Morgunblaðið - 22.07.2016, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 22.07.2016, Blaðsíða 35
Karolinska-sjúkrahúsið í Stokk- hólmi. Hlíf hóf svo störf á Landspít- ala árið 2000 sem sérfræðingur í lyf- lækningum og blóðsjúkdómum. Hún var yfirlæknir blóðlækninga á Land- spítalanum frá 2002 og þar til hún tók við sem framkvæmdastjóri lyflækn- ingasviðs árið 2014. Hlíf var formað- ur Félags ungra lækna 1993 og hefur auk þess setið í fjölda nefnda og ráða tengdum starfi sínu sem læknir. Helsta áhugamál Hlífar er skóg- rækt og ýmislegt sem því tengist. Hlíf og Halldór eru að byggja sér sumarhús í Borgarfirði á landi Kletts þar sem Hermann afi hennar hóf skógrækt fyrir meira en 60 árum. „Þar er unaðsreitur fjölskyldunnar og hafa flestar frístundir undanfarin ár farið í að byggja þar hús, grisja skóg og rækta. Ég mun að sjálfsögðu dvelja að Kletti í Borgarfirði á af- mælinu mínu og taka þar á móti ættingjum og vinum.“ Fjölskylda Eiginmaður Hlífar er Halldór Ó. Zoëga, f. 14.5. 1958, verkfræðingur. Foreldrar hans eru Elísabet Magnúsdóttir, f. 22.2. 1936, kennari, bús. í Reykjavík, og Ólafur Þór Zoëga, flugmaður, f. 20.4. 1935, d. 14.4. 1963; stjúpfaðir Halldórs er Haukur Frímannsson, f. 13.5. 1935, verkfræðingur. Fyrri maki Hlífar er Eyjólfur Kristjánsson, f. 24.8. 1963, lögfræðingur. Börn Hlífar: Steingrímur Eyjólfs- son, f. 18.7. 1991, viðskiptafræðingur í Reykjavík; Guðmundur Snorri Eyj- ólfsson, f. 9.9. 1995, og Vigdís Edda Halldórsdóttir Zoëga, f. 1.4. 2004. Dóttir Halldórs er Lára Hrund Bjargardóttir, f. 15.7. 1981, kennari í Þorlákshöfn, Maki Láru: Jóhannes Gylfason, börn þeirra: Gylfi Freyr, f. 2009, Sævar Þór, f. 2011 og Baldur Leó f. 2014. Systkini Hlífar: Hermann Stein- grímsson, f. 25.8. 1964, verkfræð- ingur hjá Marel, bús. í Reykjavík; Guðmundur Steingrímsson, f. 28.10. 1972, alþingismaður, bús. í Reykja- vík. Hálfsystkini Hlífar: John Bryan Steingrímsson, f. 1951, arkitekt í Oregon, BNA; Ellen Herdís Stein- grímsdóttir, f. 1955, húsmóðir í Flór- ída, BNA, og Steingrímur Neil Her- mannsson, f. 1957, tannlæknir í Flórída, BNA. Foreldrar Hlífar: Steingrímur Hermannsson, f. 28.6. 1928, d. 1.2. 2010, verkfræðingur og forsætisráð- herra, og k.h. Guðlaug Edda Guð- mundsdóttir, f. 21.1. 1937, húsmóðir, bús. í Garðabæ. Úr frændgarði Hlífar Steingrímsdóttur Hlíf Steingrímsdóttir Jónas Jónsson b. og trésmiður á Syðri-Brekkum Pálína Björnsdóttir húsfr. á Syðri-Brekkum í Skagafirði Hermann Jónasson lögfræðingur og forsætisráðherra Vigdís Steingrímsdóttir húsfr. í Rvík Steingrímur Hermannsson verkfr., forsætisráðherra og seðlabankastjóri Margrét Þorláksdóttir húsfr. í Rvík Steingrímur Guðmundsson húsasmíðameistari í Rvík Laufey Böðvarsdóttir húsfr. á Búrfelli í Grímsnesi Arnheiður Magnúsdóttir húsfr. í Ey- vindartungu í Laugardal Ragnheiður Böðvarsdóttir símst.stj. og organisti á Minni-Borg í Grímsnesi Guðmundur Steingrímsson alþingismaður Pálína Hermannsdóttir húsfr. í Rvík Jóhannes Björnsson hreppstj. á Hofsstöðum í Skagafirði, síðar verkstj. í Rvík Una Jóhannesdóttir fulltrúi í Rvík Sigurður Björnsson krabbameinslæknir í Rvík Hermann Sveinbjörnsson umhverfis- sérfræðingur, bús. í Rvík Benedikt Hermann Hermannsson tónlistarmaður, bús. í Rvík Gísli Þórðarson b. á Ölfusvatni Guðlaug Þorsteinsdóttir húsfr. á Ölfusvatni Guðmundur Gíslason kennari á Laugarvatni og skólastj. í Reykjaskóla Hlíf Böðvarsdóttir húsfr. á Laugarvatni, Reykjaskóla og í Rvík Guðlaug Edda Guðmundsdóttir húsfr. og listakona í Garðabæ Ingunn Eyjólfsdóttir húsfr. á Laugarvatni Böðvar Magnússon hreppstj. á Laugarvatni Gunnar Valtýsson læknir Böðvar Pálsson fyrrv. oddviti á Búrfelli Ólöf Stefánsdóttir húsfr. í Rvík Ólöf Ragnheiður Einarsdóttir leiðsögum. í Rvík Eiður Smári Guðjohnsen knattspyrnu- kempa Sigurður Böðvarsson krabbameinslæknir í Wisconsin, BNA Sigríður Böðvarsdóttir húsfr. og ljósmóðir í Miðdalskoti í Laugardal Kristín Þórisdóttir húðsjúkdómalæknir Sigríður Þórisdóttir augnlæknir Ingunn Valtýsdóttir íþróttakennari í Kópavogi Sesselja Þorsteinsdóttir Clausen húsfr. í Rvík Örn Clausen hrl. og frjáls- íþróttakappi Haukur Clausen tannlæknir og frjálsíþróttakappi Guðrún Sesselja Arnardóttir lögmaður, bús. í Kópavogi Jóhanna Vigdís Arnardóttir leikkona og söngkona ÍSLENDINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 2016 Guðni fæddist 22. júlí 1901 áGamla-Hrauni á Eyrarbakka,einn 17 barna Jóns Guð- mundssonar, f. 17.9. 1856, d. 8.9. 1941 í Vestmannaeyjum, bónda og for- manns þar, og síðari konu hans, Ingi- bjargar Gíslínu Jónsdóttur frá Mið- húsum í Sandvíkurhr., Árn., f. 1.9. 1867, d. 2.4. 1937 í Vestmannaeyjum. Faðir hans veiktist og fór Guðni tveggja vikna gamall með móður sinni að Leirubakka í Landsveit. For- eldrum hans tókst að setja saman bú að nýju, en Guðni dvaldi áfram á Leirubakka og ólst þar upp. Guðni varð stúdent frá MR 1924 og mag. art. í íslenskum fræðum frá Há- skóla Íslands 1930. Hann var um tíma við nám í Kaupmannahöfn 1928 og aftur 1937. Hann var kennari við Gagnfræðaskóla Reykvíkinga 1928- 1945 og skólastjóri við sama skóla 1945-1957. Prófessor í sögu Íslands við Háskóla Íslands var hann 1958- 1967, þar til hann lét af störfum vegna veikinda. Hann var forseti heimspekideildar HÍ 1959-1961. Hann varð doktor frá Háskóla Ís- lands 1953, en doktorsritgerð hans, Bólstaðir og bændur í Stokkseyrar- hreppi, varð brautryðjandaverk í ís- lenskri staðháttasögu. Guðni tók mikinn þátt í félags- störfum, var forseti Sögufélagsins 1960-65, formaður Ættfræðifélagsins 1946-67 og sat í stjórn Hins ísl. þjóð- vinafélags 1943-56. Hann var höf- undur fjölmargra sagnfræðirita og stofnaði til stórútgáfu íslenskra forn- rita 1946 og sá hann sjálfur um út- gáfu 32 binda af þeim. Meðal ætt- fræðirita hans er Bergsætt. Fyrri kona Guðna var Jónína Páls- dóttir, f. 4.4. 1906, d. 2.10. 1936, hús- freyja í Reykjavík. Börn þeirra: Gerður, Jón, Bjarni, Þóra og Mar- grét. Síðari kona hans var Sigríður Hjördís Einarsdóttir, f. 28.8. 1910, d. 18.7. 1979, húsfreyja í Reykjavík. Börn þeirra: Einar, Bergur, Jónína Margrét og Elín. Tveir sona Guðna, Jón og Bjarni, urðu einnig prófess- orar við Háskóla Íslands. Guðni Jónsson lést 4.3. 1974. Merkir Íslendingar Guðni Jónsson 85 ára Sigríður Ólafsdóttir Sigurbjarni Guðnason 80 ára Erlendsína M. Sigurjónsdóttir Hrafnhildur Oddsdóttir 75 ára Birgir Vigfússon Guðrún Bjarnadóttir 70 ára Gunnar Ingi Þórðarson Ingibjörg Kolbeinsdóttir Sölvi Jónasson Össur Össurarson 60 ára Ásta Guðný Einþórsdóttir Eiður Sveinsson Eyvör Gunnarsdóttir Friðsteinn Vigfússon Gestur Friðrik Guðmundss. Gísli Svansson Guðmundur Hr. Brynjarss. Guðrún Gísladóttir Guðrún Valdimarsdóttir Grashoff Gunnar Þór Svavarsson Hrönn Hallsdóttir Jóhannes G. Brynleifsson Kristín Björg Hákonardóttir Kristín Þórsdóttir Kristján Ólafsson María Kristbjörg Ingvarsd. Páll Grétarsson Páll Gunnarsson Sigríður Guðjónsdóttir Sigríður Guðmundsdóttir 50 ára Anna Margrét Ragnarsd. Ásgeir Reynar Bragason Edvard Ágúst Ernstsson Freysteinn Sigmundsson Hildur Ingólfsdóttir Hlíf Steingrímsdóttir Hlynur Bragason Ingibjörg H. Bergþórsdóttir Kristín List Malmberg Ólafur Harðarson Sigrún Dóra Jónsdóttir Sören Lilbæk Sörensen Unnur Pálína Guðmundsd. 40 ára Agnieszka Ciecka Ásmundur Ingvi Ólason Dagrún Ingvarsdóttir Erla Reynisdóttir Hanna Björk Valsdóttir Hjalti Sigurjón Andrason Jóhanna Mjöll Björnsdóttir Jónína Helga Ólafsdóttir Kristján Þórðarson Vilberg Ingi Kristjánsson 30 ára Ari Kristinn Gunnarsson Arnar Flókason Arnar Ingi Valsson Aron Örn Sigurðsson Ása Bryndís Guðmundsd. Brynjar Þór Sigurðsson Díana Ósk Halldórsdóttir Elvar Örn Svavarsson Guðni Bjarnar Guðmundss. Gyða Rut Guðjónsdóttir Haukur Hilmarsson Hinrik Sigurjónsson Hjálmar Freyr Valdimarss. Hjörtur Þór Hjartarson Katrín Vilhjálmsdóttir Kjartan Hansson Kristinn Fannar Sveinsson Leifur Hjörleifsson Magdalena Cwenarkiewicz Martin Pavliukovic Óskar Örn Þórhallsson Sara Björk Sigurðardóttir Sverrir Örn Leifsson Til hamingju með daginn 40 ára Kristján er fæddur og uppalinn í Vík í Mýrdal og býr þar. Er húsasmiður og vinnur við brúarsmíðar og viðhald hjá Vegagerðinni. Maki: Sigrún Jónsdóttir, f. 1983, verslunarmaður hjá Icewear í Vík. Börn: Birnir Frosti, f. 2004, Sara Mekkín, f. 2006, og Grétar Logi, f. 2014. Foreldrar: Þórður Sveins- son, f. 1931, og Áslaug Vil- hjálmsdóttir, f. 1940. Þau eru bús. í Vík. Kristján Þórðarson 30 ára Hinrik er Akureyr- ingur, lærður húsasm. og er kennari í aflþynnuverk- smiðjunni Becromal. Maki: Margrét Jensína Sigurðardóttir, f. 1990, vinnur í ferðaþjónustu. Börn: Yrsa Sif, f. 2012, og Matthías Óli, f. 2015. Foreldrar: Sigurjón Gunnlaugsson, f. 1944, bús. á Akranesi, og Sig- ríður Jónína Stefáns- dóttir, f. 1953, bús. á Akureyri. Hinrik Sigurjónsson 30 ára Sverrir er Keflvík- ingur og er flugmaður hjá Icelandair. Maki: Dalrós Líndal Þór- isdóttir, f. 1992, starfs- maður hjá Arion banka. Systkini: Elísabet, f. 1982, og Brynjar, f. 1990. Foreldrar: Leifur Gunnar Leifsson, f. 1956, húsa- smíðameistari og sjálf- stætt starfandi, og Brynja Hjaltadóttir, f. 1958, sjúkraliði hjá Dagdvöl aldraðra í Reykjanesbæ. Sverrir Örn Leifsson Frá morgni líkama og sál fyrir alla fjölskylduna í þínu hverfi t i l kvölds Sími: 411 5000 • www.itr.is Fyrir líkama Laugarnar í Reykjavík

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.