Morgunblaðið - 22.07.2016, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 22.07.2016, Blaðsíða 34
34 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 2016 Vilberg Ingi Kristjánsson, pípulagningameistari í Ólafsvík, erfertugur í dag. Hann hefur rekið eigið fyrirtæki, VK lagnir,frá árinu 2007. „Það er nóg að gera og það verður lítið um frí þetta sumarið. Ég er með þrjá menn í vinnu núna og starfa mikið fyrir bæjarfélagið, Snæfellsbæ, við vatnsveitu- og fráveitumál. Er líka að vinna í sambandi við sjávarútveginn og ferðaþjónustuna en það er mikill uppgangur í henni hér í Ólafsvík.“ – En er ekki einhver tími til að halda upp á afmælið? Jú, það verður skotist á Grundfirska daga um helgina en tengdafjölskyldan býr í Grundarfirði og ég fer þangað í kvöld. Síðan tek ég mér frí fyrstu vik- una í september en þá ætlum við hjónin til Almeria á Spáni.“ Eiginkona Vilbergs er Ásdís Lilja Pétursdóttir. Hún er menntaður kennari en vinnur í tæknideildinni í Snæfellsbæ hjá byggingarfull- trúa. Dætur þeirra eru Birgitta Sól, 14 ára, og Hjördís María, 8 ára, en fyrir átti Ásdís Andra Má sem er 19 ára. „Þegar ég er ekki í vinnunni þá er ég að hjóla eins og allir Íslend- ingar og er búinn að vera í því síðustu fimm árin. Hjóla langar vega- lengdir og hef líka verið að keppa, lengsta keppnin sem ég hef tekið þátt í var 82 km. Að hjóla og fótboltinn er sameiginlegt áhugamál okkar hjóna en hún spilar enn með meistaraflokkiVíkings.“ Vilberg var áður mikið í fótbolta og spilaði í markinu fyrir Víking í heima- bænum í ein 13 ár. „Ég byrjaði í neðstu deild með þeim en hætti árið 2005 en þá vorum við komnir í næstefstu deild. Nú erum við í 5. sæti í efstu deild og gaman að fylgjast með því.“ Vilberg spilaði einnig með Skallagrími árin 1998-1999 og Fylki árin 2000-2001 þegar þeir urðu bikarmeistarar. Ljósmynd/Stefán Ingvar Guðmundsson Fjölskyldan Vilberg, Ásdís og börn við fermingu Birgittu. Hjólar og horfir á sína menn í boltanum Vilberg Kristjánsson er fertugur í dag H líf Steingrímsdóttir fæddist í Garðabæ 22. júlí 1966. „Foreldrar mínir voru einir frum- byggja Arnarnessins. Þar var mjög gaman að alast upp, ná- lægt sjó, berjalandi og óbyggðu svæði og einnig mikið af húsum í byggingu sem þótti tilvalið leiksvæði í þá daga.“ Hlíf fór í Flataskóla og svo í Garða- skóla. Í framhaldinu fór hún í MR þaðan sem hún lauk stúdentsprófi 1986. Á grunnskóla- og mennta- skólaárum vann hún ýmis sumar- störf, var í vist að passa börn frá 10 ára aldri, sendill, vann í Ísbirninum úti á Granda, var gjaldkeri í Lands- bankanum tvö sumur og vann svo sem flugfreyja hjá Arnarflugi í nokk- ur sumur. Eftir menntaskóla hóf Hlíf nám í læknisfræði við HÍ og lauk þaðan cand.med. et kir.-prófi árið 1992. Sérfræðingur í blóðlækningum Eftir störf á Borgarspítala sem kandidat og deildarlæknir og þá m.a. umsjónardeildarlæknir og umsjónar- læknir neyðarbílsins lá leiðin til Sví- þjóðar þar sem hún stundaði nám í lyflækningum og blóðsjúkdómum við Hlíf Steingrímsdóttir, frkvstj. lyflækningasviðs LSH – 50 ára Afmælisbarnið Hlíf stödd á unaðsreit fjölskyldunnar á Kletti í Borgarfirði. Verður stödd á Kletti á afmælinu sínu Fjórar kynslóðir Hlíf ásamt móður sinni, ömmu sinni og nöfnu, og börnunum í heita pottinum á Kletti. Hjónin Hlíf og Halldór ásamt hundinum Dimmu að ganga Síldarmannagötur. Sara S. Hafþórsdóttir og Agnes Eva Hjartardóttir söfnuðu 7.000 kr fyrir Rauða krossinn á Íslandi fyrir utan Samkaup í Bolungarvík. Hlutavelta Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Snap-on er leiðandi fyrirtæki í framleiðslu á öflugum og traustum verkfærum fyrir öll svið iðnaðar. Snap-on er vörumerki fyrir þá sem gera miklar kröfur um gæði, endingu og áreiðanleika. Kynntu þér Snap-on vörurnar hjá Vélum og verkfærum, úrvalið er ótrúlegt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.