekkir tölur Kjötsala júní 2015 - júní 2016 *Sala á sauðfé p.r. mánuð er sala frá afurðastöðum til kjötvinnslu og verslana Afurð Ár Ár Hlutdeild Alifuglakjöt 8.666.925 8,5% 32,2% Hrossakjöt 552.425 2,0 % 2,1% Nautgripakjöt 4.378.576 36,9% 16,3% *Sauðfé 6.730.428 -0,6% 25,0% Svínakjöt 6.564.395 15,4% 24,4% Samtals 26.999.765 11,2% Morgunblaðið/Golli Kjötsala Sala á kjöti jókst um 11,2% í heild frá júní 2015 til júní 2016. Ágúst Andrésson Guðni Einarsson gudni@mbl.is Bæjarráð Mosfellsbæjar samþykkti í gær heimild til bæjarstjóra að undir- rita lóðarsamning við MCPB ehf., sem hyggst reisa stórt sjúkrahús og hótel í Mosfellsbæ. MCPB er að mestu í eigu Burbanks Holding BV í Hollandi. Forsvarsmenn félagsins hafa unnið að undirbúningi verkefnisins um skeið. Uppbygging og rekstur spítal- ans verður í samstarfi við spænska hjartalækninn dr. Pedro Brugada. Haraldur Sverrisson bæjarstjóri sagði að nú hæfist vinna við deili- skipulag. Lóð fyrir sjúkrahús og hótel er þegar skilgreind á aðalskipulagi. Hann sagði að búið væri að ráða arki- tekta fyrir verkefnið. „Áhersla verður lögð á að fella þessar byggingar að náttúrunni og landslaginu. Þetta er mikið bygging- armagn,“ sagði Haraldur. MCPB ehf. á forkaupsrétt að eins lóð við hlið þeirrar sem hefur verið úthlutað. Samtals gæti fyrirtækið því eignast rúmlega 12 hektara lóð. Um 1.000 ný störf verða til Henri Middeldorp, framkvæmda- stjóri Burbanks Holding BV, gerir ráð fyrir að framkvæmdir hefjist næsta vor. Reiknað er með að þær taki tvö og hálft til þrjú ár. Reiknað er með að sjúkrahúsið rúmi um 150 sjúkrastofur og 5-8 skurðstofur. Á hótelinu er reiknað með að verði 250 herbergi. Hönnun og endanleg þarfagreining stendur yfir og því geta þessar tölur eitthvað breyst. Að sögn Middledorp nefnist verk- efnið Medical Center Pedro Brugada (MCPB) eftir spænska hjartalæknin- um Brugada. Hann hefur sérhæft sig í lækningu á hjartsláttaróreglu. Sjúk- dómur sem veldur óreglulegum hjart- slætti er nefndur Brugada syndrome eftir honum og Joseph bróður hans sem einnig er hjartalæknir. „Aðalverkefni okkar verða hjarta- aðgerðir,“ sagði Middledorp. Hann sagði að á sjúkrahúsinu verði einnig stundaðar bæklunarlækningar t.d., og mjaðma- og hnjáaðgerðir, lýtaað- gerðir auk lækninga við offitu og syk- ursýki. „Allir sjúklingar okkar munu koma frá útlöndum; Evrópu og Bandaríkj- unum,“ sagði Middledorp. „Markmið okkar er að stytta biðlistana í Evr- ópu.“ Unnið er að gerð samnings við DKV, sem er risastórt alþjóðlegt heilsutryggingafélag og er m.a. með yfir 20 milljónir viðskiptavina í Þýskalandi og annað eins á Spáni, í Belgíu og Hollandi. Middledorp sagði að gert hefði verið heiðursmannasam- komulag við íslenska heilbrigðisgeir- ann um að ekki yrði leitað eftir ís- lenskum sjúklingum til að koma til lækninga á sjúkrahúsinu. „Við munum koma með sjúklinga, lækna og hjúkrunarfólk til Íslands. Aðrir starfsmenn verða ráðnir hér,“ sagði Middledorp. Hann sagði reikn- að með að minnst 1.000 ný framtíð- arstörf yrðu til við verkefnið. Íslenskir sjúkrahúslæknar mega vinna allt að 40% hlutastörf á einka- reknum stofum. Því kemur til greina að þeir geti unnið á sjúkrahúsinu að hluta og öðlast þar þjálfun án þess að það komi niður á íslenska heilbrigð- iskerfinu. Middledorp sagði að dr. Brugada hafi undanfarin ár útskrifað átta sérfræðinga á sínu sviði á hverju ári. Hann muni þjálfa hér erlenda og íslenska sérfræðinga sem mun koma íslenska heilbrigðiskerfinu til góða, að mati Middledorps. Munu reisa 30.000 fermetra hús  Hótel með 250 herbergjum  Sjúkrahús með 150 stofum og 5-8 skurðstofum  Reiknað er með alls um 1.000 nýjum störfum við starfsemina  Læknarnir og sjúklingarnir munu koma frá útlöndum Lóð fyrir sjúkrahús og hótel Heimild: Mosfellsbær Hafravatnsvegur Reykjalundur Sólvellir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.