Morgunblaðið - 09.09.2016, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2016
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Skútahraun 4, Hafnarfjörður, fnr. 207-8849, þingl. eig. Sæmundur Sig-
mundsson ehf, gerðarbeiðendur Arion banki hf. og Hafnarfjarðar-
kaupstaður, miðvikudaginn 14. september nk. kl. 10:30.
Erluhraun 2B, Hafnarfjörður, fnr. 207-4589, þingl. eig. Arnar Már
Ólafsson og Steinunn Hildur Hauksdóttir, gerðarbeiðandi Hafnar-
fjarðarkaupstaður, miðvikudaginn 14. september nk. kl. 11:00.
Ölduslóð 8, Hafnarfjörður 50% ehl. gþ., fnr. 208-0828, þingl. eig.
Sigríður Snorradóttir, gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf., miðvikudaginn
14. september nk. kl. 13:30.
Háihvammur 12, 0101, (207-5186), Hafnarfirði, þingl. eig. Njáll
Hannes Kjartansson, gerðarbeiðandi Sameinaði lífeyrissjóðurinn,
miðvikudaginn 14. september nk. kl. 14:00.
Eyrarholt 7, Hafnarfjörður 50% ehl.gþ, fnr. 207-4546, þingl. eig.
Brynjar Þór Óskarsson, gerðarbeiðandi Borgun hf., miðvikudaginn
14. september nk. kl. 14:30.
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
8. september 2016.
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir:
Klapparhlíð 13, Mosfellsbær, 50% ehl., fnr. 226-6704, þingl. eig. Valdís
Guðmundsdóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 13.
september nk. kl. 10:30.
Leirutangi 39B, Mosfellsbær, fnr. 208-4023, þingl. eig. Ágústa Guð-
bjartsdóttir, gerðarbeiðandi Landsbankinn hf, Bæjarhrauni, þriðjudag-
inn 13. september nk. kl. 11:00.
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
8. september 2016
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign, vegna slita á sam-
eign, verður háð á henni sjálfri, sem hér segir:
Hjallavegur 28, Reykjavík, fnr. 201-7735 og 201-7736, þingl. eig. Anna
Lóa Aradóttir og Hrafn Árnason, gerðarbeiðandi Hrafn Árnason,
þriðjudaginn 13. september nk. kl. 15:00.
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
8. septembler 2016
Tilkynningar
Seyðisfjarðarkaupstaður
Aðalskipulag
Seyðisfjarðarkaupstaðar 2010 -
2030. Aðalskipulagsbreyting -
skipulagslýsing – kynning.
Umhverfisnefnd Seyðisfjarðarkaup-
staðar auglýsir hér með opið hús þar
sem íbúar geta kynnt sér skipulags-
lýsinguna skv. ákv. gr. 4.2.4 í
skipulagsreglugerð.
Aðalskipulag Seyðisfjarðarkaupstaðar 2010 -
2016. Aðalskipulagsbreyting á Vestdalseyri.
Samkvæmt tillögunni verður landnotkun á
Vestdalseyri breytt. Núverandi landnotkun
er opið svæði en henni verður breytt í við-
skipta- og þjónustusvæði og íbúðasvæði.
Svæðið sem um ræðir nær frá víkinni innan
við eyrina upp að klettabelti ofan Vestdals-
eyrar og út að Grýtá.
Opið hús verður í fundarsal Hafnargötu 28,
Seyðisfirði, mánudaginn 12. september nk.
kl. 16.00Handavinna og spjall kl. 10.00, Bingó
kl. 13.30 - 18.00.
Almenningi verður gefinn kostur á að koma
með ábendingar á kynningunni og/eða
senda inn ábendingar til skipulags- og
byggingarfulltrúa Hafnargötu 44, 710
Seyðisfirði eða á netfangið sigurdur@sfk.is
til og með 3. október 2016.
Hægt er að nálgast skipulagslýsinguna á
heimasíðu Seyðisfjarðarkaupstaðar og á
bæjarskrifstofunni að Hafnargötu 44.
Byggingarfulltrúinn á Seyðisfirði
EFTIRLAUNASJÓÐUR
REYKJANESBÆJAR
Eftirlaunasjóður Reykjanesbæjar tilkynnir:
Stjórn Eftirlaunasjóðs Reykjanesbæjar samþykkti á fundi
sínum þ. 24. ágúst 2016 að óska eftir viðræðum við Brú,
lífeyrissjóð starfsmanna sveitarfélaga, um mögulega sam-
einingu
við B-deild sjóðsins.
Í ljósi góðra undirtekta samþykkti stjórnin síðan eftirfarandi
Stjórn Eftirlaunasjóðs Reykjanesbæjar samþykkir að hefja
viðræður um sameiningu sjóðsins í B-deild Brúar, lífeyris-
sjóðs starfsmanna sveitarfélaga.
Það felur í sér að eignasafn sjóðsins og eignasafn B-deildar
verða sameinuð í eitt safn, að skuldbindingum sjóðsins,
hvers réttindasafns og annarra launagreiðenda verði haldið
aðgreindum og að réttindi og réttindaávinnsla sjóðsfélaga
verði óbreytt.
Fyrir hönd sjóðsins mun Gréta J. Sigurðardóttir, fram-
kvæmdastjóri sjóðsins, leiða ofangreindar viðræður.
Samþykkt á stjórnarfundi þ. 5. september 2016
KjartanMár Kjartansson, formaður
Ásdís María Óskarsdóttir
Guðný Bachmann Jóelsdóttir
! " # $!
%
& ' $ ATVINNUVEGA- OG NÝSKÖPUNARRÁÐUNEYTIÐ
Auglýsing til bæjar- og sveitarstjórna
um úthlutun byggðakvóta fiskveiðiársins 2016/2017.
Með auglýsingu þessari vill ráðuneytið gefa bæjar- og sveitarstjórnum kost á að sækja um byggðakvóta,
fyrir fiskveiðiárið 2016/2017, á grundvelli 10. gr. laga nr. 116/2006, með síðari breytingum. Bæjar-/sveitar-
stjórnir eru umsóknaraðilar fyrir byggðarlögin innan sveitarstjórnarumdæmanna og annast þær öll samskipti
við ráðuneytið, sem nauðsynleg eru vegna úthlutunarinnar.
Umsóknarfrestur um byggðakvóta fiskveiðiársins 2016/2017 er til 10. október 2016. Umsóknir sem berast
eftir þann tíma verða ekki teknar til greina.
Til greina við úthlutun byggðakvóta koma:
1.Minni byggðarlög (viðmiðun er 2.000 íbúar þann 1. janúar 2016), sem lent hafa í vanda vegna
samdráttar í sjávarútvegi og sem háð eru veiðum og vinnslu á botnfiski. Skal sveitarstjórn gera
ráðuneytinu ítarlega grein fyrir vanda byggðarlagsins sem talið er að rekja megi til samdráttar í
sjávarútvegi á síðustu árum og fyrir þýðingu veiða og vinnslu botnfisks fyrir það byggðarlag.
2.Byggðarlög sem orðið hafa fyrir óvæntri skerðingu á heildaraflaheimildum fiskiskipa sem gerð hafa
verið út og landað afla í viðkomandi byggðarlögum og sem veruleg áhrif hefur haft á atvinnuástand í
þeim. Sveitarstjórnir skulu leggja fram gögn, sem sýna fram á að í tilteknu byggðarlagi hafi óvænt
skerðing heildaraflaheimilda fiskiskipa sem gerð eru þaðan út og landað hafa þar afla, hafi haft veru-
leg neikvæð áhrif á atvinnuástand í viðkomandi byggðarlagi.
Að fengnum umsóknum sveitarfélaga tekur ráðuneytið ákvörðun um hversu mikill byggðakvóti kemur í hlut
einstakra byggðarlaga og tilkynnir bæjar-/sveitarstjórnum niðurstöðuna.
Ráðuneytið hefur gefið út reglugerð um úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga á fiskveiðiárinu 2016/2017,
nr. 640, 8. júlí 2016 og reglugerð um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2016/2017, nr. 641,
8. júlí 2016 og eru bæjar- og sveitarstjórnarmenn hvattir til að kynna sér innihald þeirra.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið.
Raðauglýsingar 569 1100
Nauðungarsala
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Hér í Vesturbænum er haustdagskráin að taka á sig
mynd. Opna vinnustofan alla daga kl. 9, félagsvist alla mánudaga kl.
13, útskurður, tálgun og bókaklúbbur er þegar komið í gang, postulín
og myndlist byrja 13., 14., og 15. september fyrsta BINGÓ 23. septem-
ber og leikfimi 1. október
Árskógar 4 Smíðar með leiðbeinanda kl. 9-16, botsía með Sigríði kl.
9.30. Innipútt opið kl. 11, opið hús kl. 13-16.
Boðinn Línudans kl. 15.
Bólstaðarhlíð 43 Fréttaklúbbur kl. 10.40, kaffi/dagblöð og hádegis-
verður.
Bústaðakirkja Félagsstarfið hefst miðvikudaginn 14. september
með haustferð. Skráning og nánari upplýsingar eru í kirkjunni í síma
553-8500 og hægt að senda tölvupóst til Hólmfríðar djákna á net-
fangið holmfridur@kirkja.is. Sjáumst hress!
Dalbraut 27 Handavinnustofa kl. 8, lestur úr blöðum vikunnar kl. 10.
slökun og hugleiðsla kl. 14.
Garðabær Opið og heitt á könnunni í Jónshúsi frá kl. 9.30-16, kaffi-
meðlæti selt með síðdegiskaffinu kl.14, vatnsleikfimi kl. 8, 8.50 og 13.
Félagsvist FEBG í Jónshúsi kl. 13, bíll fer frá Litlakoti kl. 12.20 ef óskað
er, frá Hleinum kl. 12.30, frá Garðatorgi 7 kl. 12.40 og til baka að
loknum spilum.
Gerðuberg Kl. 9-16 opin handavinnustofa, kl. 10-12 pjónakaffi, kl. 10-
10.20 leikfimi gönguhóps, kl. 10.30 gönguhópur um hverfið, kl. 13-16,
bókband með leiðbeinanda, kl. 13-15 kóræfing (áhugasamir velkom-
nir á æfingu).
Gullsmári Tiffanýgler kl. 9, ganga kl. 10, opið hús með handverks-
sýningu/markaði hjá FEBK í Gullsmára á morgun laugardaginn 10.
sept. kl. 14.
Hraunbær 105 Kaffiklúbburinn, allir velkomnir í kaffi kl. 9, opin
handavinna, leiðbeinandi kl. 9–12, útskurður kl. 9, morgunleikfimi kl.
9.45, botsía kl. 10–11, hádegismatur kl. 11.30.
Hvassaleiti 56–58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8–16, morgunkaffi og
spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, morgunleikfimi kl.
9.45, matur kl. 11.30, spilað brids kl. 13, bíódagur kl. 13.30, kaffisala í
hléi. Skráning er hafin í félagsstarfið, sem öllum opið, óháð búsetu og
aldri, nánari upplýsingar á staðnum eða í síma 535-2720.
Hæðargarður 31 Við hringborðið kl. 8.50, listasmiðjan er opin frá kl.
9.Thai chi kl. 9, haustfagnaður Hæðargarðs kl. 13 þar sem kynnt
verður starf og dagskrá félagsmiðstöðvarinnar. Þorvaldur Jónsson
spilar á harmonikku, Ásdís Skúladóttir verður með atriði, sýning og
kynning á línudansi í umsjá Ingu. Kaffi, vaffla og súkkulaðimoli á 400
krónur. Allir velkomnir óháð aldri og búsetu.
Korpúlfar Allir velkomnir kl. 10 í ókeypis kynningartíma í fimleikahóp
Korpúlfa, - vel verður tekið á móti okkur í Egilshöll. Hannyrðahópur
Korpúlfa hittist kl. 12.30 í dag í Borgum og vöfflukaffi kl. 14.30 til 15.30
í Borgum. Sundleikfimi 7.30 í Grafarvogssundlaug, tölvunámskeið
ráðgjföf kl. 10 í Borgum, kynningafundur hjá menningarnefnd Korp-
úlfa tekinn fyrir haustönn. Allir velkomnir.
Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30, jóga/hláturjóga í saln-
um Skólabraut kl. 11, spilað í króknum kl. 13.30, syngjum saman með
Ingu Björgu og Friðriki Vigni í salnum á Skólabraut kl. 14.30.
Stangarhylur 4 Skemmtiklúbburinn heldur félagsvist og dans
háfsmánaðarlega í Ásgarði, Stangarhyl 4, í vetur, fyrsta skemmtun er
10. september, vistin hefst kl. 19.30 og dansinn kl. 21.30. Danshljóm-
sveitin Gaman saman leikur fyrir dansi til kl. 00.30 Allir eru hjartan-
lega velkomnir til að skemmta sér í vímulausu umhverfi. Skemmti-
klúbburinn. Qi-gong-námskeið kl. 10.15 leiðbeinandi Inga Björk
Sveinsdóttir, uppbygging og næring fyrir fyrir sál og líkama. Dansað
sunnudagskvöld kl. 20–23, hljómsveit hússins leikur fyrir dansi.
Vesturgata 7 Sungið við flygilinn kl. 130–14, Gylfi Gunnarsson.
Kaffiveitingar kl. 14–14.30.
Vitatorg Bókband og postulínsmálun kl. 9, upplestur framhaldssögu
kl. 12.30. Handavinna og spjall kl. 10, bingó kl. 13.30, frjáls spila-
menska og stóladans kl. 13, prjónaklúbbur kl. 13.30, allir velkomnir í
félagsmiðstöðina
Þórðarsveigur 3 Bingó kl. 13.30, flottir matarvinningar og glæsi-le-
gar kaffiveitingar eftir bingó. Allir velkomnir að spila með.
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á