Morgunblaðið - 23.07.2016, Síða 20
20 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 2016
MIKIÐ ÚRVAL
AUKAHLUTA
Veit á vandaða lausn
Verið velkomin í verslun okkar
Opið virka daga kl. 8:30–17:00
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
KOLAGRILL
TILBÚIÐ Á
3
MÍNÚTUM
• Tilbúið til matreiðslu á 3-4 mínútum
• Afkastamikið og öflugt
• Innbyggð vifta sem tryggir kolum súrefni
• Tvöfaldur veggur kemur í veg fyrir að ytra byrði hitni
• Mjög góð hitastýring á kolum
• Hægt að færa grillið til meðan það er í notkun
• Fitan lekur ekki á kolin
• Auðvelt að þrífa - hægt að taka alveg í sundur
• Má fara í uppþvottavél
• Taska fylgir
Lotusgrill XL með tösku
Verð kr. 50.218,-
SJÓÐHEITUR FÉLAGI
Í FERÐALAGIÐ EÐA Á SVALIRNAR
23. júlí 2016
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 121.81 122.39 122.1
Sterlingspund 159.64 160.42 160.03
Kanadadalur 92.79 93.33 93.06
Dönsk króna 18.031 18.137 18.084
Norsk króna 14.301 14.385 14.343
Sænsk króna 14.128 14.21 14.169
Svissn. franki 123.49 124.19 123.84
Japanskt jen 1.1465 1.1533 1.1499
SDR 168.67 169.67 169.17
Evra 134.15 134.91 134.53
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 167.577
Hrávöruverð
Gull 1323.2 ($/únsa)
Ál 1594.5 ($/tonn) LME
Hráolía 47.17 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
BAKSVIÐ
Jón Þórisson
jonth@mbl.is
Verðhjöðnun er á tólf mánaða tíma-
bili sé húsnæðisþáttur í útreikningi
vísitölu neysluverðs tekinn frá. Þetta
er niðurstaða nýjustu mælingar
Hagstofunnar á vísitölunni. Á tólf
mánaða tímabili mælist verðbólga í
landinu 1,1%, sem er nokkru lægra
en spár viðskiptabankanna þriggja
sögðu. Spáðu þeir að tólf mánaða
verðbólgan myndi mælast á bilinu
1,2% til 1,6%.
Seðlabanki spáði 3% verðbólgu
Í Peningamálum, riti sem Seðla-
banki gaf út 11. maí síðastliðinn, seg-
ir að bankinn spái því að verðbólga
verði um 3% í lok þessa árs. Verð-
bólgumarkmið bankans er 2,5% sem
kunnugt er. Verðbólguhorfur eru
einn þeirra þátta sem lagðir eru til
grundvallar vaxtaákvarðana pen-
ingastefnunefndar.
Þeir þættir sem mest áhrif hafa á
mælingu vísitölunnar núna eru mat-
ur, sem hækkaði um 1% í mánuðin-
um og nema áhrif til hækkunar vísi-
tölunnar 0,13%. Þá hækkuðu
flugfargjöld til útlanda um 13,5%
sem olli 0,17% hækkun vísitölunnar
og kostnaður vegna búsetu í eigin
húsnæði hækkaði um 0,7% sem olli
0,1% hækkun. Hins vegar ollu áhrif
sumarútsala lækkun á fatnaði og
skóm um 11,8% sem lækkaði vísitöl-
una um 0,51% og hreinlætis- og
snyrtivörur lækkuðu um 6,7% sem
olli lækkun vísitölu um 0,1%.
Þorvarður Tjörvi Ólafsson, hag-
fræðingur hjá Seðlabankanum, segir
að verðbólga og sérstaklega verð-
bólguhorfur séu vissulega einn
þeirra þátta sem horft er til þegar
vextir bankans séu ákvarðaðir.
„Næsti vaxtaákvörðunardagur er 24.
ágúst og það er á borði peninga-
stefnunefndar bankans að ákvarða
þá.“ Hann segir að þá verði verð-
bólguspá bankans uppfærð sam-
hliða. „Verðbólguspá bankans frá í
maí sagði að á þriðja ársfjórðungi
yrði verðbólga 1,9%. það er harla
ólíklegt að það gangi eftir sé horft til
nýjustu mælingarinnar. Undir lok
árs sagði svo spáin að hún myndi
aukast og vera nær 3%. Ég held að
óhætt sé að segja að þessi mæling sé
líkleg til að leiða til að verðbólgu-
horfurnar verði endurskoðaðar nið-
ur á við þegar ný spá bankans verður
birt í ágúst.“
Verðhjöðnun reynist
meiri en spáð var
Morgunblaðið/Ernir
Vextir Stýrivextir eru 5,75% samkvæmt ákvörðun peningastefnunefndar.
Vísitala neysluverðs
» Lækkun vísitölunnar undan-
farið er mest af völdum verð-
lækkunar innfluttra vara.
» Innflutttar vörur án áfengis
og tóbaks lækka um 3,6% milli
mánaða.
» Búvörur og grænmeti
hækka um 3,4% milli mánaða.
» Innlendar vörur án búvöru
hækka um 3% milli mánaða.
» Verðhækkun dagvöru var
1,3% milli mánaða.
Ólíklegt að verðbólguspá gangi eftir að sögn hagfræðings
Hagnaður Össurar á öðrum ársfjórð-
ungi nam 15 milljónum Bandaríkja-
dala eða 1,8 milljörðum íslenskra
króna. Felur það í sér samdrátt frá
sama fjórðungi á síðasta ári þegar
hagnaðurinn nam 16 milljónum doll-
ara. Í tilkynningu frá félaginu kemur
fram að einskiptiskostnaður ráði þar
miklu og sé leiðrétt fyrir honum eykst
hagnaður hjá félaginu um 10%. Ein-
skiptiskostnaðurinn er metinn á 4,6
milljónir dollara eða 560 milljónir
króna. EBITDA, án einskiptiskostn-
aðar, reyndist 30 milljónir Banda-
ríkjadala eða 3,7 milljarðar króna.
Sala nam 139 milljónum dala eða
17,2 milljörðum króna og felur það í
sér 10% söluvöxt frá fyrra ári, þar af
er innri vöxtur 5%, en hvort tveggja
er mælt í staðbundinni mynt. Í upp-
gjörinu er nú einnig að finna tölur
sem tengjast umsvifum Touch Bio-
nics en Össur keypti fyrirtækið í apríl
síðastliðnum.
Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar,
segist ánægður með árangurinn á
öðrum ársfjórðungi og það hafi þurft
nokkurn slagkraft til að standast
samanburð við öflugt uppgjör á sama
fjórðungi í fyrra.
„Reksturinn gekk mjög vel og skil-
aði góðum hagnaði. Söluvöxtur í Am-
eríku var góður og gekk sala á stoð-
tækjum einkar vel. Eins og við
bjuggumst við þá var söluvöxtur í
EMEA góður eftir slakan fyrsta
fjórðung. Sala á spelkum og stuðn-
ingsvörum var drifin áfram af há-
gæðavörum og sala á stoðtækjum var
drifin áfram af bionic-vörum og vör-
unýjungum. Í apríl fórum við inn á
nýjan markað með kaupum á Touch
Bionics. Touch Bionics er fremst í
heiminum í þróun og framleiðslu á
gervihöndum og með kaupunum get-
um við boðið viðskiptavinum okkar
upp á enn betra vöruúrval.“
Morgunblaðið/Eggert
Uppgjör Össur færði út kvíarnar á
árinu með kaupum á Touch Bionics.
Össur hagnast
um 1,8 milljarða
Góður söluvöxtur
í Bandaríkjunum
Á nýliðnu rekstrarári Festar, sem
stendur frá 1. mars og til loka
febrúar ár hvert, nam hagnaður
félagsins tæpum 1,5 milljörðum
króna. Félagið á meðal annars
Krónuna, Elko, Bakkann, Inter-
sport og Festi Fasteignir sem rek-
ur fasteignir sem telja um 80.000
fermetra. Hagnaðurinn jókst um
tæp 47% milli ára. EBITDA var
3,6 milljarðar og jókst um 35%
milli ára.
Heildarsala jókst um 6,9% milli
ára og reyndist hún 36,1 millj-
arður króna, samanborið við 33,8
milljarða árið 2014. Framlegð af
vörusölu jókst um 11,1% og nam
7,7 milljörðum króna. Leigutekjur
jukust lítillega eða um ríflega 15
milljónir króna og námu tæpum
1,3 milljarði á árinu. Á rekstr-
arárinu seldi félagið fasteignir fyr-
ir rúmar 200 milljónir.
Laun og annar starfsmanna-
kostnaður jókst um 5,8% og nam
3,6 milljörðum en annar rekstr-
arkostnaður dróst saman um 4,2%
frá fyrra ári. Þannig nam hann á
síðasta rekstrarári tæpum 2,1
milljarði króna en var tæpir 2,2
milljarðar ári fyrr.
Á rekstrarárinu var fjórum Nóa-
túnsverslunum breytt í Krónu-
verslanir. Þá kemur fram í til-
kynningu frá félaginu að yfir
1.000 vörutegundir hafi lækkað í
Kjarvalsverslunum til samræmis
við það verð sem boðið er upp á í
verslunum Krónunnar. Þá mun
verð á raftækjum hafa lækkað um
17% í kjölfar tollabreytinga og
breyttra áherslna Elko.
Hagnaður Festar
jókst um 47%
Heildarsala jókst um tæp 7% milli ára
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Festar Krónan er meðal dóttur-
félaga fyrirtækisins.
mbl.is
alltaf - allstaðar