Morgunblaðið - 23.07.2016, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 2016
Í byrjun júní komst umboðs-maður borgarbúa að þeirri nið-
urstöðu í áliti sínu að kjörnir
fulltrúar Reykjavíkurborgar hefðu
brotið gegn siða-
reglum kjörinna
fulltrúa borg-
arinnar með tiltek-
inni ráðstöfun á
fjármunum Bíla-
stæðasjóðs. Þá
sagði umboðsmaður
að samningagerð í
tengslum við þessa
ráðstöfun fjármuna hefði verið „í
verulegri andstöðu við vandaða
stjórnsýsluhætti enda felur hún í
sér ógagnsætt ferli við meðferð op-
inberra fjármuna“.
Ennfremur sagði í niðurstöðuumboðsmanns að „verulega
ámælisvert“ væri að samningarnir
hefðu verið gerðir, þar sem álit
hans hefði legið fyrir og Bílastæða-
sjóði og bílastæðanefnd hefði verið
kunnugt um „ólögmæti samning-
anna a.m.k. frá þeim tímapunkti er
ég kynnti þeim niðurstöðu mína“.
Viðbrögð meirihlutans í borginnihafa aðeins verið þau að hafna
niðurstöðu umboðsmanns.
Minnihlutinn í borginni hefurreynt að taka málið upp en
án árangurs. Nú síðast á fimmtu-
dag, þegar meirihlutinn í borgar-
ráði frestaði tillögu minnihlutans
um málið.
Þátttakandi í þeirri meirihluta-ákvörðun var meðal annarra
fulltrúi Pírata, Halldór Auðar
Svansson, sem lét smíða utan um
sig heilt „stjórnkerfis- og lýðræð-
isráð“ fyrir stuðning við meirihlut-
ann.
Svo virðist sem umbótastarfi Pí-rata í borginni hafi lokið með
þeirri ráðstöfun.
Halldór Auðar
Svansson
Siðareglur brotnar
í boði Pírata
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 22.7., kl. 18.00
Reykjavík 13 skýjað
Bolungarvík 9 alskýjað
Akureyri 15 skýjað
Nuuk 16 heiðskírt
Þórshöfn 12 heiðskírt
Ósló 25 skýjað
Kaupmannahöfn 26 heiðskírt
Stokkhólmur 24 heiðskírt
Helsinki 18 skýjað
Lúxemborg 27 léttskýjað
Brussel 25 léttskýjað
Dublin 18 skýjað
Glasgow 17 skúrir
London 23 skúrir
París 25 heiðskírt
Amsterdam 25 rigning
Hamborg 25 þrumuveður
Berlín 29 heiðskírt
Vín 27 léttskýjað
Moskva 16 skúrir
Algarve 29 heiðskírt
Madríd 31 léttskýjað
Barcelona 27 léttskýjað
Mallorca 30 léttskýjað
Róm 29 rigning
Aþena 31 heiðskírt
Winnipeg 23 heiðskírt
Montreal 27 skýjað
New York 29 skýjað
Chicago 26 skýjað
Orlando 31 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
23. júlí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4:09 23:01
ÍSAFJÖRÐUR 3:45 23:35
SIGLUFJÖRÐUR 3:26 23:19
DJÚPIVOGUR 3:31 22:38
Skipulagsstofnun hefur í samstarfi
við sveitarfélög og stofnanir hafið
vinnu við verkefni um kortlagningu
mannvirkja og þjónustu á miðhá-
lendinu. Er þar verið að framfylgja
nýsamþykktri landsskipulagsstefnu
2015-2026 og er hluti af stefnu um
skipulag á miðhálendi Íslands.
Kortlagningunni er ætlað að gefa
heildstæða yfirsýn yfir núverandi
mannvirki, húsakost og framboð
þjónustu á hálendinu sem mun nýt-
ast við næstu endurskoðun lands-
skipulagsstefnu, segir í frétt á
heimasíðu stofnunarinnar. Vinnan
muni einnig nýtast við vinnslu ann-
arra verkefna landsskipulagsstefnu,
svo sem greiningu víðerna, mat á
þörf fyrir uppbyggingu ferðaþjón-
ustumannvirkja og nánari stefnu-
mótun um vegakerfi miðhálendisins.
Vinna við verkefnið felst fyrst og
fremst í söfnun og skráningu gagna í
samvinnu við Þjóðskrá og sveit-
arfélög á hálendinu, auk fjölmargra
annarra stofnana og félagssamtaka
sem málið varðar. Niðurstöður verk-
efnisins verða teknar saman í
skýrslu þar sem dregin verður upp
mynd af núverandi stöðu fyrir há-
lendið og sveitarfélög. sisi@mbl.is
Kortleggja
miðhálendi
landsins
Mannvirki og
þjónusta verða skráð
Á næstu vikum verður lagt bundið
slitlag á Kaldadalsvegi frá Þingvöll-
um að Brunnum á Uxahryggjarvegi
þar sem ekið er niður í Lundar-
reykjadal í Borgarfirði. Vegur þessi,
sem er fjölfarinn sumarleið, var
byggður upp og endurbættur fyrir
um áratug og miðaðist sú fram-
kvæmd alltaf við að slitlag kæmi í
fyllingu tímans.
„Við fengum um það bil 300 millj-
ónir króna til þessarar fram-
kvæmdar sem hefur beðið í allmörg
ár,“ segir Svanur Bjarnason, sem
stýrir suðursvæði Vegagerðarinnar.
Suðurtak í aðalhlutverki
Alls er vegarkaflinn sem hér er
verið að bæta um 16 kílómetrar. Á
hinum endanum er svo eftir veg-
urinn í Lundarreykjadalnum. Þar
eru verktakar að störfum um þessar
mundir og er þess vænst að slitlag
verði sett á þann spotta innan ekki
margra ára. Yrði þá kominn fyrsta
flokks tenging milli landsfjórðunga,
sem lengi hefur verið vænst.
Verktakafyrirtækið Suðurtak ehf.
hefur framkvæmdir á Kaldadalsvegi
með höndum og undirverktaki er
Bikun ehf. Verktaki með efnis-
vinnslu fyrir verkið í námu við svo-
nefndar Sæluhúsahæðir er Króks-
verk ehf. Verlok á Kaldadals-
veginum eru áætluð í september
næstkomandi. sbs@mbl.is
Leggja slitlag á Kaldadalsveginn
Milli Þingvalla og Borgarfjarðar Stórframkvæmd sem kostar 300 millj. kr.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Meyjarsæti Vegurinn í brekkunni.
HVAR ER SÓSAN?
Pylsa eða pulsa?
Það skiptir engu máli ef þú ert ekki með réttu sósuna.
Þú gleymir ekki sósunum frá E. Finnsson.